Konum á gæsluvöllum sagt upp 12. júlí 2005 00:01
Össur Skarphéðinsson, alþingismaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir Reykjavíkurlistann harkalega í pistli á heimasíðu sinni í gær. Össur segir að með uppsögnum Reykjavíkurborgar á tuttugu og tveimur konum á gæsluvöllum borgarinnar sé verið að brjóta loforð sem þeim hafi verið gefin. "Hér er vont mál á ferðinni. Ég sem jafnaðarmaður ætlast til þess að Sjálfstæðisflokkurinn kæmi ekki svona fram við starfsfólk Reykjavíkurborgar væri hann við völd og fráleitt að við sem styðjum R-listann sættum okkur við það af hans hálfu," segir Össur. Menntaráð Reykjavíkurborgar samþykkti í mars að semja við konurnar sem um ræðir um að þær tækju að sér ný störf hjá Reykjavíkurborg eða við þær yrði gerður starfslokasamningur. Konunum var hins vegar sent bréf í lok síðasta mánaðar þar sem fram kom að starfslok þeirra miðuðust við 1. september og þær fengju einungis greiddan uppsagnarfrest. Það er að frumkvæði Guðlaugs Þórs Þórðarson, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem umrætt mál var tekið á dagskrá menntaráðs. Hann segist ítrekað hafa tekið málið upp fyrir hönd sjálfstæðismanna á fundum ráðsins en það hafi hlotið ágætis hljómgrunn en svo hafi ekkert staðið sem samþykkt hafi verið á fundum ráðsins. "Þessum konum er sýnt takmarkalaust virðingarleysi. Mikið af þessum konum eru búnar að vinna nær alla sína starfstíð hjá Reykjavíkurborg við þessi störf, hafa veitt frábæra þjónustu og um það er ekki deilt og nú þegar verið er að leggja þessi störf niður þá sjá forystumenn borgarinnar ekki sóma sinn í því að ganga frá málum þannig að einhver bragur sé á. Starfslokasamningar hafa verið gerðir fyrir um hundrað og tíu milljónir króna á síðustu árum þannig að ekki um fordæmi að ræða. Svona gera menn ekki. Þessar konur eiga betra skilið," segir Guðlaugur Þór. Ekki náðist í Stefán Jón Hafstein, formann menntaráðs.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Sjá meira