Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sýnir málverk í Hljómskálagarðinum Einar Hákonarson listmálari ætlar að sýna hátt í níutíu málverk í tveimur stórum tjöldum í Hljómskálagarðinum í Reykjavík í ágúst. Sýningin hefst kvöldið fyrir Menningarnótt, stendur yfir í um tíu daga og ber nafnið: Í grasrótinni. 12.7.2005 00:01
30.000 evrópsk sjúkratryggingakort Tæplega 32 þúsund Íslendingar fengu sér evrópska sjúkratryggingakortið hjá Tryggingastofnun í maí og júní. Viðtökurnar hafa verið mun betri en reiknað var með en áður en útgáfa kortanna hófst þann 1. maí var gert ráð fyrir því að um þrjátíu þúsund kort yrðu gefin út á árinu. 12.7.2005 00:01
Áhyggjur af framtíð kjarasamninga Kerfisbreytingin vegna dísilolíunnar veldur hækkun á vísitölu neysluverðs. Alþýðusamband Íslands segir hækkun vísitölunnar ekki koma á óvart og þar á bæ hafa menn áhyggjur af framtíð kjarasamninga. 12.7.2005 00:01
Minni losun gróðurhúsalofttegunda Heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda minnkaði um rúmt prósent milli áranna 2002 og 2003. Helstu ástæður lækkunarinnar eru minna útstreymi frá sjávarútvegi og landbúnaði en útstreymi frá samgöngum, iðnaði og byggingarstarfsemi jókst milli ára. 12.7.2005 00:01
Íslensk börn fá ekki nóg D-vítamín Hátt hlutfall íslenskra barna fær ekki nægilega mikið D-vítamín dag hvern að sögn Ingu Þórsdóttur næringarfræðings, sem rannsakað hefur D-vítamínneyslu íslenskra barna. 12.7.2005 00:01
Foreldrarnir vilja áfrýjun Foreldrar stúlku sem beið bana þegar ekið var á hana við Bíldudal í fyrra vilja að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. Héraðsdómur Vestfjarða vísaði bótakröfu þeirra frá þar sem ekki hafi verið um stórfellt gáleysi að ræða. 12.7.2005 00:01
PFS vill skýringar á viðgerðartöf Póst- og fjarskiptastofnun hefur ritað forsvarsmönnum Farice sæstrengsins bréf þar sem óskað er eftir skýringum á óhóflegu rofi á þjónustunni fyrir um hálfum mánuði síðan. 12.7.2005 00:01
Grunur um morð á Íslendingi Lík af manni á fertugsaldri sem fannst í Suður-Afríku um helgina er sagt kunna vera af íslendingi sem búið hefur í Jóhannesarborg í um tíu ár. Yfirvöld hér heima hafa sent lögreglu í Suður-Afríku fyrirspurnir vegna málsins, en ekki er vitað af hverjum líkið er. 12.7.2005 00:01
Kvaðir lagðar á símafyrirtæki Póst- og fjarskiptastofnun ætlar að leggja nýjar kvaðir á bæði Símann og Og Vodafone í tengslum við greiningu markaða í farsímarekstri, en slíka greiningu segist stofnunin eiga að framvæma lögum samkvæmt. 12.7.2005 00:01
Öryggismyndavél með símkorti Hafin er sala á nýrri eftirlitsmyndavél frá Nokia sem sögð er geta hentað fyrir heimili og eins til að hafa auga með sumarbústöðum. 12.7.2005 00:01
Ólafur 19 - Davíð 17 Skothríð hélt áfram við Reykjavíkurhöfn í dag, þriðja daginn í röð. Skipverjar á rússneskan herskipinu Lesjenkó aðmíráli skutu nítján heiðursskotum í loftið, Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, til heiðurs en hann skoðaði skipið í dag. Forsetinn fékk tveimur heiðursskotum meira en Davíð Oddsson utanríkisráðherra sem var á sömu slóðum í gær. 12.7.2005 00:01
Sló mann með brotinni glerflösku Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær tvítugan karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir líkamsárás á menningarnótt árið 2003. Fimm mánuðir eru skilorðsbundnir. Þá skal hann greiða ákæranda 60.000 krónur í skaðabætur og lögmannskostnað. Hann sló ítrekað til kæranda með brotinni flösku og olli alvarlegum, en þó ekki lífshættulegum, áverkum. 12.7.2005 00:01
Loftbrú frá Íslandi í sextíu ár Íslendingar hafa síðustu sextíu árin notið þess að tengjast öðrum löndum með reglubundnu áætlunarflugi. Þessum tímamótum var fagnað á flugvellinum í Glasgow í gær þar sem gamli og nýi tíminn í fluginu mættust í bókstaflegri merkingu. 12.7.2005 00:01
Konum á gæsluvöllum sagt upp Össur Skarphéðinsson segir að verið sé að brjóta loforð með því að segja upp tuttugu og tveimur konum á gæsluvöllum borgarinnar. Guðlaugur Þór Þórðarson segir konunum sýnt virðingarleysi. 12.7.2005 00:01
Útkall vegna eldri manns Allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út um níuleytið í gærkvöld vegna 65 ára manns sem hafði ekki skilað sér af Esjunni. Maðurinn hafði farið að heiman um hádegið og búist var við honum síðdegis. 12.7.2005 00:01
Grunur um morð á Íslendingi Grunur leikur á að Íslendingur hafi verið myrtur í Suður-Afríku og líki hans komið fyrir í tunnu fullri af steypu. Tvennt er í haldi lögreglunnar vegna málsins. 12.7.2005 00:01
Hella de Islandia Þó aðeins séu fimmtán Chílebúar skráðir sem íbúar á Hellu er þetta samfélag mun stærra. Fjölmargir hafa færst sig um set og búa nú á Hvolsvelli en eru í góðum tengslum við granna sína og landa á Hellu. 12.7.2005 00:01
Rúta vó salt á vegkanti Skelfing greip um sig í hópi þrjátíu erlendra ferðamanna sem voru um borð í rútu sem var rétt farin út af veginum á Steingrímsfjarðarheiði í gær. Vegkantur gaf sig og fór rútan hálf út af veginum og vó þar salt. 11.7.2005 00:01
Ræningjarnir yfirheyrðir í dag Mennirnir tveir sem rændu lyfjum úr apótekinu í Austurveri í gær og peningum á Dominos Pizzu í Spönginni, vopnaðir hnífi og skrúfjárni, eru enn í haldi lögreglu og verða yfirheyrðir nánar í dag. Meðal annars verður kannað hvort þeir hafi fleiri afbrot á samviskunni. 11.7.2005 00:01
Fékk veiðarfærin í skrúfuna Fiskibátur sem var að veiðum skammt frá Vestmannaeyjum í nótt fékk veiðarfærin í skrúfuna og varð við það vélarvana og stjórnlaus. Skipstjóri kallaði á Lóðsinn í Eyjum til aðstoðar sem dró bátinn til hafnar í Eyjum. 11.7.2005 00:01
Ók á 150 þegar hann sá stúlkuna Tæplega nítján ára piltur var í Héraðsdómi Vestfjarða dæmdur í eins mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Hann ók á fjórtán ára stúlku á Bíldudalsvegi síðasta sumar. Sjálfur segist hann hafa verið á 150 kílómetra hraða þegar hann sá stúlkuna. 11.7.2005 00:01
Framtíð R-listans að ráðast Það gæti ráðist á fundi viðræðunefndar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna í dag hvort R-lista flokkarnir bjóða áfram sameiginlega fram fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. 11.7.2005 00:01
Vopnað rán í Domus Medica Vopnað rán var framið í Lyf og heilsu í Domus Medica við Egilsgötu fyrir stundu. Maður með klút fyrir andlitinu og hníf í hendi kom inn í apótekið og ógnaði starfsfólki. Ræninginn beitti hnífnum þó ekki en hafði lítilræði af lyfjum á brott með sér. 11.7.2005 00:01
Lýstu yfir fullu trausti Allir starfandi læknar á kvennadeild Landspítalans sögðust í yfirlýsingu í mars á síðasta ári bera fullt traust til þess fæðingarlæknis sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á föstudag fyrir stórfellt gáleysi. Yfirmaður lækninga á kvennadeild vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofan leitaði eftir því en læknamistökin urðu til þess að ungbarn lést. 11.7.2005 00:01
Fyrstu hettusóttartilfellin í 6 ár Hettusótt, sem ekki hefur greinst hér á landi síðan árið 1999, greindist nýverið í þremur einstaklingum. Tveir þeirra sem sýktust höfðu ekki verið bólusettir gegn hettusótt að því er fram kemur í farsóttarfréttum frá Landlæknisembættinu. 11.7.2005 00:01
Niðurskurður kynntur starfsmönnum Niðurskurður í starfsemi Ríkisútvarpsins verður að öllum líkindum kynntur starfsmönnum RÚV á fundi síðar í vikunni. 11.7.2005 00:01
Skoða rússneska kafbátaskipið Til stendur að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Davíð Oddsson utanríkisráðherra heimsæki rússneska kafbátaskipið Aðmírál Levchenko í dag. Skotið verður úr fallbyssum til heiðurs þeim við komu þeirra um borð. 11.7.2005 00:01
Harður árekstur í Húnavatnssýslu Harður árekstur varð í Húnavatnssýslu á Þjóðvegi eitt á móts við bæinn Vatnshorn rétt fyrir klukkan eitt. Einn hlaut beinbrot en aðrir slösuðust minniháttar. 11.7.2005 00:01
Kúabændur fari yfir skipulagið Landsamband Kúabænda hvetur kúabændur til að fara yfir framleiðsluskipulag búa sinna þar sem framleiða þarf meiri mjólk. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri afurðastöðva var mjólkurframleiðslan í júní 9,9 milljónir lítra en í júní í fyrra var hún 10,1 milljón lítra. 11.7.2005 00:01
Ráðinn framkvæmdastjóri Samson Birgir Már Ragnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samson eignarhaldsfélags ehf. en félagið fer með um 45% eignarhlut í Landsbanka Íslands. Birgir Már er fæddur árið 1974 og lauk hann embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 1999. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í lögum frá Lagaskóla Harvard árið 2003. 11.7.2005 00:01
Fleiri dauðsföll sökum inflúensu Infúensa í byrjun árs er talin hafa valdið því að dánartölur fyrstu tíu vikur ársins eru mun hærri en meðaltalið segir til um. Fyrstu tvær vikurnar í febrúar létust á bilinu 55 til 60 hvora viku sem er yfir efri viðmiðunarmörkum. 11.7.2005 00:01
Ráðinn deildarforseti á Bifröst Bernhard Þór Bernhardsson hefur verið ráðinn deildarforseti viðskiptadeildar Viðskiptaháskólans á Bifröst. Hann hefur þegar tekið til starfa en Magnús Árni Magnússon, fráfarandi forseti viðskiptadeildar, er nýráðinn deildarforseti félagsvísinda- og hagfræðideildar skólans. Átta sóttu um stöðuna. 11.7.2005 00:01
Ræningjans enn leitað Lögreglan leitar enn manns sem framdi vopnað rán í Lyf og heilsu í Domus Medica upp úr klukkan hálf eitt í dag. Maðurinn, sem var með klút fyrir andlitinu og hníf í hendi, kom inn í apótekið og ógnaði starfsfólki. 11.7.2005 00:01
Langir biðlistar í sólina Annir eru á ferðaskrifstofum þessa dagana vegna sóknar fólks í að komast í sólarlandaferðir. Víðast hvar er fullbókað og biðlistar langir. Reynt er eftir megni að fjölga flugsætum og gistirýmum. Dæmi eru um að fólk fresti sumarleyfum sínum þar til það kemst í sólina. </font /></b /> 11.7.2005 00:01
Strandblakvellir á Þingeyri Unnið er að gerð tveggja strandblakvalla við íþróttamiðstöðina á Þingeyri að því er fram kemur á Þingeyrarvefnum. 11.7.2005 00:01
Í lopapeysu með grænan hatt Lögreglan í Reykjavík leitar enn manns sem framdi vopnað rán í verslun Lyf og heilsu í Domus Medica í hádeginu í dag. Maðurinn, sem er lágvaxinn og grannur, var klæddur í rauðleita lopapeysu með röndum á ermum og með grænan hatt. Hann er talinn vera á aldrinum 20 til 30 ára. 11.7.2005 00:01
Vendipunktur hjá R-listanum Ákveðinn vendipunktur varð á fundi fulltrúa aðildarflokka R-listans í dag að því er segir í tilkynningu frá fundarmönnum. Hvað þar var um að ræða er ekki útskýrt nánar. 11.7.2005 00:01
Þarfnast brýnnar endurskoðunar Neyðarskipulag almannavarna þarfnast brýnnar endurskipulagningar. Liðin eru þrettán til fimmtán ár síðan skipulagið var síðast endurskoðað en upphaflega var gengið út frá því að endurskoðun færi fram á fimm ára fresti að sögn Björns Halldórssonar, deildarstjóra almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. 11.7.2005 00:01
Rændi lyfjum vopnaður hnífi Ungur maður vopnaður hnífi réðst inn í verslun Lyf og heilsu í Domus Medica við Eiríksgötu í hádeginu í gær. Maðurinn var með klút fyrir andlitinu er hann hljóp inn í búðina, ógnaði starfsfólki með hnífnum og stökk yfir búðarborðið þar sem hann rótaði í lyfjaskúffum. Maðurinn hafði lyf á brott með sér en ekki er talið að um verulegt magn hafi verið að ræða. 11.7.2005 00:01
Harður árekstur tveggja vörubíla Vörubílstjóri var fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavíkur eftir mjög harðan árekstur tveggja vörubifreiða og fólksbíls við Vatnshorn í Húnaþingi vestra eftir hádegi í gær. Annar vörubílstjórinn slasaðist minna og tveir sem í fólksbílnum voru sluppu nær ómeiddir. 11.7.2005 00:01
R-listi: Viðræðum haldið áfram Flokkarnir þrír sem standa að R-listanum ákváðu rétt fyrir klukkan sex að halda áfram viðræðum um samstarf. Fyrr í dag hótuðu framsóknarmenn í samninganefnd fyrir R-listann að hætta samstarfinu ef Samfylkingin kæmi ekki með nýtt útspil á fundi flokkanna sem haldinn var síðdegis. 11.7.2005 00:01
Koizumi ræddi hvalveiðimál Halldór Ásgrímsson átti í gær fund með Junichiro Koizumi, starfsbróður sínum í Japan. Samstarf ríkjanna í hvalveiðimálum bar á góma að frumkvæði Koizumi og samkvæmt frétt Associated Press mun Halldór hafa sagt við Koizumi að ef Íslendingar hæfu atvinnuveiðar á hval myndu finnast leiðir til að starfa með Japönum. 11.7.2005 00:01
Félagsþjónusta á síðasta ári Alls fengu 14.475 heimili í Reykjavík þjónustu hjá Félagsþjónustunni á síðasta ári. Algengasta þjónustan sem var veitt eru húsaleigubætur og nokkra athygli vekur að fjöldi þiggjenda var mun meiri á síðasta ári en árið 2003, en það var á síðari hluta síðasta árs sem bankarnir komu inn á íbúðalánamarkaðinn. 11.7.2005 00:01
Davíð skoðar Aðmírálinn Davíð Oddson forsætisráðherra heimsótti um tvöleytið í gær rússneska kafbátaskipið Aðmíral Levchenko, sem liggur við Reykjavíkurhöfn. Í samræmi við alþjóðlegar hefðir var skotið sautján sinnum úr fallbyssum skipsins við komu hans í það. 11.7.2005 00:01
Ætlar ekki að svara Helga Magnús Stefánsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, sagðist í bréfi sem hann sendi Helga Hjörvar alþingismanni ekki telja í sínum verkahring að leita svara við einstökum spurningum, sem kunna að vakna í huga nefndarmanna um sölu ríkisbankanna. 11.7.2005 00:01