Kristall Plús fer á markað 15. febrúar 2005 00:01
Umhverfisstofnun hefur leyft Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni að setja vítamínbætt sódavatn á markað, en Lýðheilsustöð hafði gert athugasemdir við það. Kristall Plús var kominn á markað en síðan var frekari dreifing hans bönnuð. Í drykknum er B-vítamínið fólasín sem Lýðheilsustöð segir að megi auka neyslu á og reyndar er sérstaklega mælt með því fyrir konur á barneignaraldri. Einu dæmin um of mikla neyslu fólasíns eru hjá börnum innan 7 ára aldurs, en þau fá fólasín einkum úr morgunkorni. Umhverfisstofnun tók afstöðu til málsins í gær og Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir að stofnunin hafi leyft vöruna þannig að hún sé væntanleg á markað. Stofnunin hafi þó sett þau skilyrði að drykkurinn yrði merktur þannig að hann sé ekki ætlaður börnum yngri en sjö ára. Að sögn Andra Þórs ætlar Ölgerðin að una þessari niðurstöðu en hyggst kanna lagalega stöðu þess að þurfa að merkja drykkinn sérstaklega óheppilegan fyrir börn. Engu að síður fer drykkurinn í dreifingu fljótlega. Andri Þór segir þrautagönguna sem fyrirtækið þurfti að leggja í vegna málsins ekki koma á óvart enda vanti lagaramma fyrir mál á borð við þetta og því sé gott að nú hafi verið skapað ákveðið fordæmi. Hann furðar sig samt á því að viðvörunin þurfi að vera á flöskunum. Engin eituráhrif séu þekkt af neyslu B-vítamíns, en þau séu vatnsleysanleg. Einu þekktu áhrifin af ofneyslu séu þau að of mikið fólasín geti komið í veg fyrir að áhrif af skorti á B-12 vítamíni komi í ljós. B-12 vítamín sé hins vegar í drykknum þannig að hvort útiloki hitt.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira