Innlent

Veiturnar verði almannaeign

Össur Skarhéðinsson iðnaðarráðherra leggst gegn því að fjárfestar á markaði geti eignast almannaveitur og telur mikilvægt að tryggja að þær verði í félagslegri meirihlutaeign. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, vill ekki að útlendingar laumist bakdyramegin í orkulindir þjóðarinnar.

Viljum við leyfa alþjóðlegum fjárfestum að eiga rafmagnsveitur og hitaveitur á Íslandi? Eigum við að takmarka það hverjir megi eiga virkjanir í landinu eins og Búrfellsvirkjun eða Reykjanesvirkjun? Innkoma Geysis Green Energy í Hitaveitu Suðurnesja og hugsanleg eignaraðild Goldman Sachs bankans að Hitaveitunni í gegnum Geysi vekur upp grundavallarspurningar um eignarhald á bæði orkulindum og orkuveitum landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×