Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dómstóll fjallar um mál Fischers Japanskur dómstóll mun á miðvikudag fjalla um það hvort Bobby Fischer verður vísað frá Japan og hann fluttur til heimalands síns, Bandaríkjanna. Lögfræðingur Fischers, Masako Suzuki, sagðist í samtali við fréttastofu í dag ætla að nota þetta tækifæri og krefjast þess að tekin verði afstaða til tilboðs íslenskra stjórnvalda um að veita Fischer landvistarleyfi. 17.1.2005 00:01
Skiptastjóri FF til Lúxemborg Sigurður Gizurarson, skiptastjóri í gjaldþrotamáli Frjálsrar fjölmiðlunar, ætlar sjálfur að leita upplýsinga í Lúxemborg um dótturfyrirtæki Frjálsrar fjölmiðlunar og hugsanlegar eigur þeirra þar. 17.1.2005 00:01
Sérsniðin lífeyrislög hneyksli Þingmaður Vinstri-grænna segir að það hafi verið vitað þegar eftirlaunafrumvarpið var samþykkt á þingi árið 2003 að samkvæmt því gætu fyrrverandi ráðherrar þegið eftirlaun á sama tíma og þeir gegndu starfi á vegum hins opinbera. Þingmaður Sjálfstæðisflokks gerir ekki athugasemdir við að þeir njóti góðra lífeyriskjara sem hafa gegnt trúnaðarstörfum fyrir þjóðina. </font /></b /> 17.1.2005 00:01
Rætt um orkumál vegna stóriðju Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, fór til fundar við forsvarsmenn orkufyrirtækja á Norðurlandi í gær. Meðal þeirra eru forsvarsmenn Norðurorku og fulltrúar Akureyrarbæjar, Húsavíkur og Lauga. Friðrik segir rætt hafi verið um ástand og horfur í orkumálum. 17.1.2005 00:01
Davíð og Halldór einir um ákvörðun Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra staðfesti í dag að hann og Davíð Oddsson hefðu einir tekið þá ákvörðun að Ísland styddi innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak fyrir tveimur árum. Í yfirlýsingu þessa efnis kemur ekki fram hvort sú ákvörðun hafi áður verið rædd í utanríkismálanefnd Alþingis. Djúpstæður ágreiningur virðist í Framsóknarflokknum um málið. 17.1.2005 00:01
Hannes tekur við af Sigurði Sigurður Helgason lætur af störfum sem forstjóri Flugleiða í vor en hann var nýverið kjörinn maður ársins í viðskiptalífinu af tímaritinu Frjálsri verslun. Hannes Smárason verður starfandi stjórnarformaður. 17.1.2005 00:01
Stefnir að kaupum á netfyrirtæki Björgólfur Thor Björgólfsson er aðili að yfirtökutilboði í breska netfyrirtækið QXL Ricardo. 17.1.2005 00:01
Tveir af fjörutíu hafa sótt um fé Aðeins tveir grunnskólar af fjörutíu í Reykjavík hafa sótt um fjármagn til að bæta nemendum upp það tjón, sem hlaust af verkfalli grunnskólakennara. Dæmi eru um að bæði kennarar og foreldrar setji sig á móti því að kennslustundum barnanna fjölgi, segir formaður Kennarafélags Reykjavíkur. 17.1.2005 00:01
Vill styrkja þá eldri í vinnu Félagsmálaráðherra stefnir að því að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Kannanir sýna neikvæð viðhorf í garð þessa aldurshóps. 17.1.2005 00:01
Erfiðast að finna bílastæði Erfiðasti hlutinn af meðferð margra sjúklinga er að finna bílastæði við Landspítalann við Hringbraut. Einn af stjórnendum spítalans segir vandann aukast með hverju ári og að hann verði ekki leystur fyrr en nýr spítali verði byggður. 17.1.2005 00:01
Gengur illa að fá fullnægingu Engin þjóð á eins mikið af titrurum og Íslendingar og engri þjóð finnst eins gaman að leika sér með kynlífsleikföng. Rúmur helmingur þjóðarinnar nýtur þess að horfa á klám með maka sínum en Íslendingum gengur hins vegar bölvanlega að fá fullnægingu. 17.1.2005 00:01
Ótti um snjóflóð 53 íbúar í Bolungarvík og Ísafjarðarbæ gátu ekki sofið í rúmum sínum í nótt vegna snjóflóðahættu. Alls voru rýmd 28 hús, bæði íbúðarhús og vinnustaðir. Þá voru vegir víða lokaðir eða takmarkanir settar á umferð vegna snjóflóðahættu úr bröttum hlíðum. Hættumat verður endurmetið nú strax í morgunsárið. 17.1.2005 00:01
Bókhaldið ófært Jón H. Snorrason segir fyrst og fremst stjórnendur hjá Frjálsri fjölmiðlun og öðrum félögum tengdum fyrirtækinu vera til rannsóknar hjá embættinu. 17.1.2005 00:01
Yfir hundrað íbúa rýmdu hús sín Fimmtíu íbúar úr fimmtán húsum við Urðarstíg, Mýrar og Hóla á Patreksfirði þurftu að yfirgefa heimili sín vegna snjóflóðahættu og leituðu íbúar til ættingja og vina í bænum. Í Bolungarvík voru sjö hús rýmd auk eins sveitabæjar og fimmtán hús voru rýmd í Ísafjarðarbæ. 17.1.2005 00:01
Rúmlega 100 manns rýmdu hús sín Lokið er rýmingu húsa sem ákveðnar hafa verið á Vestfjörðum. Alls hafa 103 íbúar í 37 húsum þurft að yfirgefa heimili sín í dag vegna snjóflóðahættu. 49 á Patreksfirði, 23 á Ísafirði, Hnífsdal og í dreifbýli Ísafjarðarbæjar og 31 á Bolungarvík og tveimur bæjum þar við. Almannavarnir munu fylgjast grannt með þróun mála í nótt. 17.1.2005 00:01
Súðavík flutt Tíu ár eru í dag liðin frá því að snjóflóð féll á Súðavík og hreif með sér fjórtán mannslíf. Í kjölfar flóðanna var nýtt þorp reist, litlu innar í Álftafirði, þar sem ekki er hætta á að snjóflóð falli. Flutningur byggðarinnar var þrekvirki. Björn Þór Sigbjörnsson blaðamaður og Pétur Sigurðsson ljósmyndari voru á ferð í Súðavík í vikunni. </font /></b /> 16.1.2005 00:01
Maður lærir að lifa með þessu Missir Sigríðar Rannveigar Jónsdóttur og Þorsteins Arnar Gestssonar var mikill. Dóttir þeirra og foreldrar Þorsteins fórust í flóðinu. Parið unga flutti í burtu í kjölfarið en sneri svo aftur heim. Sigríður segir gott að búa í Súðavík en ekki líður sá dagur að hún hugsi ekki til atburðanna fyrir tíu árum. </font /></b /> 16.1.2005 00:01
Evrópumálin verða stærsta verkefnið næstu 5 til 10 árin Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, útilokar ekki aðild að Evrópusambandinu. Í ítarlegu viðtali segir hann Samfylkinguna hafa glutrað niður möguleika á stjórnarþátttöku í síðustu kosningabaráttu. Hann gagnrýnir sjálfstæðismenn fyrir framkomu sína við forseta Íslands og segir Íslendingum ekki geðjast að Bush Bandaríkjaforseta. 16.1.2005 00:01
Dregið úr yfirtíð hjá Akureyrarbæ Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt nýjar vinnureglur um yfirvinnu starfsmanna bæjarins en samkvæmt þeim heyrir föst yfirvinna sögunni til og aðeins verður greitt fyrir unna yfirvinnu. Samkvæmt nýju vinnureglunum má yfirvinna ekki fara yfir 600 klukkustundir á yfirstandandi ári og ekki yfir 500 klukkustundir á næsta ári. 16.1.2005 00:01
Björgunarsveit leitaði fimm manna Björgunarsveitin Strákar frá Siglufirði kom fimm vélsleðamönnum til bjargar í gærkvöldi. Beiðni um aðstoð barst á fimmta tímanum í gær frá vélsleðamanni sem hafði orðið viðskila við fjóra félaga sína en mennirnir voru á leið frá Siglunesi í Héðinsfjörð. Mjög slæmt skyggni var á þessum slóðum og djúpur snjór. 16.1.2005 00:01
Hálka og þung færð víða Hálka og þung færð er víða. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er snjóþekja og snjókoma suðvestanlands og á Vesturlandi. Það er hálka á Holtavörðuheiði og á Norðurlandi og hálka og éljagangur er á Vestfjörðum. Kleifaheiði er þungfær og þæfingur á Hálfdáni. 16.1.2005 00:01
Rúður brotnuðu í sprengingu Þrír ungir karlmenn eru í haldi lögreglunnar í Reykjavík, grunaðir um skemmdarverk. Laust fyrir klukkan eitt í nótt var tilkynnt um sprengingu við Skipholt. Þar hafði verið sprengd heimatilbúin sprengja með þeim afleiðingum að skyggni við veitingastaðinn American Style skemmdist, rúður brotnuðu og fleira. 16.1.2005 00:01
Skíðasvæði víða opin Skíðasvæði eru víða opin í dag. Bretta- og skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er opið til klukkan fimm. Þar er troðinn, þurr snjór, eins stigs frost og logn. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli, segir greinilegt að landsmenn kunni að meta að snjóað hafi undanfarnar vikur því að snjóbretta- og skíðaáhugi sé mikill. 16.1.2005 00:01
Mikil hálka á höfuðborgarsvæðinu Það er líklega full ástæða til að vara gangandi vegfarendur við hálkunni sem nú er. Erill var á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í gær og í fyrradag vegna hálkuslysa, án þess þó að alvarleg slys yrðu. Um var að ræða minniháttar beinbrot, mar og tognanir sem og höfuðhögg. Rólegt hefur hins vegar verið á slysadeildinni það sem af er degi, enda kannski fáir komnir á kreik. 16.1.2005 00:01
225 milljónir hafa safnast 110 milljónir króna söfnuðust í söfnuninni Neyðarhjálp úr norðri, viðamestu söfnun landsins, sem hófst á þriðjudag og lauk í beinni útsendingu sjónvarpsstöðvanna þriggja í gærkvöld. Alls hafa safnast 225 milljónir til þeirra samtaka sem verja munu söfnunarfénu í þágu þeirra sem eiga um sárt að binda eftir hamfarirnar í Asíu. 16.1.2005 00:01
Hálka víðast hvar um landið Hálka er suðvestanlands og éljagangur og snjóþekja á Vesturlandi. Þungfært er á Holtavörðuheiði og mjög slæmt veður. Á Norðurlandi er víða hálka og éljagangur. 16.1.2005 00:01
Sprengjumönnum sleppt Lögreglan hefur sleppt þremenningunum sem sprengdu sprengju við veitingastaðinn American Style í nótt. Við yfirheyrslur gátu þeir litlar skýringar gefið á athæfinu en sögðu að ekki hafi verið um heimatilbúna sprengju að ræða heldur öfluga rakettu sem prikið hefði verið tekið af. 16.1.2005 00:01
Kostnaðarsamur mokstur á Akureyri Talsvert fannfergi er nú á Akureyri og er kostnaður bæjarfélagsins við snjómokstur ærinn. Það má áætla að hann kosti bæjarbúa árlega um 40 milljónir króna samkvæmt fréttavef Akureyrar en árið 2004 nam kostnaðurinn um eða yfir 48 milljónum. 16.1.2005 00:01
Kertalogi orsök brunans Bruni á Akureyri í fyrrinótt orsakaðist af kerti sem brann niður án þess að íbúinn yrði þess var fyrr en of seint. Kertið brann í gegnum borð sem það stóð á. Nágranni sýndi mikið snarræði og bjargaði stúlkunni sem þar bjó út undir bert loft en hún var að reyna að skríða út úr reykjarkófinu af sjálfsdáðum. 16.1.2005 00:01
Snjóblásari utan í bíl Árekstur varð á Seyðisfirði um tvöleytið í gær þegar snjóblásari fór utan í fólksbíl. Snjóblásarinn var að aka inn á veg rétt fyrir utan bæinn og sá ekki bíl sem kom þar aðvífandi. 16.1.2005 00:01
Óhapp við umferðarljós Betur fór en á horfðist í allhörðum árekstri á Akureyri upp úr klukkan 14 í gær þegar tveir bílar skullu saman á umferðarljósum við Glerárgötu og Tryggvabraut. Flughált var á Akureyri í gær. 16.1.2005 00:01
Sprengdu þakskyggni Þrír tvítugir piltar voru handteknir í Reykjavík klukkan kortér fyrir eitt í fyrrinótt eftir að hafa sprengt rakettu fyrir utan veitingastaðinn American Style í Skipholti. 16.1.2005 00:01
Frjósamari vegna breytts litnings Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa uppgötvað þriggja milljóna ára gamlan litning í erfðamengi mannsins sem hefur að hluta til snúist á haus en þeir sem bera þennan breytta litning eignast að meðaltali fleiri börn en aðrir. Þetta hefur líklega gerst við blöndun ólíkra tegunda. 16.1.2005 00:01
Fjölmenni við guðsþjónustuna Fjölmenni var við minningarguðsþjónustu í Súðavík í dag þar sem þess var minnst að áratugur er frá snjóflóðinu mannskæða. Sumum íbúum þar er órótt þegar veður eru válynd en presturinn segir að aðstoð góðra vina og hjálp hafi hjálpað þeim sem misstu mest að halda lífinu áfram. 16.1.2005 00:01
Frjáls fjölmiðlun til rannsóknar Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, segir fjölda mála vera til rannsóknar sem tengist gjaldþroti Frjálsrar fjölmiðlunar, fyrirtækinu og forsvarsmönnum þess. 16.1.2005 00:01
Miðast við lög og dómafordæmi Bogi Nilsson ríkissaksóknari segir að saksóknarar embættisins fari yfir rannsóknargögn hvers máls og það þurfi að vera líklegt eða verulega líklegt að ákæra leiði til sakfellingar til að málið leiði til ákæru. 16.1.2005 00:01
Trúa börnunum en vantar sannanir Saksóknari fellir niður rúmlega helming mála vegna meints kynferðisbrots á börnum þar sem ekki þykir líklegt að ákæra leiði til sakfellingar. Oftast vantar frekari sannanir. </font /></b /> 16.1.2005 00:01
Urðum að leita skjóls Fjórir vélsleðamenn biðu í neyðarskýli í Héðinsfirði í fimm klukkutíma án þess að vita hvað hefði orðið um fimmta manninn sem var með þeim í för á laugardag. "Ég reyndi að fara á eftir honum en komst ekki neitt," segir Ragnar Már Hansson sem beið ásamt þremur öðrum eftir hjálp í neyðarskýlinu. 16.1.2005 00:01
Tveggja manna ákvörðun segir Guðni Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir ákvörðunina um veru Íslands á lista hinna staðföstu þjóða orka tvímælis. Tveir menn hafi tekið þá ákvörðun. Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður segir að ráðherrann sé með ummælum sínum að treysta stöðu sína fyrir flokksþing Framsóknarflokksins í febrúar. 16.1.2005 00:01
Geðröskun eitt stærsta vandamálið Vaxandi fjöldi barna með geðræn vandamál er einn stærsti vandi skólanna í dag þrátt fyrir að íslensk börn noti geðlyf í mun meira mæli en jafnaldrar þeirra annars staðar á Norðurlöndunum. Arthúr Morthens, sviðsstjóri hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, segir að líffræðilegir og félagslegir þættir valdi mestu um þessa fjölgun en heimilin séu í veikari stöðu en áður. 16.1.2005 00:01
Sjónvarpsmenn með auglýsingabónus Starfsmenn auglýsingadeildar Ríkisútvarpsins skipta með sér hluta af tekjum stofnunarinnar þegar ákveðnu og fyrirfram ákveðnu marki í auglýsingasölu hefur verið náð. Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri sér ekkert athugavert við þennan bónus ríkisstarfsmannanna og Lárus Guðmundsson auglýsingastjóri segir þetta bara vera tíkalla. 16.1.2005 00:01
Kókaínkafteinn með hreint vottorð Ómar Örvarsson, skipstjórinn á dópskipinu Hauki ÍS, framvísaði hreinu sakavottorði stuttu eftir fangelsisvist fyrir að reyna að smygla 14 kílóum af kókaíni. Kristinn Sigurðsson hjá Sendibílastöðinni, þar sem Ómar vann um skamma hríð, segir vinnuveitendur berskjaldaða fyrir því ef menn hafa brotið af sér í útlöndum án þess að það sjáist á sakaskrá. 16.1.2005 00:01
Minningin lifir alltaf Uppbyggingarstarfi í Súðavík er að mestu lokið, nú þegar tíu ár eru liðin upp á dag frá því að snjóflóð tætti byggðina í sundur í ofsaveðri árið 1995. Byggðin hefur verið flutt á öruggt svæði og samheldni einkennir bæjarbraginn. Berglind Kristjánsdóttir, sem missti þrjú börn í flóðinu, segir að minning þeirra fylgi henni alltaf og hún reyni stöðugt að finna sér tilefni til að hlakka til. 16.1.2005 00:01
Yfirlýsingin bíður birtingar Yfirlýsing Þjóðarhreyfingarinnar þar sem framgöngu íslenskra stjórnvalda í Íraksmálinu er mótmælt mun birtast í vikunni í bandaríska dagblaðinu New York Times. 16.1.2005 00:01
Heimsmeistarar í dýrauppstoppun? Íslendingar gætu eignast heimsmeistara í uppstoppun dýra á næstunni. Tveir hamskerar halda utan bráðlega með glæsilegan smyril og toppskarf í farteskinu í þeirri von að sigra heiminn. Stöð 2 tók hús á öðrum þeirra og kynntist undraveröld uppstoppaðra dýra. 16.1.2005 00:01