Innlent

Sigurjón svikinn um stöðu framkvæmdastjóra

Sigurjón Þórðarson fyrrverandi alþingismaður frjálslyndra, fær ekki stöðu framkvæmdastjóra flokksins, eins og honum hafði verið lofað, þegar hann vék sæti fyrir Kristni H. Gunnarssyni.

Sigurjón skipaði annað sætið á lista flokksins í Noðrvestur kjördæmi og sat á þingi, en vék úr því sæti fyrir Kristni H. Gunnarssyni fyrir síðustu kosningar. Hann ákvað að reyna fyrir sér í suðvestur kjördæmi, en að beiðni flokksforystunnar, sem Sigurjón staðfesti við fréttastofuna í morgun, bauð hann sig fram í norðaustur kjördæmi. Fyrirfram var talið að framboð í því kjördæmi ætti ekki möguleika á þingsæti, eins og kom á daginn.

En gegn því að flytja sig í Norðaustur kjördæmi var honum heitið stöðu framkvæmdastjóra flokksins. Framkvæmdastjórn flokksins kom svo saman á mánudag og samkvæmt heimildum var ákveðið þar að standa ekki við það fyrirheit, heldur ráða Magnús Reyni Guðmundsson, sem gengdi starfinu til bráðabirðga eftir að Margrét Sverrisdóttir yfirgaf flokkinn.

Sigurjón Þórðarson sagði í viðtali við fréttastofuna að hann hafi ekki náð í formanninn, Guðjón A.Kristjánsson til að fá þetta staðfest, og það hefur fréttastofunni ekki tekist heldur. Sigurjón hefur nú ákveðið að taka við fyrra starfi sínu sem framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Noðrurlands Vestra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×