100-200 ár milli stórra bylja 29. ágúst 2005 00:01
Fellibyljir á borð við Katrínu ganga yfir þennan hluta Bandaríkjanna á 100 til 200 ára fresti. Loftþrýstingurinn í miðju bylsins er rétt um 915 millíbör, sem gerir það að verkum að sjór lyftist um fleiri metra þar sem hann gengur yfir, að sögn veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Veðurfræðingar hafa fylgst með tilurð og ferðalagi Katrínar undanfarna daga og kom snemma í ljós að hún yrði einn af þeim stóru. New Orleans liggur við ósa Mississippifljóts, mjög lágt og þess vegna geta afleiðingarnar orðið svona hrikalegar ef Katrín gengur beint yfir borgina. En hversu stór er hún eiginlega? Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir erfitt fyrir Íslendinga að átta sig á þessu þar sem þeir búi ekki á fellibyljasvæði. Fellibyljir séu tiltölulega litlir um sig og svæðið þar sem þeir blási af fullum styrk sé ekki gríðarlega stórt. Þeim fylgi gjarnan mikil úrkoma. Það sé þó ekki vandamálið í suðurríkjum Bandaríkjanna heldur fremur lágur loftþrýstingur í miðju bylsins. Talað sé um að hann sé 915 millíbör í miðjunni, en hann hafi aldrei mælst svo lágur hér á landi, og það hafi í för með sér að yfirborð sjávar lyftist um 6-8 metra. Á því svæði sem Katrín komi inn, við óshólma Mississippi-árinnar sem hafi hlaðist upp á síðustu árþúsundum og lengst talsvert eftir að New Orleans var byggð, sé afskaplega láglent og yfirgnæfandi líkur á því að sjór gangi á land á mjög stóru landsvæði. En fyrst fellibyljirnir eru ekki það miklir um sig, er það þá bara óheppni eða tilviljun að hann lendir á New Orleans? Einar segir það auðvitað tilviljun en að á þessum stað megi menn alltaf gera ráð fyrir að það komi fellibylur af þessum styrk á 100-200 ára fresti, jafnvel oftar. Þó svo að þetta hafi ekki gerst síðustu 100-200 árin hafi menn alltaf mátt eiga von á því að einhverju sinni myndi slá til. Spurður hvort þetta sé eins og þegar Íslendingar bíði eftir Suðurlandsskjálfta tekur Einar að nokkru leyti undir það en bendir jafnframt á snjóflóð úr fjalli. Vitað sé af hættunni þar en það falli ekki stórt snjóflóð nema á nokkur hundruð ára fresti.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira