Fleiri
Alcan segist ekki vera að hóta 4.3.2006 18:40 Engin aðstaða fyrir hreyfihamlaða í húsakynnum Skáksambandsins Hreyfihamlaðir eru afar óánægðir með aðgengi í húsakynnum Skáksambandsins og hafa af þeim sökum ekki tekið þátt í skákmótum þar í fjölda ára. Formaður sambandsins segist líta á þetta sem forgangsmál. 4.3.2006 18:32 Maður sem stunginn var kominn úr lífshættu Maðurinn, sem var stunginn tvívegis í bakið á veitingastaðnum Gauki á Stöng í nótt, er úr lífshættu en hann hlaut mjög hættulega áverka á brjótsholi að sögn vakthafandi læknis. Líðan hans er eftir atvikum en hann er nú kominn af gjörgæsludeild á legudeild. 4.3.2006 18:02 Ljósmæður í heimaþjónustu samþykkja kjarasamning Ljósmæður í heimaþjónustu samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða nýgerðan kjarasamning Ljósmæðrafélags Íslands og samninganefndar heilbrigðisráðuneytisins á fundi í dag 4.3.2006 17:22 Kvarta undan seinagangi í kjaraviðræðum Starfsmannafélag Reykjavíkur lýsir vanþóknun sinni á seinagangi Orkuveitu Reykjavíkur og Félagsbústaða hf. við gerð nýrra kjarasamninga við félagið. 4.3.2006 17:15 Vélsleðamaður á gjörgæslu en ekki í lífshættu Vélsleðamaðurinn sem slasaðist á austanverðum Geitlandsjökli á Langjökli um hádegisbil í dag liggur nú á gjörgæsludeild. Hann er talsvert alvarlega slasaður og en ekki í lífshættu að sögn vakthafandi læknis. 4.3.2006 17:08 Þórarinn Óscar Þórarinsson <p><font color="#ff0000" size="1">Nýtt!</font> Óscarinn - Þórarinn B. segir sitt álit. 4.3.2006 16:00 Ljósmæður greiða atkvæði um nýjan kjarasamning Ljósmæður í heimaþjónustu koma saman nú klukkan fjögur þar sem kynntur verður kjarasamningur Ljósmæðrafélags Íslands og samninganefndar heilbrigðisráðuneytisins sem undirritaður var í gær. Jafnframt greiða ljósmæður um hann atkvæði. 4.3.2006 15:44 Prófkjör hjá framsóknarmönnum á Austurlandi Prófkjör er haldið í dag á vegum Framsóknarflokksins í fjórum sveitarfélögum sem munu sameinast við sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þetta eru Fjarðabyggð, Austurbyggð, Mjóafjarðarhreppur og Fáskrúðsfjarðarhreppur. 4.3.2006 15:15 Komið með slasaðan vélsleðamann til Reykjavíkur Þyrla varnarliðsins lenti klukkan þrjú við Landspítalann í Fossvogi með slasaðan vélsleðamann sem hún sótti á suðvestanverðan Langjökul. Maðurinn hrapaði um 40 metra fram af snjóhengju og er hann illa haldinn og grunur um innvortis meiðsl og áverka á hrygg. 4.3.2006 15:12 Tilkynnt um strandaðan bát við Jörundarboða Bátar frá björgunarsveitum í Reykjavík, Kópavogi og Seltjarnarnesi voru kallaðir út í dag vegna tilkynningar um að bátur hefði strandað við Jörundarboða sem er vestur af Lönguskerjum í Skerjafirði. 4.3.2006 15:00 Sjá næstu 50 fréttir
Óvenju mikið um hraðakstur miðað við árstíma Alls voru 22 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Akranesi í nýliðinni viku en það er óvenju mikið. Í janúar og febrúar í ár hafa 122 ökumenn verið kærðir fyrir hraðakstur en á sama tíma fyrir ári voru 51ökumaður kærður og 49 árið 2004. 6.3.2006 10:42
Mótmæla styttingu stúdentsprófs á morgun Framhaldsskólanemar ætla að koma saman á Austurvelli á miðvikudags morgun, til að mótmæla áformum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, um að stytta nám til stúdentsprófs um eitt ár. 6.3.2006 10:30
Gistinóttum í janúar heldur áfram að fjölga Gistinóttum á hótelum fjölgaði um tæp 13% í janúar frá því á síðasta ári. Alls voru gistinætur í janúar 40.600 en 36.000 í sama mánuði árið 2005. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurnesjum, vesturlandi og Vestfjörðum eða úr 2500 gistinóttum í 4.500 sem er 80% aukning milli ára. 6.3.2006 10:25
Tvær nýjar GSM stöðvar á Akureyri Og Vodafone hefur nú tekið í nokun tvær nýjar GSM stöðvar á Akureyri en þær eiga að efla enn frekar GSM samband viðskiptavina Og Vodafone á Akureyri. Stöðvarnar eru staðsettar við Sörlagötu og Glerártorg og eiga því að stuðla að betra sambandi í næsta nágrenni. Þá er ætlunin að fjölga GSM stöðvum enn frekar á Akureyri á næstu mánuðum. 6.3.2006 10:07
Dönsku bankarnir verða að auka umsvif sín Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Landsbankans segir að dönsku bankarnir verði að auka umsvif sín á sviði verðbréfaviðskipta og eignaumsýslu, eins og íslensku bankarnir geri, ef þeir vilji standa sig á alþjóðavettvangi. 6.3.2006 09:23
Bíllinn í klessu Bíleiganda í Vogum á Vatnsleysuströnd brá heldur í brún þegar hann ætlaði að vitja bíls síns í gærkvöldi, því hann reyndist allur lurkum laminn í orðsins fyllstu merkingu. Árásarmaðurinn eða mennirnir, hafa annaðhvort notað barefli eða sparkað í bílinn og dældað hann allan hringinn og auk þess farið upp á hann og dældað hann með stappi. Bíllinn er stórskemmdur, en skemmdarvargarnir eru ófundnir. 6.3.2006 09:15
Reyndi af stinga af lögregluna Maður, sem ætlaði að stinga lögregluna af í nótt, missti stjórn á bíl sínum á mótum Skúlagötu og Ingólfsstrætis og hafnaði á vegg Seðlabankans. Ástæða þess að lögregla vildi hafa tal af maninum var að bílnum hafði verið stolið af bílasölu fyrir nokkrum dögum og það var líka ástæða þess að hann vildi ekki tala við lögregluna og reyndi að stinga af. Maðurinn slapp lítið meiddur en hann er auk þjófnaðarins grunaður um að hafa ekið undir áhrifum einhverskonar lyfja. 6.3.2006 08:54
3 loðnuskip leita enn að loðnu Aðeins þrjú loðnuskip eru enn að leita loðnu og eru þau öll inni á Breiðafirði, þar sem loðnan hrygnir og drepst. Önnur skip eru ýmist búin með kvóta sína eða hætt veiðum vegna lítillar veiði upp á síðkastið. 6.3.2006 08:15
Hópakstur gegn hraðakstri Fjöldi ökumanna úr mörgum samtökum bíla- og vélhjólaeigenda, tók þátt í hópakstri úr miðborginni upp í Ártúnshverfi og til baka í gærkvöldi, til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðarslysum upp á síðkastið. 6.3.2006 08:15
Deilt um hlutfall meðafla Frystitogarinn Venus, sem er í eigu HB Granda er enn í höfn í Tromsö í Noregi, eftir að norska strandgæslan tók togarann vegna meintra ólöglegra veiða og færði hann til hafnar í gærmorgun. 6.3.2006 08:12
Árni Magnússon í Íslandsbanka Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur ákveðið að láta af störfum og ráða sig til starfa hjá Íslandsbanka þar sem hann verður forstöðumaður á fjárfestinga- og alþjóðasviði. 5.3.2006 17:16
Gæslan gerir betur en herinn Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar segir að þegar hún taki yfir verkefni þyrlubjörgunarsveitar hersins fái herinn betri þjónustu en hann veitir sjálfum sér í dag. Viðbragðstími herþyrlna er einn og hálfur tími um helgar en hálftími hjá gæsluþyrlum - þegar þær eru í lagi. 5.3.2006 19:39
Jónínubréf á Netið Tölvupóstur, sem virðist innihalda afar viðkvæm og persónuleg einkabréf á milli Jónínu Benediktsdóttur og Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, hefur verið settur á bloggsíðu sem hýst er í Bandaríkjunum. Lögmaður Jónínu segir málið verða kært til lögreglu, en slóð þessara bréfa verði væntanlega hægt að rekja til þeirra sem létu Fréttablaðinu í té tölvupóst sömu aðila. 5.3.2006 19:32
Strætóferðir líklegar til Árborgar og Reykjanesbæjar Framkvæmdastjóri Strætós telur mjög líklegt að komið verði á reglubundnum strætóferðum milli höfuðborgarsvæðisins og Árborgar og Reykjanesbæjar. Sams konar ferðir til og frá Akranesi hafa gengið mun betur en búist hafði verið við. 5.3.2006 18:45
Stærsta hundasýning sem haldin hefur verið hér Það var allt annað en hundleiðinlegt í Reiðhöll Fáks um helgina, en þar fór fram stærsta hundasýning sem haldin hefur verið hérlendis. 5.3.2006 18:30
Gæsluvarðhald vegna hnífstunguárásar Annar mannanna sem handteknir voru vegna hnífsstunguárásar á mann á skemmtistaðnum Gauki á Stöng í fyrrinótt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til næsta föstudags. 5.3.2006 17:45
Vélsleðamanni haldið sofandi á gjörgæsludeild Manninum sem slasaðist er hann ók vélsleða sínum fram af snjóhengju á Langjökli í gær er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landsspítalans í Fossvogi, að sögn vakthafandi sérfræðings. 5.3.2006 17:19
Mannabreytingar í ríkisstjórn Íslands Mannabreytingar eru í uppsiglingu í ráðherraliði Framsóknarflokksins en þær verða kynntar eftir þingflokksfund í dag. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum NFS verður nýr ráðherrar skipaður í embætti en einnig verða einhverjir ráðherrar færðir til. 5.3.2006 16:04
Íslendingar fjárfestu jafnmikið og Bretar í Danmörku Íslendingar fjárfestu jafnmikið og Bretar í Danmörku árið 2004 en þessar tvær þjóðir vermdu toppsætin í kaupgleði á dönskum fyrirtækjum. Í Kaupmannahafnarpóstinum er greint frá því að árið 2004 hafi íslensk fyrirtæki fjárfest fyrir 6,2 milljarða danskra króna í Danmörku, eða um 60 milljarða íslenskra króna, sem er nánast sama upphæð og Bretar fjárfestu fyrir. 5.3.2006 15:30
Einnig ákvörðun um tilvist álversins í Straumsvík Bæjarstjórinn í Hafnarfirði, Lúðvík Geirsson, segir að ákvörðun um hugsanlega stækkun Alcan sé jafnframt ákvörðun um það hvort álver verði til frambúðar í Straumsvík eða ekki. Forsætisráðherra sagði í fréttum NFS í fyrradag að forsvarsmenn Alcan hefðu skýrt ríkisstjórninni frá því að ef álverið fengist ekki endurbætt eða stækkað, þá yrði því lokað á næsta áratug. 5.3.2006 14:30
Íslenskur togari grunaður um brot á norskum fiskveiðilögum Frystitogarinn Venus var tekinn til hafnar í Noregi í gær vegna gruns um brot á norskum fiskveiðilögum. Verið er að rannsaka málið en áhöfnin telur sig ekki hafa haft rangt við. 5.3.2006 13:59
Lögreglan hyggst leita eftir samstarfi vegna grófra árása Lögreglan hyggst leita eftir samstarfi við rekstraraðila veitingastaða í borginni til að reyna að sporna betur við vopnuðum árásum og öðru grófu ofbeldi á og við veitingastaði. Tveir menn urðu fyrir hnífsstungum um helgina og eru fimm í haldi vegna árásanna. 5.3.2006 12:45
TF SIF vonandi í gagnið á morgun Vonast er til þess að þyrla gæslunnar TF SIF komist í gagnið á morgun. Fjöldi ferðamanna er á ferð um helgina. Viðbragðstími Varnarliðsþyrlanna er einn og hálfur tími um helgar en hálftími hjá gæslunni - þegar þyrlurnar eru í lagi. 5.3.2006 12:45
Svipaðar kjarabætur og aðrir og breyttur vinnutími Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fá svipaðar kjarabætur og aðrir starfsmenn sveitarfélaga hafa fengið samkvæmt nýjum kjarasamningi sem undirritaður var af fulltrúum þeirra og launanefndar sveitarfélaga í nótt. Þá eru ákvæði um breytingar á vinnutíma. 5.3.2006 12:30
Jarðskjálfti upp á 4,3 á Richter norður af Grímsey Jarðskjálfti upp á 4,3 á Richter varð um 40 kílómetra norður af Grímsey upp úr klukkan tíu í morgun. Íbúar eyjarinnar urðu sumir hverjir greinilega varir við skjálftann en engar skemmdir urðu á mannvirkjum. 5.3.2006 12:14
Opið í Hlíðarfjalli og Tindastól í dag Opið er í Hlíðarfjalli við Akureyri í dag frá kl. 10-17. Flestar lyftur eru opnar og skíðafærið er troðinn þurr snjór að sögn forstöðumanns. Klukkan 8 í morgun var sjö gráðu frost og logn. Þá er einnig opið á skíðasvæði Tindastóls við Sauðárkrók frá klukkan 11-17. 5.3.2006 11:30
Guðmundur sigraði í Fjarðabyggð Guðmundur Þorgrímsson, oddviti í Austurbyggð, sigraði í gær í prófkjöri Framsóknarflokksins í fjórum sveitarfélögum á Austurlandi sem sameinast undir nafni Fjarðarbyggðar eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. 5.3.2006 11:00
Önnur hnífsstunga í miðborginni í nótt Ungur maður var stunginn með hnífi fyrir framan skemmtistaðinn Glaumbar við Tryggvagötu um hálf sexleytið í morgun. Hann var fluttur á slysadeild Landspítalans og liggur nú á gæsludeild. Þetta er önnur hnífsstungan í miðborg Reykjavíkur um helgina en í fyrrinótt var ungur maður stunginn inni á skemmtistaðnum Gauki á Stöng. 5.3.2006 10:30
Slökkviliðsmenn og launanefnd semja Skrifað var undir samninga í kjaradeilu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og launanefndar sveitarfélaganna klukkan fimm í nótt eftir um sextán tíma samningafund. Samningurinn er til þriggja ára og er sambærilegur þeim samningum sem launanefnd sveitarfélaganna hefur gert við aðra hópa. 5.3.2006 10:00
Landshlutapólitík í orkumálum bitnar á Suðurnesjamönnum Landshlutapólitík í orkumálum hefur skaðað Suðurnes, að mati forstjóra Hitaveitu Suðurnesja, Júlíusar Jónssonar, sem segir stjórnvöld hindra orkuöflunaráform fyrirtæksins á Reykjanesskaga. Hann telur Hitaveituna geta útvegað nægilega orku til að álver í Helguvík geti hafið starfsemi á árunum 2010-2011, eða um svipað leyti og álver á Húsavík. 4.3.2006 19:15
Hvorug þyrlan til taks Hvorug þyrla Landhelgisgæslunnar var til taks í dag þegar sækja þurfti slasaðan mann á Langjökul á sama tíma og tilkynning barst um strand við Reykjavík. Herþyrla sótti manninn á Langjökul en utan skrifstofutíma er viðbragðstími hennar tvöfalt lengri en gæslunnar. Björgunarsveitarmenn segja ástandið óviðunandi. 4.3.2006 19:11
Stríð í Straumi-Burðarási Átök eru í uppsiglingu í eigendahópi Straums-Burðaráss eftir að varaformanninum Magnúsi Kristinssyni var velt úr sessi í gærkvöldi. Magnús kallar þetta ruddalegan yfirgang "stráksins" Björgólfs Thors Björgólfssonar og mun krefjast hluthafafundar og uppgjörs. 4.3.2006 19:07
Hlýr sjór umhverfis Ísland Hafið umhverfis Ísland hefur hlýnað á ný eftir skammvinnt kuldakast í kjölfar hafíss í fyrra. Bæði hiti og selta sjávar eru nú yfir meðallagi. 4.3.2006 19:07
Framtíðarstörf auglýst í álveri Fjarðaáls Mannaráðningar til álversins í Reyðarfirði fara á fullt nú um helgina og verða hartnær fjögurhundruð starfsmenn ráðnir á næstu tólf mánuðum. Flutningsstyrkir verða í boði fyrir þá sem vilja flytjast á milli landshluta. 4.3.2006 18:59
Engin aðstaða fyrir hreyfihamlaða í húsakynnum Skáksambandsins Hreyfihamlaðir eru afar óánægðir með aðgengi í húsakynnum Skáksambandsins og hafa af þeim sökum ekki tekið þátt í skákmótum þar í fjölda ára. Formaður sambandsins segist líta á þetta sem forgangsmál. 4.3.2006 18:32
Maður sem stunginn var kominn úr lífshættu Maðurinn, sem var stunginn tvívegis í bakið á veitingastaðnum Gauki á Stöng í nótt, er úr lífshættu en hann hlaut mjög hættulega áverka á brjótsholi að sögn vakthafandi læknis. Líðan hans er eftir atvikum en hann er nú kominn af gjörgæsludeild á legudeild. 4.3.2006 18:02
Ljósmæður í heimaþjónustu samþykkja kjarasamning Ljósmæður í heimaþjónustu samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða nýgerðan kjarasamning Ljósmæðrafélags Íslands og samninganefndar heilbrigðisráðuneytisins á fundi í dag 4.3.2006 17:22
Kvarta undan seinagangi í kjaraviðræðum Starfsmannafélag Reykjavíkur lýsir vanþóknun sinni á seinagangi Orkuveitu Reykjavíkur og Félagsbústaða hf. við gerð nýrra kjarasamninga við félagið. 4.3.2006 17:15
Vélsleðamaður á gjörgæslu en ekki í lífshættu Vélsleðamaðurinn sem slasaðist á austanverðum Geitlandsjökli á Langjökli um hádegisbil í dag liggur nú á gjörgæsludeild. Hann er talsvert alvarlega slasaður og en ekki í lífshættu að sögn vakthafandi læknis. 4.3.2006 17:08
Þórarinn Óscar Þórarinsson <p><font color="#ff0000" size="1">Nýtt!</font> Óscarinn - Þórarinn B. segir sitt álit. 4.3.2006 16:00
Ljósmæður greiða atkvæði um nýjan kjarasamning Ljósmæður í heimaþjónustu koma saman nú klukkan fjögur þar sem kynntur verður kjarasamningur Ljósmæðrafélags Íslands og samninganefndar heilbrigðisráðuneytisins sem undirritaður var í gær. Jafnframt greiða ljósmæður um hann atkvæði. 4.3.2006 15:44
Prófkjör hjá framsóknarmönnum á Austurlandi Prófkjör er haldið í dag á vegum Framsóknarflokksins í fjórum sveitarfélögum sem munu sameinast við sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þetta eru Fjarðabyggð, Austurbyggð, Mjóafjarðarhreppur og Fáskrúðsfjarðarhreppur. 4.3.2006 15:15
Komið með slasaðan vélsleðamann til Reykjavíkur Þyrla varnarliðsins lenti klukkan þrjú við Landspítalann í Fossvogi með slasaðan vélsleðamann sem hún sótti á suðvestanverðan Langjökul. Maðurinn hrapaði um 40 metra fram af snjóhengju og er hann illa haldinn og grunur um innvortis meiðsl og áverka á hrygg. 4.3.2006 15:12
Tilkynnt um strandaðan bát við Jörundarboða Bátar frá björgunarsveitum í Reykjavík, Kópavogi og Seltjarnarnesi voru kallaðir út í dag vegna tilkynningar um að bátur hefði strandað við Jörundarboða sem er vestur af Lönguskerjum í Skerjafirði. 4.3.2006 15:00