Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Afnotagjöld inn í fasteignaskatta Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri - grænna, segist mótfallin því að afnema afnotagjöld Ríkisútvarpsins. Hún segir hættulegt að fela framkvæmdavaldinu reksturinn og vill láta fella afnotagjöld inn í fasteignaskatta af íbúðarhúsnæði og fyrirtækjum. 14.2.2005 00:01
Fjórfalt dýrari í búð en á markaði Ýsuflökin fjórfaldast í verði á leiðinni frá markaði í búðarborðið samkvæmt frétt á vefritinu Skip.is.Ýsuverð á mörkuðunum hefur lækkað mikið á síðustu mánuðum og misserum en lítil verðlækkun hefur hins vegar orðið á soðningunni í verslunum. Meðalverð á ýsu á fiskmörkuðum landsins síðastliðinn mánuð hefur verið um 93 krónur fyrir kílóið en meðalverð á ýsuflökum í verslunum er hins vegar um 800 krónur. 14.2.2005 00:01
Ekki bein pólitísk afskipti Menntamálaráðherra ætlar að afnema afnotagjöld og breyta jafnframt fyrirkomulagi Ríkisútvarpsins. Pólitískt skipað útvarpsráð heyrir hugsanlega sögunni til - í það minnsta bein afskipti stjórnmálaflokka af rekstri Ríkisútvarpsins. </font /></b /> 14.2.2005 00:01
RSV-faraldurinn skæður í ár Hinn árlegi RSV-faraldur sem gerði fyrst vart við sig um miðjan desember hefur valdið meiri einkennum hjá heilbrigðum börnum en undanfarin ár og hafa mörg verið lögð inn á sjúkrahús sökum þessa. RSV-tilfellum fjölgaði ekki að ráði fyrr en um mánaðamótin janúar-febrúar þegar inflúensufaraldurinn virtist vera í rénun. 14.2.2005 00:01
Lenti á húsi í Þykkvabæ Stór flutningabifreið rann til í hálku og lenti á einbýlishúsi í Þykkvabæ. Ökumaður missti stjórn á bifreiðinni og lenti á gafli hússins sem er notað sem sumarhús. Bifreiðin er föst með framhliðina í einu svefnherbergi hússins. Ökumaðurinn slapp að mestu leyti ómeiddur og húsið var mannlaust þegar óhappið varð. 14.2.2005 00:01
Farið að kostunarreglum Kolbrún Halldórsdóttir alþingiskona hefur lagt fram fyrirspurn til menntamálaráðherra á Alþingi um kostun dagskrárliða í útvarpi og sjónvarpi. 14.2.2005 00:01
Tryggingavernd lægri hér Lágmarksfjárhæð tryggingaverndar er lægri hér en á hinum Norðurlöndunum. Hún er hins vegar í samræmi við lágmarksfjárhæð tryggingaverndar í flestum ESB-ríkjunum. 14.2.2005 00:01
Fangelsið ekki mannsæmandi Fangelsið á Akureyri er ekki mannsæmandi. Fangarnir hafa ekkert við að vera, aðstaða til útivistar er ófullnægjandi, loftræsting í klefum léleg. Taka þarf bygginguna í gegn frá grunni, segir fangelsisstjórinn. </font /></b /> 14.2.2005 00:01
Breytt skipulag vegna stækkunar Breyting á skipulagi sem tengist fyrirhugaðri stækkun á barna- og unglingageðdeildinni á Dalbraut hefur nú verið auglýst. 14.2.2005 00:01
Tvær lóðir auglýstar á Reyðarfirði Á næstu vikum verða auglýstar tvær lóðir sem liggja að álverinu á Reyðarfirði. Þær eru sérstaklega ætlaðar fyrir aðila sem vilja þjónusta álverið í framtíðinni og jafnvel fleiri álver frá Reyðarfirði. 14.2.2005 00:01
Harma ályktun þingmanna Samtök íþróttafréttamanna hafa sent frá sér ályktun þar sem þau harma þingsályktunartillögu fimmtán þingmanna Sjálfstæðisflokksins um að afnema beri þýðingarskyldu á beinum útsendingum frá íþróttaviðburðum. Þá segir í ályktuninni að Samtök íþróttafréttamanna fordæmi ítrekuð lögbrot Skjás eins með því að sjónvarpa enskum knattspyrnuleikjum og samantektarþáttum af þeim með lýsingum á ensku. 14.2.2005 00:01
Vill eitt landsnet Þingflokkur Vinstri - grænna hvetur til þess að grunnnet Símans, Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar verði sameinuð í eitt landsnet sem verði í eigu ríkis og sveitarfélaga og nái til allra landsmanna. Þingflokkurinn telur að verði Síminn seldur með grunnnetinu muni verða til í landinu tvöfalt, að hluta til einkavætt gagnaflutningskerfi með gríðarlegum tilkostnaði. 14.2.2005 00:01
Grunaður um ölvun undir stýri Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður með Chelsea og Íþróttamaður ársins 2004, var tekinn ölvaður undir stýri aðfaranótt sunnudagsins eftir að hafa tekið þátt í gleðskap með öðrum leikmönnum Chelsea. Voru þeir að fagna góðu gengi liðsins en á laugardaginn lagði liðið Everton á útivelli og skoraði Eiður Smári sigurmark liðsins. 14.2.2005 00:01
Skattayfirvöld draga lappirnar Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins vill að skattayfirvöld rannsaki sérstaklega fyrirtæki sem grunuður eru um að stunda svarta atvinnustarfsemi. Óþolandi sé fyrir heiðarleg fyrirtæki að keppa við fyrirtæki sem svíkist um. Ríkisskattstjóri bíður eftir ábendingum. 14.2.2005 00:01
Björguðu lífi vinar síns Ellefu ára gamlir drengir björguðu lífi vinar síns á laugardaginn sem fékk gat á lungað. Þeir óku honum í búðarkerru og héldu á honum í strætó. Þetta eru ofurhetjur segir móðir drengsins sem veiktist. 14.2.2005 00:01
Álag og forgangsröðun valda töfum Álag og forgangsröðun valda töfum á minni háttar sakamálum, segir sýslumaðurinn í Hafnarfirði. Svona verði þetta áfram, segir hann, þótt héraðsdómari segi embættið hafa brotið bæði lög og mannréttindi þegar það dróst í fjórtán mánuði að gefa út ákæru. 14.2.2005 00:01
700 króna verðmunur á soðningu Allt að sjö hundruð króna verðmunur getur verið á soðningunni út úr búð þessa dagana. Skýringanna er að leita í mismunandi kröfum viðskiptavina. 14.2.2005 00:01
Byggðakvóti með kvöðum Þeim sem fá byggðakvóta úthlutað í Sandgerði verður gert að auka heildarkvóta bæjarfélagsins. Ekki hefur verið ákveðið hvort þeim verði gert að kaupa eða leigja hann. 14.2.2005 00:01
Kristall plús ekki leyfður börnum Hinn vítamínbætti Kristall Plús fær leyfi gegn því að drykkurinn verði merktur sem óæskilegur börnum yngri en sjö ára. 14.2.2005 00:01
Aðstandendur MS sjúklinga funda Rétt tæplega tíu manns greinast með MS sjúkdóminn hér á landi á ári. Fyrsti fundur MS félagsins sem eingöngu er fyrir aðstandendur verður í kvöld. 14.2.2005 00:01
Flutningaskip með íslenskan fána? Skráning kaupskipa á íslenskri skipaskrá hefur verið tekin til nánari skoðunar stjórnvalda. Með því á að skoða hvort hægt sé að gera kaupskipum kleift að sigla undir íslenskum fána. 14.2.2005 00:01
Einn af þremur fær vinnu í sumar Búist er við að um þrjú þúsund sæki um eitt þúsund sumarstörf stofnana Reykjavíkurborgar. 14.2.2005 00:01
Vill þyrma þrem húsum við Laugaveg Borgarminjavörður vill þyrma þremur gömlum húsum við Laugaveg af þeim 25 sem borgaryfirvöld hafa leyft að verði rifin. Meðal vegfarenda um Laugaveg voru mjög skiptar skoðanir. Kofarnir mega fjúka, sögðu sumir, á meðan aðrir gráta gamlar minjar. 14.2.2005 00:01
Vill vernd fyrir sparifjáreigendur Íslendingar eiga 280 milljarða króna inni á bankareikningum sínum. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, óttast að sú staða komi upp að bankarnir geti ekki greitt þetta út og vill aukna vernd fyrir sparifjáreigendur. 14.2.2005 00:01
Svaf ekki eftir ránið Starfsfólk í verslunum þar sem ræningi lét til skarar skríða í fyrri viku segist vera að jafna sig. Starfsmaður í söluturni átti við svefntruflanir að stríða í kjölfar ráns. Eigandinn segir fólk almennt svartsýnt á þjóðfélagsástandið. </font /></b /> 14.2.2005 00:01
Björguðu lífi vinar síns Tveir ellefu ára drengir unnu hetjudáð um helgina þegar þeir björguðu lífi tíu ára vinar síns. Þremeningarnir voru í Kringlunni þegar einn þeirra fann fyrir miklum verk, en í ljós kom að hann var með gat á lunga. Hundur eins var með þeim og varð það til þess að strætóbílstjóri neitaði þeim um far. 14.2.2005 00:01
Fékk heilahristing í áflogum Tilkynnt var um líkamsárás til lögreglunnar á Ísafirði snemma í morgun. Áflog höfðu brotist út milli manna sem slógust í íbúðargötu í bænum. Þau enduðu með því að einn var fluttur á sjúkrahús og talið var að hann hefði fengið heilahristing. Þá var maður íklæddur lögreglubúningi handtekinn í Reykjavík. 13.2.2005 00:01
Mosfellsheiði ófær fólksbílum Í nágrenni Reykjavíkur er aðeins fært jeppum og stórum bílum um Mosfellsheiði og Kjósarskarð. Á Vestfjörðum og Norðurlandi er víða verið að hreinsa vegi, um hálsa til Patreksfjarðar og um Ísafjarðardjúp til Ísafjarðar. 13.2.2005 00:01
Skíðasvæði víða opin Skíðasvæðið á Siglufirði er opið til klukkan fjögur í dag. Þar er ágætis veður, gott færi og nægur snjór. Skíða- og snjóbrettasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri verður opið til klukkan fimm. Þar lítur vel út með veður og dagurinn ætti því að geta orðið góður til útiveru nyrðra. 13.2.2005 00:01
Safna fyrir sneiðmyndatæki Hollvinasamtök Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað standa þessa dagana fyrir söfnun til að fjármagna kaup á sneiðmyndatæki sem samtökin ætla að gefa sjúkrahúsinu. Sigurður Rúnar Ragnarsson, sóknarprestur í Neskaupstað, segir að svona tæki kosti um 18 milljónir króna. 13.2.2005 00:01
Missir sjón á öðru auga Íslenski hermaðurinn sem slasaðist í Írak í síðustu viku missti sjón á öðru auga. Hann fékk líka járnflís undir aðra hnéskelina sem skar í sundur taugar og gerir það að verkum að Cesar getur ekki lyft tánum 13.2.2005 00:01
Draga lærdóm af mistökum ráðherra Ungir jafnaðarmenn segja að draga verði lærdóm af mistökum Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherraog Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra í Íraksmálinu. Samtökin vilja fyrir alla muni, og telja víst að þorri þjóðarinnar sé því sammála, að hindra verði að slík mistök geti endurtekið sig. 13.2.2005 00:01
Fékk stungusár í brjóstkassa Karlmaður á fimmtugsaldri var fluttur á slysadeild í dag með stungusár í brjóstkassa eftir að sambýliskona hans kastaði hnífi í hann. Að sögn lögreglu lenti fólkið í orðaskaki á heimili sínu í Breiðholti á ellefta tímanum í morgun sem endaði með því að konan greip til eggvopnsins og kastaði því í manninn. 13.2.2005 00:01
Drengurinn í Texas fær enga hjálp Utanríkisráðuneytið neitaði að færa utanríkisráðherra Bandaríkjanna bréf frá fjölskyldu drengs sem er í stofufangelsi í Bandaríkjunum, á þeim forsendum að málið heyrði ekki undir ráðherrann. Sjálfur stendur drengurinn í þeirri trú að hann sé ekki nógu merkilegur til að íslensk stjórnvöld beiti sér í málinu. 13.2.2005 00:01
Menningarsögulegt slys á Laugavegi Borgaryfirvöld létu undan þrýstingi hagsmunaaðila þegar þau heimiluðu að láta rífa 25 gömul hús við Laugaveg. Það er mat borgarfulltrúa F-listans. Hann segir allt of langt gengið í niðurrifi og við blasi menningarsögulegt slys. 13.2.2005 00:01
Ingibjörg gleymir holræsagjaldinu "Hún er að segja ósatt," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um þau orð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrum borgarstjóra, í Fréttablaðinu á laugardag að álagningarhlutfall fasteignagjalda hafi ekki hækkað. 13.2.2005 00:01
Afnotagjöld andstæð evrópulögum Afnotagjöld Ríkisútvarpsins verða lögð niður og eru stjórnvöld þannig að bregðast við gagnrýni ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. Menntamálaráðherra leggur fram frumvarp á næstunni þar sem hlutverk RÚV verður endurskilgreint. </font /></b /> 13.2.2005 00:01
Gríðarleg þýðing samgöngubótanna Fyrirhugaðar samgöngubætur á Vestfjörðum hafa gríðarlega þýðingu fyrir byggð í fjórðungnum, að mati Einars K. Guðfinnssonar, þingmanns Norðvesturkjördæmis. 13.2.2005 00:01
Hlynntur niðurfellingu Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, formaður útvarpsráðs og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins er mjög hlynntur því að afnema afnotagjöld Ríkisútvarpsins. 13.2.2005 00:01
Grenndarkynning barst alltof seint Nágrannar rússneska sendiráðsins við Garðastræti 35 eru margir hverjir ósáttir við þá sjónmengun sem stafar af timburkofum sem hafa verið þar í byggingu undanfarið eitt og hálft ár. 13.2.2005 00:01
Sviknir um þúsund krónur á tímann Áætla má að meira en fimm prósent verkamanna í byggingariðnaði á suðvesturhorninu séu útlendingar sem ekki njóta fullra réttinda. Margir þeirra fá aðeins 400-600 krónur á tímann.</font /></b /> 13.2.2005 00:01
Í stolnum lögreglubúning Maður nokkur var handtekinn í stolnum lögreglubúningi rétt fyrir klukkan fimm í fyrrinótt. Búningnum sagðist hann hafa stolið á búningalager í Þjóðleikhúsinu. 13.2.2005 00:01
Engan glannaskap Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna vill fara varlega með málefni Ríkisútvarpsins. 13.2.2005 00:01
Afnotagjöld óviðunandi Í þingsályktunartillögu Frjálslynda flokksins sem nú er til umræðu á Alþingi segir að núverandi fjármögnun Ríkisútvarpsins með afnotagjöldum og auglýsingatekjum sé óviðunandi. 13.2.2005 00:01
Tryggja verður frelsi RÚV Svanfríður Jónasdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í útvarpsráði, segir að tryggja verði frelsi Ríkisútvarpsins fari það á fjárlög. 13.2.2005 00:01