Innlent

Geir fundar með forseta Írlands

Geir H. Haarde, forsætisráðherra.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra. MYND/DR

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, fundaði í dag með frú Mary McAleese, forseta Írlands. Þá ræddi Geir um stöðu efnhags- og atvinnumála á Íslandi og Írlandi við Michael Martin, ráðherra iðnaðar-,viðskipta- og vinnumarkaðsmála.

Fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu að þá hafi forsætisráðherra farið í heimsókn til fjármálafyrirtækisins Merrion Capital Group sem Landsbankinn festi kaup á fyrir tæplega tveimur árum. Þar fundaði Geir með bankastjórum Landsbankans og ýmsum stjórnendum fyrirtækisins. Í kvöld er svo móttaka til heiðurs forsætisráðherra í Þjóðminjasafni Írlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×