Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ungar hetjur verðlaunaðar Neyðarlínan er til þess að hringt sé í hana í neyð. Þau skilaboð fengu þrjár ungar hetjur hjá Rauða krossinum í dag. 16.2.2005 00:01
Í varðhaldi fram í mars Íslendingurinn sem tekinn var í Danmörku með 35 kíló af hassi í síðustu viku hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 2. mars næstkomandi samkvæmt upplýsingum dönsku lögreglunnar. 16.2.2005 00:01
Færa þarf sendiráð BNA Davíð Oddsson utanríkisráðherra tók undir það með Merði Árnasyni, þingmanni Samfylkingarinnar, í fyrirspurnatíma á Alþingi í gær að staðsetning bandaríska sendiráðsins í Þingholtunum væri ekki heppileg. 16.2.2005 00:01
Þorsteinn situr á eigin forsendum Að undanskildum Þorsteini Pálssyni, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, hefur enginn sendiherra gegnt trúnaðarstarfi fyrir stjórnmálaflokka. 16.2.2005 00:01
Misskipting fer vaxandi Hver íbúi í Reykjavík fær að meðaltali um 10 þúsund krónur í fjárhagsaðstoð á ári og greiðir Reykjavíkurborg um 1,2 milljarða í fjárhagsaðstoð á ári. Það er allt að tífalt hærra á hvern íbúa en í öðrum sveitarfélögum. </font /></b /> 16.2.2005 00:01
Lúðvík útilokar ekkert Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingar úr Suðurkjördæmi, útilokar ekki að hann bjóði sig fram í embætti varaformanns flokksins. 15.2.2005 00:01
ASÍ kannar orsakir fasteignaverðs "Okkur finnst eins og reyndar fleirum í þjóðfélaginu að eitthvað sé bogið við þessa eilífu þróun fasteignaverðs upp á við," segir Grétar Þorsteinsson, formaður Alþýðusambands Íslands. Innan sambandsins hyggjast menn kanna hvað valdi. 15.2.2005 00:01
Munur á vatnsgjaldi eftir búsetu Kópavogsbúar þurfa að borga um tvöfalt meira fyrir neysluvatn en Reykvíkingar. 15.2.2005 00:01
Slapp vel eftir hátt fall Iðnaðarmaður féll hátt á fjórða metra ofan af húsi á Ísafirði í gær en slapp ótrúlega vel. Hann var fluttur á sjúkrahúsið og kom þá í ljós að hann var ekkert brotinn en síðan hefur hann gengist undir rannsóknir til að kanna hvort hann hafi meiðst eitthvað innvortis. 15.2.2005 00:01
Margir stöðvaðir fyrir hraðakstur Lögreglan í Kópavogi stöðvaði hátt í þrjátíu ökumenn í gærkvöldi og í nótt fyrir of hraðan akstur í bænum. Sá sem hraðast fór mældist á 130 kílómetra hraða þar sem hámarkshraðinn er 70 kílómetrar. Auk þessa voru nokkrir ökumenn sektaðir fyrir annars konar umferðalagabrot. Sektir vegna hraðabrotanna hlaupa að líkindum á hundruðum þúsunda króna. 15.2.2005 00:01
Aðeins búið að veiða helming kvóta Þrátt fyrir góða loðnuveiði eru loðnuskipin ekki búin að veiða nema um það bil helming af 780 þúsund tonna kvóta á þessari vertíð. Ótíð og fremur dræm veiði upp á síðkastið hefur dregið kraftinn úr veiðunum en sjómenn vonast til að nýjar göngur komi upp á landgrunnið sem hægt verði að veiða. 15.2.2005 00:01
Enn fækkar fólki á Vestfjörðum 225 manns fluttu af höfuðborgarsvæðinu til Vestfjarða í fyrra, sem er mun meira en áður. Það nægði þó ekki til að stöðva fólksfækkun á Vestfjörðum því 346 Vestfirðingar fluttu á höfuðborgasvæðið. Ef aðeins er litið á brottflutninginn frá Vestfjörðum þá lætur nærri að tíu prósent Vestfirðinga hafi flutt í aðra landshluta í fyrra. 15.2.2005 00:01
Ákærð fyrir stórfellt smygl Sjö manns, fimm karlmenn og tvær konur, eru ákærðir fyrir smygl á eitt þúsund e-töflum og 130 grömmum af kókaíni í janúar í fyrra. Efnið kom með pósti til landsins. 15.2.2005 00:01
Þorskhængar syngja og dansa Norskir fiskifræðingar hafa komist að því að þorskhængar syngja og dansa til að laða til sín hrygnur, sem vilja að þeir svilji hrogn þeirra. 15.2.2005 00:01
Rætt um endurkomu Kristins Stjórn þingflokks Framsóknarflokksins hefur átt í viðræðum við Kristin H. Gunnarsson að undanförnu um að hann endurheimti fyrri stöðu í nefndum Alþingis. Búist er við að það dragi til tíðinda á sérstökum þingflokksfundi í kvöld. Formaður þingflokksins segir þó eingöngu um reglubundinn kvöldverðarfund þingflokksins að ræða. 15.2.2005 00:01
Kristall Plús fer á markað Umhverfisstofnun hefur leyft Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni að setja vítamínbætt sódavatn á markað, en Lýðheilsustöð hafði gert athugasemdir við það. 15.2.2005 00:01
Benda á fjármálaráðherra Verð á áfengi hér á landi er ekki svo hátt vegna hárrar álagningar heildsala heldur vegna ofurskattlagningar á áfengi. Þetta segir Félag íslenskrar stjórkaupmanna í yfirlýsingu sem send hefur verið út vegna ummæla Geirs H. Haarde fjármálaráðherra 11. febrúar þar sem hann hvatti áfengisheildsala til að lækka álagningu á áfengi. 15.2.2005 00:01
Mistök í útkalli á Vestfjörðum Sjúkrabíll frá Ísafirði var kallaður til fyrir mistök þegar óskað var eftir aðstoð eftir að 73 ára maður í Bolungarvík hafði hnigið niður meðvitundarlaus. Sjúkrabíllinn frá Ísafirði var fimmtán mínútur á leiðinni en það hefði tekið sjúkrabíl úr Bolungarvík mun styttri tíma að komast á staðinn. Þegar sjúkrabíllinn kom að var maðurinn látinn. Greint er frá þessu á vefsíðu Bæjarins besta á Ísafirði. 15.2.2005 00:01
Áfengisgjald skýrir ekki hátt verð Hátt áfengisgjald hér á landi skýrir ekki eitt og sér hátt verð á léttvíni og bjór á íslenskum veitingahúsum heldur er álagning veitingamanna á bilinu 130 til 360 prósent. Samgönguráðherra lét taka saman skýrslu um verð á áfengi vegna umræðu um það að áfengisgjaldið skekki samkeppnisstöðu Íslands sem ferðamannalands. 15.2.2005 00:01
Atvinnuleysi minnkar á landinu Samkvæmt nýjum tölum frá Vinnumálastofnun fjölgaði atvinnulausum örlítið í janúar frá því í desember. Þegar búið er að leiðrétta atvinnuleysistölur fyrir árstíðabundnum sveiflum sést hins vegar að atvinnuleysi er í raun að minnka um þessar mundir og hefur árstíðaleiðrétt atvinnuleysi ekki verið minna síðan í júlí 2002. 15.2.2005 00:01
Bannað að auglýsa lægra verð Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest úrskurð samkeppnisráðs um að Orkunni sé óheimit að auglýsa að hún bjóði lægra eldsneytisverð en aðrar bensínstöðvar. Atlantsolía, Ego og Olíuverzlun Íslands kvörtuðu til Samkeppnisstofnunar vegna auglýsinga Orkunnar. Í úrskurði áfrýjunarnefndar segir að Orkunni hafi ekki tekist að sanna þær fullyrðingar að fyrirtækið bjóði jafnan lægra eldsneytisverð en aðrir. 15.2.2005 00:01
Hreint og klárt lögbrot Þær aðstæður sem föngum í fangelsinu á Akureyri er gert að búa við eru hreint og klárt lögbrot að áliti Margrétar Frímannsdóttur alþingismanns. Hún segir að úrbótum í málefnum fanga hafi lítið miðað, en nú kveði við nýjan tón hjá nýjum fangelsismálastjóra. </font /></b /> 15.2.2005 00:01
Bóndi beri ekki skít á freðna jörð Umhverfisráð hefur veitt neikvæða umsögn um beiðni hænsnabónda á Kjalarnesi um að fá að dreifa húsdýraáburði á freðna jörð. 15.2.2005 00:01
Hátt í 100 miltisbrandsstaðir Hátt í hundrað tilkynningar um staði sem taldir eru miltisbrandssýktir hafa borist Sigurði Sigurðarsyni dýralækni sauðfjár- og nautgripasjúkdóma hjá yfirdýralæknisembættinu. 15.2.2005 00:01
Átök vegna samkynhneigðra mörgæsa Tvær karlkyns mörgæsir í dýragarði í Bremerhaven í Þýskalandi hafa vakið harðar deilur um réttindi samkynhneigðra þar í landi. Mörgæsakarlanir urðu ástfangnir og mega nú ekki hvor af öðrum sjá. Yfirmenn dýragarðsins hafa brugðist við með þeim hætti að fá kvenmörgæsir frá dýragarði í Svíþjóð til að freista karlanna. 15.2.2005 00:01
Dæmdur fyrir margvísleg brot Tuttugu og sex ára karlmaður var dæmdur í tíu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir margvísleg auðgunarbrot og brot a fíkniefnalöggjöfinni. Frá fangelsisdómnum dregst gæsluvarðhald í tvo og hálfan mánuð. Maðurinn hefur komið við sögu lögreglu vegna ótal fíkniefnabrota og áður fengið skilorðsbundna fangelsisdóma fyrir þjófnaði og fíkniefnabrot. 15.2.2005 00:01
Búa í hjólhýsum eða á loftum Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, segir að upplýst hafi verið að fyrirtæki "geymi" erlenda verkamenn, sem komið hafa ólöglega til starfa á Íslandi, í hjólhýsum, ósamþykktu húsnæði í verksmiðjuhverfum, uppi á loftum yfir verkstæðum þar sem þeir hafa verið starfandi eða jafnvel á byggingarstað. 15.2.2005 00:01
Kaupa heilu blokkirnar Ný stétt fasteignaheildsala hefur myndast upp á síðkastið. Fjárfestar hafa komið auga aukin tækifæri á húsnæðismarkaði og séð sér hag í því að kaupa húsnæði og selja á tímapunkti þar sem þeir telja sig fá mest fyrir snúð sinn. 15.2.2005 00:01
Pólitísk tíðindi við Tjörnina? Pólitískra tíðinda gæti verið að vænta úr tólf manna matarveislu við Tjörnina í kvöld. Þingmenn Framsóknarflokksins ætla að snæða saman og ræða málefni flokksins, þar á meðal stöðu Kristins H. Gunnarssonar sem útilokaður var frá nefndarstarfi í haust. Sáttatónn virðist vera kominn í menn. 15.2.2005 00:01
Þjóðleikhúsið hriplekt "Það er misjafnt hvar lekur mest, þetta fer allt eftir veðri og vindum," segir Ásdís Þórhallsdóttir, umsjónarmaður Smíðaverkstæðis Þjóðleikhússins, en leikmynd á Smíðaverkstæðinu er á floti eftir talsverða úrkomu undanfarna daga. 15.2.2005 00:01
Kostar 620 milljónir Á fundi borgarstjórnar á þriðjudag sögðu sjálfstæðismenn að kostnaður við landnámsbæinn væri kominn 170 til 263 milljónum fram úr áætlunum. Kostnaður væri nú 620 milljónir. 15.2.2005 00:01
Spöruðu sextán milljónir "Með gagnrýnni hugsun á fjárútlátum í rekstri Landmælinga Íslands hefur tekist að spara sextán milljónir, segir Magnús Guðmundsson forstjóri. 15.2.2005 00:01
Annir vestra tefja varnarviðræður Annir hjá forseta Bandaríkjanna og nýjum utanríkisráðherra hafa tafið varnarviðræðurnar við Ísland, segir Davíð Oddsson utanríkisráðherra. Óvíst er hvenær þær geta hafist að nýju. Davíð þakkar stjórnarandstöðunni að hafa hlíft sér svo að honum hafi tekist að ná 80 prósenta styrk eftir veikindi sín. Hann hvetur hana núna til að vaða í sig. 15.2.2005 00:01
Gripinn með 35 kíló af hassi Íslendingur á fertugsaldri er í haldi dönsku lögreglunnar vegna tilraunar til að smygla 35 kílóum af hassi. Hann situr í gæsluvarðhaldi ytra. 15.2.2005 00:01
Hreindýraveiðar í tísku Aldrei fyrr hafa fleiri viljað komast á hreindýraveiðar en nú og verða átta hundruð veiðimenn frá að hverfa. Fólk virðist ekki setja verðið fyrir sig enda hreindýraveiðar í tísku, segir sölumaður leyfanna, sem vill auka kvótann. 15.2.2005 00:01
Tekinn með 35 kíló af hassi Rúnar Þór Róbertsson, Kópavogsbúi á fertugsaldri, var í gær handtekinn af lögreglu við landamæri Danmerkur með 35 kíló af hassi í fórum sínum. Rúnar mun hafa verið að koma frá Hollandi. Ekki er vitað hvort Rúnar ætlaði að reyna að smygla hassinu til Íslands eða hvort hann ætlaði að selja það áður en hann kæmi heim. 15.2.2005 00:01
Fiskikóngur sló tennur úr kollega Fiskikóngurinn í Fiskbúðinni Vör, Kristján Berg Ásgeirsson, hefur verið dæmdur fyrir að berja annan fisksala á sjötugsaldri. Fórnarlambið missti þrjár tennur auk þess að að merjast illa eftir að Kristján sparkaði í hann liggjandi. Fisksalinn hyggst í einkamál við Kristján vegna heilsubrests í kjölfar árásarinnar. 15.2.2005 00:01
Ungmenni hugsi um bágstadda Hvernig manneskja ert þú? Hjálparstarf kirkjunnar spyr íslensk ungmenni að þessu til að minna á að úti í löndum sé fólk síður aflögufært en hér. Þetta gerir stofnunin með svokölluðu Tilfinningakorti. 15.2.2005 00:01
Fimmtán ára í 30 ára fangelsi Fimmtán ára drengur var í gær fundinn sekur um að hafa myrt afa sinn og ömmu og á 30 ára fangelsisvist yfir höfði sér. Drengurinn, sem var á þunglyndislyfinu Zoloft, bar því við að aukaverkanir lyfsins hefðu leitt til þess að hann myrti móðurforeldra sína. 15.2.2005 00:01
Tekinn með 35 kíló af hassi Íslenskur maður á fertugsaldri var tekinn með 35 kíló af hassi í bíl sínum á Jótlandi í Danmörku í síðustu viku. 15.2.2005 00:01
Óviðkomandi með öryggiskóða Sumir fyrrverandi öryggisverðir Securitas hafa gilda öryggiskóða að fyrirtækjum og heimilum sem keypt hafa þjónustu af fyrirtækinu. Fyrrum öryggisvörður afhenti blaðamanni Fréttablaðsins miða með númeri sem veitti fullan aðgang að því húsi sem blaðið hefur aðsetur í. Kóðanum var hins vegar breytt eftir samtal blaðamanns við forstjóra Securitas. 15.2.2005 00:01
Þrennt flutt á sjúkrahús Þrennt var flutt á sjúkrahús eftir að bíll sem fólkið var í fór út af veginum á Akranesvegamótum. Tvennt fékk að fara heim að lokinni skoðun. Einum var hins vegar haldið eftir á sjúkrahúsinu. Sá hafði orðið fyrir höfuðmeiðslum og þótti því rétt að hafa eftirlit með viðkomandi, ekki var þó talið að um alvarleg meiðsl væri að ræða að sögn lögreglu. 15.2.2005 00:01
Sjö ákærð í fíkniefnamáli Fimm menn og tvær konur hafa verið ákærð fyrir þátt sinn í innflutningi á eitt þúsund e-töflum og tæplega 132 grömmum af kókaíni. Flestir hafa játað. Elsti í hópnum er fæddur árið 1963 en sá yngsti árið 1983. 15.2.2005 00:01
Kveikt í bíl í Grafarvogi Íbúar fjölbýlishúss í Grafarvogi vöknuðu upp við vondan draum undir morgun þegar sprengingar gullu við. Þegar nánar var að gáð stóð bíll í björtu báli fyrir utan húsið. Brotist hafði verið inn í bílinn og þar tendruð flugeldaterta sem óðar kveikti í öllu sem brunnið gat í bílnum. Slökkvilið var kvatt á vettvang en þá var bíllinn þegar ónýtur. 14.2.2005 00:01
Velti bíl út í tjörn á Akureyri Ungur ökumaður, sem var einn í bíl sínum, komst í hann krappann norður á Akureyri í gærkvöldi þegar hann missti stjórn á bílnum á Drottningarbrautinni með þeim afleiðingum að bíllinn valt út í tjörnina ofan við veginn. Þar sökk bíllinn þar til aðeins sá í dekkin en ökumanni tókst að komast út úr honum og svamla í land. 14.2.2005 00:01