Slökkviliðið sinnti útkalli í slökkvistöðinni Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. september 2007 20:31 Slökkviliðinu hefur vonandi gengið vel að komast á staðinn. Mynd/ Vilhelm
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins þurfti ekki að fara langt til að sinna aðstoðarbeiðni vegna vatnsleka í höfuðborginni um sjöleytið í kvöld. Lekinn kom nefnilega upp í kjallara í sjálfri slökkvistöðinni við Skógarhlíð. Frárennslislagnir eru orðnar lélegar þar og létu undan í rigningarsuddanum í dag. Að sögn slökkviliðsins gekk ágætlega að hreinsa vatnið og litlar sem engar skemmdir urðu sökum lekans. Slökkviliðið fór í tvö önnur vatnslekaútköll í dag. Í Möðrufelli í Breiðholti lak vatn frá þriðju hæð niður á aðra. Íbúar á þriðju hæðinni voru ekki heima og því þurfti slökkviliðið að óska eftir aðstoð frá lögreglu við að komast inn og skrúfa fyrir vatnið. Þegar það var búið var hægt að byrja að hreinsa upp vatnið og gekk það vel samkvæmt heimildum frá slökkviliði. Þriðja útkallið vegna vatnsleka var að Gautlandi í Reykjavík. Slökkviliðið gat ekki gefið nánari upplýsingar um aðstæður þar.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Sjá meira