Fleiri fréttir

Gjaldskrá leigubíla hækkuð

Í gær hækkaði gjaldskrá leigubifreiða á landinu um rúm átta prósent og er startgjald leigubíla í dag þá orðið 470 krónur en var 430 áður.

Innflytjendur hafa góð áhrif

Meirihluti Íslendinga telur að innflytjendur hafi góð áhrif á efnahagslífið en aðeins sextán prósent telja áhrifin slæm. Þetta eru niðurstöður könnunar sem IMG Gallup gerði fyrir Rauða krossinn. Neikvæðustu viðhorfin eru gagnvart múslímum og geðfötluðum.

Tillaga um flugvöll á Lönguskerjum

Fulltrúar FL group og Flugfélags Íslands hafa rætt við skipulagsyfirvöld í Reykjavík um að nýr flugvöllur rísi á Lönguskerjum eða Álftanesi. Formanni skipulagsráðs Reykjavíkurborgar líst vel á hugmyndir flugfélaganna.

Pólitískur undirtónn í Baugsmálinu

Í umfjöllun erlendra fjölmiðla um Baugsmálið er ásökunum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á hendur Davíð Oddssyni gefið mikið vægi. Fjölmiðlarnir fjórir sem skoðaðir voru sérstaklega segja allir að pólitískan undirtón megi greina í málinu. Einn segir íslenskt viðskiptaumhverfi fyrir rétti og annar að Baugur útiloki ekki að höfða skaðabótamál. </font /></b />

Lögregla ósátt við aðdróttanir

Framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna er mjög ósáttur við aðdróttanir að undanförnu þess efnis að hægt sé að stjórna lögreglunni að vild.

Verðbólga minnst á Íslandi

Verðbólga mælist minnst á Íslandi af löndum á evrópska efnahagssvæðinu. Það skal þó tekið fram að í þessum mælikvarða er vísitala eigin húsnæðis ekki tekin með. Ef sú eining er tekin með mælist verðbólgan 3,7 prósent.

Fjöldi mála í rannsókn

Átakið Einn réttur - ekkert svindl sem Alþýðusamband Íslands hleypti af stokkunum í vor gengur vel en fjölmörg mál hafa komið til kasta þeirra tveggja starfsmanna sem með þau fara.

Þrjú verkefni fengu háan styrk

Þrjú íslensk verkefni fengu samtals um áttatíu milljónir íslenskra króna í styrk frá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vegna Leonardo da Vinci starfsmenntunaráætlunar 2005. Er þetta næst hæsta upphæð sem Ísland hefur fengið úthlutað úr áætluninni frá því Ísland hóf að taka þátt árið 1995.

Ný marglyttutegund

Ný marglyttutegund fannst inn í Klauf, rétt við Stórhöfða, í Vestmannaeyjum í morgun að því er fram kemur á vef Eyjafrétta. Athugull maður rakst á þessa furðutegund og lét menn hjá Rannsóknarsetrinu vita.

Fjármálaráðuneyti hafnaði áskorun

Fjármálaráðuneytið hafnaði áskorun Félags íslenskra bifreiðareigenda um lækkun skatta á bensíni fyrir bifreiðar. Á heimasíðu FÍB segir að félagið vænti þess að erindi um lækkun skatta á bensíni hafi verið tekið fyrir hjá ríkisstjórninni þó að á svarbréfinu virðist sem það hafi eingöngu verið tekið fyrir hjá fjármálaráðuneytinu.

Harma umferðaslys

Stjórn og starfsmenn Strætó bs. sendu frá sér fyrir stundu yfirlýsingu þar sem þeir harma alvarlegt umferðarslys strætisvagns og vörubíls í Reykjavík í dag. Vagnstjórinn slasaðist alvarlega og er nú á gjörgæslu í kjölfar aðgerðar sem hann gekkst undir. Fjórir af sex farþegum vagnsins voru útskrifaðir eftir skoðun en tveir eru enn undir eftirliti lækna þó meiðsl þeirra séu ekki talin alvarleg.

Mannekla hefur slæm áhrif

Leiðbeinandi á leikskólanum Sjónarhóli segir manneklu valda því að ekki sé hægt að stunda markvissa vinnu í leikskólanum. Launin verði að hækka til þess að fá hæft fólk til starfa. Foreldri er undrandi á því að vandamál vegna manneklu komi upp á hverju ári.

Skólastarf hefst í dag

Skólahald í grunnskólum Reykjavíkurborgar hefst á mánudaginn. Rúmlega fimmtán þúsund nemendur koma til með að stunda nám við skólana í vetur, sem er svipaður fjöldi og í fyrra.<font face="Helv"></font>

Skiptar skoðanir um flugvöll

Samstarfsnefnd samgönguráðherra og borgarstjóra kannar nú hvort flugvöllur á Lönguskerjum geti komið í stað Reykjavíkurflugvallar. Sturla Böðvarsson segir þetta framtíðarmál enda sé í gildi skipulag til ársins 2024. Forstjóri Flugleiða telur flugvellinum áfram best fyrirkomið í Vatnsmýrinni.

Leyfislausir leigubílstjórar

"Það eru nokkur mál í skoðun hjá okkur í dag og slík mál koma nokkuð reglulega upp," segir Sigurður Hauksson hjá eftirlitsdeild Vegagerðarinnar. Er Sigurður þar að tala um mál er varða misnotkun á atvinnuleyfum leigubílstjóra en eitthvað virðist um að óprúttnir fari ekki að lögum og reglum hvað þau varðar.

Tildrög óljós

Strætisvagnstjóri liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild eftir að strætisvagn og vörubíll skullu saman á gatnamótum Suðurlandsbrautar, Laugavegar og Kringlumýrarbrautar um klukkan níu í morgun.

Vill kaupa heilt iðnaðarsvæði

"Seltjarnarnesbær hefur ekki tekið neina formlega afstöðu til þessara viðskipta," segir Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.

Kjötfjöll úr sögunni

Hátt í fimmtíu tonn af kjöti hafa verið flutt til landsins á þessu ári. Neysla lambakjöts hefur aukist það mikið að allt kjöt frá síðustu sláturtíð klárast í haust.

Aldnir mega aka rútum

"Frá umferðaröryggissjónarmiði er þetta aldeilis út úr kú og ég mun beita mér fyrir því að þessu verði breytt," segir Birgir Hákonarson, framkvæmdastjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu.

Flestir ánægðir með innflytjendur

Flestir Íslendingar eru tiltölulega ánægðir með innflytjendur hérlendis og áhrif þeirra á efnahagslífið, samkvæmt nýrri könnun Rauða kross Íslands. Þó vildi rúmur fimmtungur síður að múslímar byggju í nánd við þá.

Ófagleg vinnubrögð hjá Framsókn

Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi túlkar uppákomuna í borgarráði í hádeginu í gær sér í hag. Hann segir þetta þó ekki fagleg vinnubrögð hjá framsóknarmönnum.

Verðbólgukippur í aðsigi

KB-banki spáir því að verðbólga taki kipp á næstu mánuðum. Ekkert lát er á hækkun fasteignaverðs. Nýjasta vísitölumæling sýnir hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu um 3,4 prósent á aðeins einum mánuði og hækkun á sérbýli um 50 prósent á einu ári.

Bíða álits forsætisnefndar

Þingflokkur Samfylkingarinnar hyggst bíða með að birta upplýsingar um fjárhags- og hagsmunatengsl þingmanna sinna þar til forsætisnefnd hefur fjallað um málið og ákveðið hvort setja skuli almennar reglur fyrir þingmenn um slíkt. Framsóknarmenn gagnrýna þetta og kalla eftir efndum.

Setning HR og Tækniháskólans

Fyrsta skólasetning sameinaðs skóla, Tækniháskólans og Háskólans í Reykjavík var í dag. Metfjöldi umsókna er um vist í skólanum eða átján hundruð og fékk liðlega helmingur skólavist. Boðið verður upp á tíu nýjar námsbrautir, en meðal þeirra eru verkfræðigreinar sem ekki hefur verið boðið upp á hér á landi áður, svo sem fjármála- og heilbrigðisverkfræði.

Vilja síður múslima sem nágranna

Tuttugu og tvö prósent Íslendinga vilja ekki búa í næstu íbúð við múslima ef marka má könnun sem IMG Gallup gerði fyrir Rauða kross Íslands um viðhorf Íslendinga gangvart minnihlutahópum.

Búist við fjölmenni í miðbæinn

Búist er við fjölda fólks á Menningarnótt en þó færri gestum en á síðasta ári þegar 104.000 manns voru í miðbænum. "Það verður prýðilegasta veður yfir daginn," segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur. "Það verða smá skúrir fyrripartinn en þornar upp þegar líður á daginn en vindurinn verður eilítið meiri með kvöldinu."

Vill ekki flugvöll á Löngusker

"Þeir hugsa nú bara um sjálfa sig þessir kappar og hugsa ekki um aðra," segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og líst ekkert á hugmyndir um byggingu nýs flugvallar á Lönguskerjum sem borgaryfirvöld hafa rætt um við fulltrúa FL Group og dótturfélags þess, Flugfélags Íslands.

Deilt um breytingar á leiðakerfi

Ágreiningur í stjórn Strætó bs. á fundi í gær varð til þess að Björk Vilhelmsdóttir stjórnarformaður dró til baka tvær tillögur sínar um breytingar á þjónustu strætisvagna. Meirihluti stjórnar telur að kostnaður við breytingar á þjónustutíma, leiðakerfi og tímatöflum verði of mikill.

Dróst 20 metra með vörubílnum

Sjö voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur strætisvagns og vörubifreiðar á gatnamótum Laugavegs, Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar á tíunda tímanum í gærmorgun.

R-listinn endanlega úr sögunni

Samfylkingin ætlar að bjóða fram eigin lista fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Þetta var ákveðið á fundi fulltrúaráðs Samfylkingarinnar sem haldinn var í gærkvöldi.Þar með er ljóst að R-listinn er úr sögunni, en samstarf félagshyggjuflokkanna í Reykjavík hefur staðið yfir í tæp tólf ár.

Ekki alvarlega slösuð eftir fall

Þriggja ára stúlka féll niður á steinsteypt hlöðugólf, úr nokkurra metra hæð, í Staðarsveit á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Stúlkan hlaut áverka á höfði og var flutt með þyrlu landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítala háskólasjúkrahúss.

Eldur í bíl á Akureyri

Eldur kom upp í bíl á Akureyri í gærkvöldi og sýndu starfsmenn Norðurleiðar mikið snarræði þegar þeir hlupu með slökkvitæki á staðinn og aðstoðuðu bílstjórann við að slökkva eldinn.

Gagnrýna aðgerðir lögreglu

Náttúruverndarsamtök Íslands gagnrýna harðlega aðgerðir lögreglu og Útlendingastofnunar gegn hópi fólks sem mótmælt hefur umhverfisspjöllum við Kárahjúka og byggingu álbræðslu við Reyðarfjörð.

Eldur í blokk í Hafnarfirði

Eldur kom upp í þriggja hæða fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í nótt, en tilkynnt var um eldinn um klukkan tuttugu mínútur í tvö. Lögreglumenn í Hafnarfriði höfðu náð að slökkva eldinn með handslökkvitæki þegar bílar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins komu á vettvang.

Oddaflug ekki yfirtökuskylt

Yfirtökunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Eignarhaldsfélagið Oddaflug sé ekki yfirtökuskylt í FL Group vegna þeirra breytinga sem urðu á eignarhaldi í félaginu þann 1. júlí. Félagið Oddaflug er í eigu Hannesar Smárasonar, stjórnarformanns FL Group. Hlutabréf í FL Group hafa lækkað í verði á markaði eftir að félagið birti sex mánaða uppgjör.

Nemendum fer hægt fjölgandi

Leiða má líkum að um 105 þúsund einstaklingar hefji nám í skólum landsins í næstu viku en flestir skólar hefja starfsemi sína þá eftir sumarfrí. Voru nemendur alls tæp 104 þúsund talsins á öllum skólastigum í fyrrahaust en allmargir skólar hafa tilkynnt um aukinn fjölda nemenda milli ára.

Tafir í Leifsstöð vegna vatnsleka

Allt að helmingi innritunarborða í Leifstöð hefur verið lokað þar sem vatnsrör sprakk á þriðju hæð byggingarinnar í morgun sem olli vatnstjóni á fyrstu hæð. Starfsfólk flugstöðvarinnar vill þar af leiðandi biðja farþega sem halda út með flugi í dag að mæta tímanlega því búast má við einhverri töf í innritun.

Saurgerlar í Munaðarnesi

Saurgerlar og Kampfýlobakteríur hafa fundist í drykkjarvatni orlofshúsa í Munaðarnesi í Borgarnesi. Viðvörun vegna þessa hefur verið dreift til íbúa á svæðinu.

Sér eftir R-listanum

R-listinn hefur sungið sitt síðasta. Á fulltrúaráðsfundi Samfylkingarinnar í gærkvöldi var ákveðið að flokkurinn byði fram undir eigin nafni í næstu borgarstjórnarkosningum. Formaður Samfylkingarinnar horfir á eftir listanum með eftirsjá.

Stjórnarseta ekki hagsmunaárekstur

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar telur enga hagsmunaárekstra felast í því að hún eigi sæti í stjórn Seðlabankans.

Skrif um Baugsmálið í Bretlandi

Breskir fjölmiðlar fjalla áfram um Baugsmálið en á mjög misjöfnum nótum. Öll helstu dagblöðin eru með blaðamenn hér á landi til að kanna ákærurnar og viðbrögð við þeim.

Hafa birt sex brottvísunarbréf

Búið er að birta sex mótmælendum brottvísunarbréf Útlendingastofnunar, en um tugur þeirra hefur nú þegar farið af landi brott. Verið er að skoða gögn varðandi hugsanlega kæru mótmælenda á hendur Ríkislögreglustjóra.

Kaffihús í Hljómskálagarðinn

"Þetta er í raun gömul hugmynd sem mér fannst vera tími til kominn að hrinda í framkvæmd," segir Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.

Velta dagvöruverslunar eykst

Samkvæmt mælingum Rannsóknaseturs verslunarinnar var velta í dagvöruverslun 10,2% meiri í júlí síðastliðnum en í sama mánuði árið 2004, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga.

Sjá næstu 50 fréttir