Innlent

Skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á og hóta lögreglumanni

MYND/Guðmundur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á og haft í hótunum við lögregluþjón við skyldustörf.

Ákæra á hendur manninum var þingfest í gær og játaði maðurinn á sig brotin. Honum var gefið að sök að hafa í nóvember í fyrra ýtt við lögreglumanni inni í lögreglubíl þannig að lögreglumaðurinn rak höfuðið í loft bifreiðarinnar. Í kjölfarið hótaði maðurinn svo lögreglumanninum að hann kæmi heim til hans og berði hann. Slíkt telst brot gegn valdstjórninni og var maðurinn því ákærður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×