Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sækist eftir lóðum á Fáskrúðsfirði Fjárfestingafélag hefur sótt um 23 lóðir á Fáskrúðsfirði. Svæðið er samkvæmt deiliskipulagi hugsað sem blönduð byggð eignar- og þjónustuíbúða. Forsvarsmenn sveitarfélagsins eru ánægðir með þennan áhuga, segir á vef Austurbyggðar, en fundað verður með lóðaumsækjandanum fljótlega. 30.8.2005 00:01
Íslandspósti seld skeytaþjónusta Síminn og Íslandspóstur hafa gert með sér samning um kaup hins síðarnefnda á skeytaþjónustu Símans en hún hefur verið hluti af þjónustu Símans frá aðskilnaði fyrirtækjanna árið 1998. Í tilkynningu frá félögunum kemur fram að skeytaþjónustan hafi tekið breytingum á undanförnum árum. 30.8.2005 00:01
Bruni hjá Kaffitári Það kviknaði í útfrá brennsluofni í kaffibrennslu Kaffitárs í Njarðvík á níunda tímanum í gærmorgun. Slökkvilið var látið vita og mætti þegar á staðinn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem borist hafði í loftstokk en reykræsta þurfti húsið að slökkvistarfi loknu. Einhverjar skemmdir urðu á brennsluofninum. 30.8.2005 00:01
Fleiri koma á þjónustusamningum "Lokamarkmið þessara verktaka er að ná í ódýrt, erlent vinnuafl," segir Finnbjörn Hermannson formaður Sambands iðnfélaga og segir töluvert af starfsmönnum vanta í byggingariðnað hér á landi. Hins vegar telji vinnumarkaðurinn sem Ísland er á um 400 milljónir starfsmanna á Evrópska efnahagssvæðinu. 30.8.2005 00:01
Sölubann og stytt veiðitímabil Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra kynnti í dag reglugerð um fyrirkomulag rjúpnaveiða haustið 2005. Samkvæmt henni verður sölubann á veiðibráð og rjúpnaafurðum og veiðitímabilið verður frá 15. október til 30. nóvember, en fyrir friðun voru veiðar leyfðar til 22. desember. 30.8.2005 00:01
Staðfesti varðhald vegna árásar Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir manninum sem tvístakk annan mann í bakið á bílastæðinu við Geirsgötu á Menningarnótt. Hann mun því sitja í gæsluvarðhaldi fram á föstudag, en árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps. 30.8.2005 00:01
Strákar játuðu innbrotafaraldur Fjórir drengir á aldrinum 18 til 16 ára játuðu allir fjölda innbrota og þjófnaða á höfðuborgarsvæðinu og víðar sem framdir voru á þessu og síðasta ári. Sá fimmti, 18 ára gamall, sem ákærður er fyrir aðild að málum mætti ekki við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 30.8.2005 00:01
Alvarleg brotalöm á smyglrannsókn Verjandi 37 ára gamals Litháa sem ákærður er fyrir að smygla hingað brennisteinssýru til fíkniefnaframleiðslu segir brotalöm í rannsókn sjálfkrafa kalla á sýknudóm. Maðurinn neitar sök og segist hafa ætlað að eiga hér ástarfund. </font /></b /> 30.8.2005 00:01
Mótmælti ekki gæsluvarðhaldi Sigurður Freyr Kristmundsson, sem játað hefur að hafa banað manni með hnífi að morgni 19. ágúst, mótmælti ekki úrskurði um frekara gæsluvarðhald yfir honum til 22. nóvember í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 30.8.2005 00:01
SF varar við ráðstefnupöntunum Samtök ferðaþjónustunnar hafa varað félagsmenn sína við ráðstefnupöntunum frá erlendum aðilum sem augljóslega eru að reyna að svíkja út peninga. Fólkið pantar gjarnan herbergi og fundaraðstöðu í 2-3 vikur, leggur áherslu á að greiða allt fyrirfram, sendir tékka eða kreditkortanúmer og óskar eftir að hluti greiðslunnar sé sendur aftur til baka sem umboðslaun eða framsendur til tiltekinna fyrirtækja. 30.8.2005 00:01
R-listi fengi átta borgarfulltrúa Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins hefði R-listinn meiri stuðning Reykvíkinga nú, en samanlagður stuðningur við samstarfsflokka um hann. Tæplega helmingur segist hefðu stutt R-listann hefði samstaða náðst um að bjóða aftur fram undir hans nafni. 30.8.2005 00:01
Auglýst eftir flaggara Bæjarstjórn Vesturbyggðar auglýsir nú á vefsíðu sinni eftir áhugasömum manni til að sjá um að flagga í fánastöngum á Bíldudal og Patreksfirði á þeim dögum og tímum sem við hæfa til flöggunar. 30.8.2005 00:01
Barnavændi á Íslandi Upplýsingar um skipulagt barnavændi á Íslandi koma fram í viðtalsbók eftir Gerði Kristnýju sem væntanleg er í haust. Bókin byggist á viðtali við hafnfirska konu á fertugsaldri sem lýsir reynslu sinni af því hvernig hún var þvinguð í vændi sem barn. 30.8.2005 00:01
Hafi keypt flöskur í Póllandi Litháinn sem flutti tvær flöskur af brennisteinssýru til landsins neitar því alfarið að hafa vitað um sýruna. Hann hafi keypt flöskurnar á útimarkaði í Póllandi og komið hingað til lands eingöngu til að hitta ástmey sína. Verjandi mannsins gagnrýnir rannsóknargögn málsins. 30.8.2005 00:01
Utanríkisráðherra í Færeyjum Opinber heimsókn Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra til Færeyja hófst í gærkvöldi. 30.8.2005 00:01
Árni Þór vill annað sæti V-lista Árni Þór Sigurðsson Vinstri grænum, sem skipaði efsta sæti R-listans í síðustu borgarstjórnarkosningum, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti lista Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar næst vor. 30.8.2005 00:01
Blásið til sóknar gegn garnaveiki Dýralæknar hyggjast herða enn baráttuna gegn garnaveiki í sauðfé. Markmið þeirra er að hægt verði að leggja bólusetningar af. Það hefði í för með sér minni kostnað, betri afurðir og betri meðferð á skepnunum. </font /></b /> 30.8.2005 00:01
Rannsókn á Vioxx að hefjast Landlæknisembættið er að hrinda úr vör rannsókn á afleiðingum aukaverkana gigtarlyfsins Vioxx hér á landi. Hæstaréttarlögmaður segir niðurstöður hennar geti hugsanlega leitt til málshöfðunar af hendi þeirra sem notuðu Vioxx og fengu hjartaáfall. </font /></b /> 30.8.2005 00:01
Samkeppni einkum á matvælamarkaði Samkeppnin er aðallega á matvælamarkaði og þó svo að krónan lækki er alls ekki víst að innfluttar vörur hækki. 30.8.2005 00:01
Hálfunnið amfetamín frá Póllandi Hálfunnið amfetamín frá Póllandi er sent til landa víða um heim og fullunnið þar. Til þess þarf brennisteinssýru eins og fannst í farangri Litháa á mánudaginn. Lögreglan telur að fíkniefnahundar myndu finna slíkt efni og segja að hægt sé að þjálfa þá til að finna brennisteinssýru. 30.8.2005 00:01
Hvatt til hófstilltrar rjúpnaveiði Rjúpnaveiðitímabilið verður sjö vikur og verða veiðimenn hvattir til hófstilltra veiða. Þá er algjört sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum. Umhverfisráðherra kynnti nýja reglugerð um rjúpnaveiðar í dag. 30.8.2005 00:01
Helmingur starfsmanna Íslendingar Íslendingar eru helmingur starfsmanna Alcoa í Reyðarfirði. Innkaup fyrirtækisins á Íslandi nema nú um tíu milljörðum króna. 30.8.2005 00:01
Hryggskekkja vaxandi vandamál Hryggskekkja barna og unglinga vegna langvarandi setu er vaxandi vandamál, en dæmi eru um að börn niður í 10 ára aldur sæki þjónustu sjúkraþjálfara vegna stoðkerfisvandamála. 30.8.2005 00:01
Æfðu viðbrögð við hryðjuverkum Mikill hvellur varð þegar skotið var á bílsprengju á Keflavíkurflugvelli í dag. Engin hætta var þó á ferðum enda þar samankomnar margar frægustu sprengjueyðingarsveitir í Evrópu. 30.8.2005 00:01
R-listinn héldi meirihlutanum Reykjavíkurlistinn hefði nú stuðning tæplega helmings Reykjavíkurbúa og héldi völdum í borginni, hefðu samstarfsflokkarnir þrír ákveðið að bjóða aftur fram undir hans nafni. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Fréttablaðsins. 30.8.2005 00:01
Íhuga að skjóta mávinn Mávum hefur fjölgað verulega í höfuðborginni í sumar og hefur borgaryfirvöldum borist óvenjumikið af kvörtunum vegna þessa. Þetta kom fram í svari frá umhverfissviði Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Gísla Marteins Baldurssonar, varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, á fundi umhverfisráðs borgarinnar. 30.8.2005 00:01
Þegar Davíð lagði Albert Margir spá því að komandi prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, geti orðið sögulegt. Ekki síst þar sem keppt er um fyrsta sætið í fyrsta skipti frá því árið 1981. Þá sigraði Davíð Oddsson naumlega og varð síðar borgarstjóri. 30.8.2005 00:01
Veiðimenn hvattir til hófsemi Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra tilkynnti í gær að hún hefði ákveðið að leyfa rjúpnaveiðar á ný. 30.8.2005 00:01
Sóknarnefndin hafði sigur Sóknarnefnd Garðasóknar hafði sigur í kosningu á fjölsóttum átakafundi safnaðarins. Kosið var um þrjú sæti af sjö í sóknarnefnd, sem ráða úrslitum um hvar völdin liggja og féllu þau sóknarnefndinni í hlut. 30.8.2005 00:01
Hafi ekki skemmt þak Stjórnarráðs Mennirnir tveir sem klifruðu upp á Stjórnarráðsbygginguna síðastliðinn föstudag til að mótamæla álversframkvæmdunum í Reyðarfirði segja að það hafi aldrei verið ásetningur þeirra að vanvirða minningu Guðmundar Benediktssonar sem flaggað hafði verið fyrir í hálfa stöng fyrr um daginn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem mennirnir hafa sent frá sér. Þeir vísa því á bug að hafa valdið skemmdum á byggingunni og benda á að þak hússins sé í hörmulegu ástandi. 29.8.2005 00:01
Æfa viðbrögð við sprengjuárásum Fjölþjóðleg æfing sprengjueyðingarsveita, Northern Challenge, hefst í dag. Landhelgisgæslan og varnarliðið standa að æfingunni en markmið hennar er að líkja eftir raunverulegum hryðjuverkum og æfa viðbrögð við þeim. Æfð verða viðbrögð við sjálfsmorðssprengjuárásum og sprengingum á flugvöllum, í höfnum og um borð í skipum. Þátttakendur eru um 100 talsins, en helmingur þeirra kemur frá sex erlendum sprengjueyðingarsveitum. 29.8.2005 00:01
Vilji til að mæta óskum LHÍ um lóð Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefur lýst yfir vilja til að mæta óskum Listaháskólans um lóð í tengslum við fyrirhugað tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð við Austurhöfnina í Reykjavík. Þetta kemur í bréfi sem rektori Listaháskólans hefur borist frá borgarstjóranum og háskólinn hefur birt. 29.8.2005 00:01
Konur jafnvel færari en karlar Konur eru jafn færar og karlmenn, ef ekki færari, segir Cherie Booth Blair. En út er komin skýrsla um stöðu kvenna í heiminum og hún lítur ekki vel út að mati Booth Blair. 29.8.2005 00:01
Enn í öndunarvél eftir bruna Konan sem bjargað var út úr brennandi íbúð við Stigahlíð í fyrradag er enn í öndunarvél á gjörgæsludeild. Hún brenndist illa og varð fyrir reykeitrun og sagði vakthafandi læknir ekkert hægt að segja um batahorfur að svo stöddu. 29.8.2005 00:01
DV hafi brotið gegn siðareglum <em>DV</em> braut alvarlega gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands, samkvæmt úrskurði siðanefndar félagsins, vegna forsíðufréttar um starfsmann Landspítalans sem var á gjörgæsludeild með hermannaveiki. 29.8.2005 00:01
Kennsludagar of fáir í 50% skóla Kennslu- og prófdagar reyndust færri en lög gera ráð fyrir í tæplega helmingi framhaldsskóla landsins í fyrra, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Vinnudagar kennara voru færri en gert er ráð fyrir í kjarasamningum í fjörutíu prósentum skólanna. 29.8.2005 00:01
100-200 ár milli stórra bylja Fellibyljir á borð við Katrínu ganga yfir þennan hluta Bandaríkjanna á 100 til 200 ára fresti. Loftþrýstingurinn í miðju bylsins er rétt um 915 millíbör, sem gerir það að verkum að sjór lyftist um fleiri metra þar sem hann gengur yfir, að sögn veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 29.8.2005 00:01
Sjálfstæðismenn fengju meirihluta Sjálfstæðismenn fengju hreinan meirihluta í borginni, eða níu menn kjörna, ef kosið yrði til borgarstjórnar nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Hvorki Framsóknarflokkurinn né Frjálslyndir næðu manni inn í borgarstjórn. 29.8.2005 00:01
Fjölþjóðleg sprengjueyðingaræfing Fjölþjóðleg æfing sprengjueyðingarsveita, Northern Challenge 2005, hefst í dag. Landhelgisgæslan og varnarliðið standa fyrir æfingunni en markmið hennar er að æfa viðbrögð við ýmiss konar hryðjuverkum, svo sem sjálfsmorðssprengjuárásum og sprengingum á flugvöllum, í höfnum og um borð í skipum. 29.8.2005 00:01
Krefjast sjálfstæðis Svarfaðardals Hópur íbúa í hinum gamla Svarfaðardalshreppi hefur sent öllum þingmönnum bréf þar sem krafist er sambandsslita við hið sameinaða byggðarlag, Dalvíkurbyggð. Íbúarnir eru óánægðir með þá ákvörðun bæjarstjórnar að loka Húsabakkaskóla frá 1. mars síðastliðnum. 29.8.2005 00:01
JB styrkir Stígamót næstu þrjú ár Stígamót hafa gert þriggja ára samning við JB byggingafélag um styrk til reksturs sjálfshjálparhópa ásamt viðhaldi á húsnæði samtakanna. Starfsemi Stígamóta er umfangsmikil og hefur aukist á síðustu árum. Í tilkynningu frá Stígamótum kemur fram að á hverju ári leiti um 500 manns til samtakanna, þar af helmingur sem leitar hjálpar í fyrsta skipti. 29.8.2005 00:01
Nakapunda teflir fjöltefli í Bónus Namibíski skákmeistarinn Otto Nakapunda teflir fjöltefli við Bónus í Kringlunni í dag milli klukkan fjögur og sex. Nakapunda hefur verið hér á landi síðustu vikurnar í skákþjálfun á vegum Hróksins auk þess sem hann skrapp til Grænlands á skákmót. Ferðina hingað vann hann á skákmóti í Namibíu fyrr á árinu. 29.8.2005 00:01
Karlmenn þurfa að opna augun Cherie Booth Blair segir að úrræði í barnagæslu sé ástæðan fyrir því að jafnrétti kynjanna er hvað mest á Norðurlöndunum. Mikilvægt sé að ræða jafnréttismál og karlkyns leiðtogar þurfi að opna augun fyrir annari forgangsröðun og þörfum kvenna. </font /></b /> 29.8.2005 00:01
Mannauður kvenna ónýttur "Við vitum af reynslu okkar héðan frá Íslandi sem og af samanburði erlendis frá að það er mikill munur á stöðu karla og kvenna í öllum samfélögum," sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra á ráðstefnu kvenkyns menntamálaráðherra í gær. 29.8.2005 00:01
Þetta er sögulegur fundur "Þetta er sögulegur fundur," sagði Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, á ráðstefnu kvenkyns menningarmálaráðherra sem nú stendur yfir í Reykjavík. 29.8.2005 00:01