Fleiri fréttir

Helmingur vill sjálfstæðismann

Gísli Marteinn Baldursson er sá sem flestir Reykvíkingar vilja sem borgarstjóra, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Mun færri nefna nafn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur. 47 prósent nefna sjálfstæðismann sem borgarstjóra. Mjög fáir nefna einstaklinga innan Framsóknarflokks, Frjálslynda flokksins og Vinstri grænna.

Ræðarar fá hvergi að vera

Þótt lögreglusamþykkt Árborgar banni umferð farartækja um Ölfusá notar Kayakklúbburinn hana gjarnan fyrir æfingasvæði. Nokkrir ungir félagsmenn frá Hveragerði voru sektaðir fyrir nokkru og hefur klúbburinn nú beðið lögfræðing að kanna lögmæti samþykktarinnar.

Brot DV mjög alvarlegt

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands telur DV hafa brotið mjög alvarlega gegn 3. grein siðareglna blaðamannafélagsins með nafn- og myndbirtingu af manni sem lá þungt haldinn af hermannaveiki. "Mjög alvarlegt" er þyngsti mögulegi úrskurður nefndarinnar. Sonur mannsins kærði umfjöllun blaðsins á sínum tíma. 

Bakarar og eigandi afgreiða

"Ég er búinn að vera í þessum bransa í þrjátíu ár svo ég veit það vel að oft er erfitt að fá starfsfólk á þessum tíma en ég man ekki eftir því að ástandið hafi nokkurn tíman verið svona slæmt," segir Birgir Páll Jónsson eigandi Nýja Kökuhússins í Kringlunni en hann sinnir nú afgreiðslustörfum þar sem ekki hefur tekist að manna þau störf hjá fyrirtækinu.

Verður til í heitum sjó

Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfréttamaður segir Katrínu fá orkuna sem hún losi úr sjónum Hann segir að til þess að fellibylur myndist þurfi hitastig sjávar að verða meira en 28 gráður. Þegar Katrín hafi myndast hafi sjórinn verið 32-33 gráður þannig að allar forsendur til myndunar á mjög öflugum fellibyl hafi verið fyrir hendi.

Pakkaði niður og lagði á flótta

"Þegar við heyrðum að fellibylurinn væri kominn upp í fimmtu kategoríu pökkuðum við bara saman, læstum húsinu og fórum," segir Elín Jóhanna Svavarsdóttir. Hún býr í New Orleans en lagði á flótta ásamt meðleigjanda sínum í fyrradag og hélt áleiðist til Houston þar sem þau munu halda til hjá vinum.

Synti Vestfirðina

Sjórinn var kaldari en ég átti von á en á móti kemur að allstaðar fékk ég hlýrri móttökur en ég bjóst við," segir sundkappinn og fjöllistamaðurinn Benedikt Sigurðsson Lafleur sem lauk í gærkvöldi Vestfjarðasundi sínu þegar hann kom syndandi yfir þveran Ísafjörð.

Staða kvenna í heiminum ekki góð

Konur eru jafnfærar og karlmenn, ef ekki færari, segir Cherie Booth Blair. En út er komin skýrsla um stöðu kvenna í heiminum. Hún lítur hreint ekki vel út að mati Booth Blair.

Fleiri vilja leiða sjálfstæðismenn

Útlit er fyrir að framboð Gísla Marteins Baldurssonar til efsta sætis á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík verði til þess að fleiri sækist eftir því að leiða listann. Guðlaugur Þór Þórðarson verður þó ekki einn þeirra því flest bendir til að hann ætli að hætta sem borgarfulltrúi.

Óþarfi sé að fjarlægja aukahluti

Samkvæmt nýrri reglugerð er útfarastjórum gert að finna alla aukahluti sem græddir hafa verið í hinn látna áður en hann er grafinn eða brenndur. Landlæknir hefur óskað eftir breytingum á reglugerðinni. Útfarastjórar hafi ekki menntun til slíkra aðgerða og óþarfi sé í raun að fjarlægja alla aukahluti.

Fjölbreytni í dagskrá Þjóðleikhúss

Fjölbreytnin ræður ríkjum í vetrardagskrá Þjóðleikhússins - söngur, gaman, konunglegur barnaballet og rússnesk gestasýning er meðal þess sem þar verður boðið upp á.

Flestir vilja Gísla Martein

Flestir Reykvíkingar vilja Gísla Martein Baldursson sem næsta borgarstjóra samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Tæpur fjórðungur þeirra sem tóku afstöðu valdi hann.

Stóra verkefnið að sigra í vor

"Ég er þakklátur fyrir þessa könnun og finnst gaman að sjá að fólk hefur trú á mér sérstaklega að því að könnunin var tekin áður en ég lýsti því yfir að ég stefndi á fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins," segir Gísli Marteinn Baldursson.

Þakklátur fyrir stuðninginn

"Ég er mjög þakklátur fyrir þann stuðning sem ég fæ í þessari könnun en maður hlýtur alltaf að spyrja sig hvernig þetta er gagnvart væntanlegum kjósendum Sjálfstæðisflokksins," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, leiðtogi Sjálfstæðismanna í borgarstjórn um skoðanakönnun Fréttablaðsins.

Voðalega glaður

"Ég segi fyrir mig að ég er voðalega glaður með þessa niðurstöðu en ég ætla ekki að gefa neitt út um aðra," segir Stefán Jón Hafstein um niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttablaðsins sem sýnir að hann er annar á lista þeirra sem Reykvíkingar vilja helst fá sem borgarstjóra.

82 ára sótti um vinnu á Hrafnistu

Fólk á áttræðisaldri er meðal umsækjenda um umönnunarstörf á dvalarheimilum Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði sem voru auglýst fyrir skömmu að sögn Steinunnar Þorsteinsdóttur hjá starfsmannaþjónustu Hrafnistu. Elsti umsækjandinn er 82 ára. hann sótti um starf í mötuneyti Hrafnistu.

Væri til í að vinna kauplaust

"Mér finnst ég vera það hraustur að ég geti hjálpað til í eldhúsi," segir Theodór Jóhannesson, sem sótti nýverið um starf í mötuneyti Hrafnistu. Hann segist til dæmis geta vaskað upp og unnið önnur létt verk.

Vonast eftir frelsi á hverri stund

Búast má við að Rick Perry, ríkisstjóri Texas, afgreiði tillögur löggjafarþings Texas um lausn Arons Pálma Ágústssonar úr fangelsi í Texas í þessari viku. Að sögn Einars S. Einarssonar, talsmanns RJF-hópsins sem berst fyrir frelsi Arons Pálma, má jafnvel búast við ákvörðun í dag og segir hann að stóra stundin geti senn verið að renna upp.

Heiðraður hermaður sakfelldur

Ronald Ellis, liðþjálfi hjá bandaríska flughernum á Keflavíkurflugvelli, var nýverið dæmdur í ellefu mánaða herfangelsi fyrir að nota og selja kókaín og hindra framgang réttvísinnar.

Ólæti í miðborginni

Hópur manna reyndi að koma í veg fyrir handtöku tvítugs manns með því að ráðast að lögreglu í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Það varð úr að fjórir voru handteknir og færðir á lögreglustöðina. Tveir þeirra gistu fangageymslur á samt sjö öðrum sem ýmist sátu inni fyrir ölvunarakstur eða ölvunarlæti. Alls voru sjö teknir fyrir ölvun við akstur.

Skólahald ekki hafið á Suðureyri

Kennsla við Grunnskólann á Suðureyri hófst ekki í síðustu viku, eins og annars staðar á landinu, vegna byggingaframkvæmda við skólalóðina, sem eru hálfu ári á eftir áætlun. Netútgáfa Bæjarins besta á Ísafirði greinir frá þessu.

Erill á Akureyri í nótt

Sex fíkniefnamál komu upp á Akureyri yfir helgina, öll minniháttar, þar sem lagt var hald á kannabisefni og hvít efni, sem gætu verið amfetamín eða kókaín en ekki er búið að greina efnin.

Gísli Marteinn með fund í Iðnó

Gísli Marteinn Baldursson varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins ætlar að tilkynna í dag hvaða sæti hann stefnir á að ná í prófkjöri flokksins sem fram fer í haust. Stuðningsmenn Gísla hafa boðað til fundar í Iðnó klukkan 3 í dag.

Fjöldi fíkla hefur þrefaldast

Fjöldi fíkla sem nota ólögleg vímuefni hefur þrefaldast undanfarin tíu ár að því er fram kemur í ársriti SÁÁ. Vandinn er meiri en nokkru sinni fyrr og eru vímuefnafíklar veikari en nokkru sinni fyrr.

Óbreytt líðan

Líðan konunnar sem slasaðist í eldsvoða í Stigahlíð í gærmorgun er óbreytt. Hún er enn þungt haldin og er henni haldið sofandi í öndunarvél á Landspítala háskólasjúkrahúsi.

Býður sig fram í fyrsta sætið

Gísli Marteinn Baldursson hefur tilkynnt að hann ætli bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi prófkjöri í haust.

Hlupu frá slysstað

Klukkan 07:05 barst lögreglu tilkynning frá vegfaranda að bifreið hefði farið útaf Ólafsfjarðarvegi skammt norðan við bæinn Hvamm og hefðu 2 menn verið í bifreiðinni.  Í tilkynningunni kom einnig fram að menn þessir væru nú á gangi til norðurs eftir Ólafsfjarðarvegi. 

Tap vegna ólöglegra DVD diska

Gríðalega háar fjárhæðir tapast á hverju ári vegna ólöglegrar framleiðslu og sölu DVD-mynda. Sextíu prósent Hollywood-mynda koma út í tapi og má rekja stóran hluta þess til ólöglegrar framleiðslu myndanna.

Lélegt lundavarp í Vestmannaeyjum

Kalt vor, lítið æti í sjónum og norðanhretið á stóran þátt í því að lundavarp hefur verið lélegt í Vestmannaeyjum og fáar pysjur komist á legg. Sandsílið er horfið úr sjónum og lundinn leitar nú á önnur mið en sænál hefur verið hans aðalæti í sumar.

Tónlistarhús kynnt í október

Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi, segir að tónlistar- og ráðstefnuhöllin sem mun rísa á hafnarbakkanum sé eitt albesta og frambærilegasta uppbyggingarverkefni Íslandssögunnar. Hún verður kynnt landsmönnum í október. Gert er ráð fyrir að höllin verði opnuð árið 2009.

Baráttuhugur í Gísla Marteini

Gísli Marteinn Baldursson ætlar í borgarstjóraslaginn, segist treysta sér í baráttuna og ætlar að berjast eins og ljón. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson gefur einnig kost á sér í fyrsta sæti listans og má því búast við baráttu innan flokksins.

Fjöldi eiturlyfjafíkla þrefaldast

Fleiri á biðlistum eftir vímuefnameðferð deyja en áður, og fíklarnir eru veikari nú en nokkru sinni fyrr, að sögn yfirlæknis á Vogi. Fjöldi eiturlyfjafíkla hefur þrefaldast hér á landi á síðustu tíu árum.

Vímuefnamarkaðurinn skipulagðari

Þórarinn Tyrfingsson telur eins og lögreglan að tilraun til smygls á brennisteinssýru í vikunni sé merki um að amfetamín sé framleitt hér á landi. Hann segir margt benda til tengsla Íslands við alþjóðlega glæpastarfsemi.

Taka verður á launamálum

Ekki er hægt að útdeila plássum sem losnað hafa nýlega á leikskólanum Nóaborg fyrr en tekist hefur að ráða fólk í þrjú stöðugildi. Borgarstjóri telur að taka verði á launamálum í kjarasamningum en segir ástandið ekki eiga að seinka loforðum um gjaldfrjálsan leikskóla.

Ánægður með stöðumælana

Margir kaupmenn við Laugaveginn eru að mestu ánægðir með stöðumælakerfið í Reykjavíkurborg þar sem það kemur í veg fyrir að stæðin fyllist til lengri tíma. Þeir eru þó spenntir að sjá hvernig tekst til með klukkukerfið á Akureyri.

Uppgröftur á Skriðuklaustri

Verið er að byggja upp útveggi Skriðuklausturs á Austurlandi og geta nú gestir og gangandi upplifað gamla tíma með því að skrifa með fjaðrastaf og bleki, sem búið er til með aldagamalli aðferð á staðnum.

Verðlaunahafarnir vinna saman

Þau undur og stórmerki urðu á Íslandsmótinu í kranastjórnun á föstudag að þeir þrír sem unnu til verðlauna vinna allir hjá sama fyrirtækinu. Heitir það Feðgar ehf og sinnir alhliða byggingaverktöku.

Kærustupar selur græjur á netinu

Vefverslunin portus.is tók nýlega til starfa en í gegnum hana er hægt að kaupa hljómtæki af ýmsum stærðum og gerðum. Eigendur portus.is eru kærustuparið Drengur Óla Þorsteinsson og Jóna Benný Kristjánsdóttir sem búsett eru á Höfn í Hornafirði.

Bæjarstjóraskipti á Álftanesi

Guðmundur G. Gunnarsson tók á föstudag við embætti bæjarstjóra Álftaness af Gunnari Val Gíslasyni sem verið hefur bæjarstjóri í rúm þrettán ár.

Afsönnum kannanirnar

"Þetta eru svipaðar tölur og birtust manni lengi fram eftir í kosningabaráttunni fyrir fjórum árum," segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins, um niðurstöður skoðanakönnunarinnar.

Verða að halda vel á spilunum

Sjálfstæðismenn mega vel við una en samt er kálið ekki sopið þótt í ausuna sé komið. Þetta segir prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands um niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins á fylgi reykvísku stjórnmálaflokkanna.

Yrðu slæm úrslit fyrir borgarbúa

"Það væri slæmt fyrir borgarbúa ef úrslit kosninga yrðu á þennan veg," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri og borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins fengi Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta ef kosið væri nú.

Ísland og Víetnam semja

Fyrir helgi skrifuðu Gunnar Snorri Gunnarsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins og Vu Dung, sérlegur fulltrúi forsætisráðherra Víetnam, undir tvíhliða samning Íslands og Víetnam um viðskipti milli landanna.

Borgarstjóri fáorður um gagnrýni

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, segist ekki mikið hafa að segja um gagnrýni Össurar Skarphéðinssonar, fyrrum formanns Samfylkingarinnar, á hennar orð í gær.

Sjá næstu 50 fréttir