Fleiri fréttir

Kristinn fær meiri stuðning

Enn fjölgar þeim Framsóknarfélögum sem lýsa stuðningi við Kristinn H. Gunnarsson alþingismann. Framsóknarfélag Stykkishólms hélt aðalfund í fyrrdag og samþykkti svohljóðandi ályktun þar sem skorað er á þingflokk Framsóknarflokksins að leysa þann ágreining sem ríki á milli þingmanna flokksins.

Enn vex Skeiðará

Hlaupið í Skeiðará er enn að vaxa og hefur rennsli árinnar þegar margfaldast frá því fyrradag. Vatnamælingamenn Orkustofnunar eru þessa stundina á Skeiðarárbrú að mæla rennslið og sagði Sverrir Elefsen nú skömmu fyrir fréttir að áin hefði vaxið töluvert frá því í gær. Mikill jökullitur er á ánni en hins vegar finnst engin jöklafýla.

Enn vex Skeiðará

Hlaupið í Skeiðará er enn að vaxa og hefur rennsli árinnar þegar margfaldast frá því fyrradag. Vatnamælingamenn Orkustofnunar eru þessa stundina á Skeiðarárbrú að mæla rennslið og sagði Sverrir Elefsen nú skömmu fyrir fréttir að áin hefði vaxið töluvert frá því í gær. Mikill jökullitur er á ánni en hins vegar finnst engin jöklafýla.

Mæðgur sluppu vel eftir veltu

Mæðgur sluppu ótrúlega vel þegar jeppi sem þær voru í valt á Dynjandisheiði í gær. Tilkynnt var um slysið laust fyrir klukkan 18 og fóru lögreglumenn frá Patreksfirði og Ísafirði á staðinn og sjúkrabíll frá Þingeyri. Mikil hálka var á slysstað og hafði jeppinn því verið á hægri ferð.

Með 200 grömm af hassi

Karlmaður er í gæsluvarðhaldi hjá lögreglunni á Ísafirði vegna gruns um aðild að fíkniefnamáli. Hann var handtekinn á pósthúsinu á Flateyri á miðvikudag þegar hann vitjaði póstsendingar, en fíkniefnafundur hafði fundið efnin. Um tvö hundruð grömm af hassi reyndust í pakkanum. Gæsluvarðhald yfir manninum rennur út síðdegis á morgun.

5 líkamsárásir kærðar

Fimm líkamsárásir voru kærðar í miðborg Reykjavíkur í nótt. Um þrjúleytið var kallað á sjúkrabíl að skemmtistaðnum Prövdu í Austurstræti eftir átök dyravarðar og eins gesta staðarins. Dyravörðurinn hafði hent gestinum út af staðnum og réðst gesturinn þá á dyravörðinn og sparkaði og sló í hann, samkvæmt upplýsingum lögreglu.

Skemmdarverk á mælitækjum

Skemmdarverk hafa verið unnin á mælitækjum á Mýrdalssandi sem vakta Kötlu. Af þeim sökum fengu vísindamenn engar upplýsingar um rafleiðni í Múlakvísl í tólf daga. Leiðniskynjari í Múlakvísl hætti þann 19. október að senda upplýsingar en þær berast venjulega sjálfvirkt inn til Orkustofnunar.

Meiri og margþættari brot

Skýrsla Samkeppnisráðs sýnir að brot olíufélaganna á samkeppnislögum voru bæði meiri og margþættari en áður var haldið, segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Hann segir málið sýna mikilvægi þess að efla samkeppnisyfirvöld. Hann segir tjónið sem viðskiptavinum hafi verið valdið sé mjög mikið vegna þess hve langan tíma brotin stóðu.

Skeiðará hefur margfaldast

Hlaupið í Skeiðará er enn að vaxa og hefur rennsli árinnar þegar margfaldast frá því fyrradag. Vatnamælingamenn Orkustofnunar eru þessa stundina á Skeiðarárbrú að mæla rennslið og sagði Sverrir Elefsen nú skömmu fyrir fréttir að áin hefði vaxið töluvert frá því í gær.

Sjötíu þúsund króna leikfang

Það þykir ekki mikið að borga 69.900 krónur fyrir nýjan, upphækkaðan sportbíl sem kemst upp í hundraðið á augabragði, nema þá helst ef um fjarstýrðan leikfangabíl er að ræða.

Anna Pálína látin

Anna Pálína Árnadóttir söngkona og dagskrárgerðarmaður er látin, 41 árs að aldri. Anna Pálína var einkum kunn fyrir flutning sinn á norrænni vísnatónlist og barnalögum, en einnig voru íslensk sönglög, þjóðlög, sálmar og djasstónlist á efnisskrá hennar.

Sýknaður af broti á hvíldartíma

Hæstiréttur sýknaði mann fyrir að hafa brotið ákvæði um aksturs- og hvíldartíma ökumanna á þeim forsendum að refsiheimild skorti í lögum. Viku fyrr sakfelldi Héraðsdómur Norðurlands eystra annan ökumann fyrir samskonar brot og dæmdi hann til sektar.

Þurfti að gefa upp kennitölu

Það er andstætt lögum að krefjast kennitölu við venjuleg staðgreiðsluviðskipti, svo sem þegar fólk kaupir miða á tónleika. Eldri kona þurfti nýlega að gefa upp kennitölu til að fá að kaupa miða á tónleika í Salnum í Kópavogi. Persónuvernd hefur málið til umfjöllunar, en margar svipaðar kvartanir berast ár hvert.

Börnin aftur í skólann

Tugþúsundir barna mæta aftur til skóla á morgun að loknu kennaraverkfalli. Skóli hefst á morgun samkvæmt stundarskrá. Atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu ríkissáttasemjara á að vera lokið 8. nóvember. Fræðsluráð Reykjavíkur mælist til þess að þriggja daga vetrarfrí sem átti að hefjast á miðvikudag í flestum grunnskólum Reykjavíkur verði fellt niður.

Níu milljarða hækkun

Pétur Blöndal, alþingismaður, hafnar því að ríkið sé stikkfrí í kennaradeilunni og bendir á að ef kennarar samþykkja miðlunartillögu ríkissáttasemjara hækka lífeyrisskuldbindingar ríkisins um níu milljarða.

Vill ekki tjá sig um refsingar

Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra segir að samráð olíufélaganna verði ekki liðið en hún vill ekki tjá sig um hvernig refsa beri fyrir samráðið. Rannsókn samkeppnisyfirvalda á meintu samráði olíufélaganna hefur staðið lengi, enda skýrslan sem skilað var löng og ítarleg.

Þvinguðu fram hækkanir í Noregi

Íslensku olíufélögin þrjú þvinguðu norska olíufélagið Statoil til að hækka olíuverð til íslenskra skipa í Færeyjum svo þau hættu að kaupa olíu þar. Friðrik J. Argrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir ljóst að útgerðafélög hafi tapað miklum fjármunum á samráði olíufélaganna og að nauðsynlegt sé fyrir útgerðarfélögin að kanna bótarétt sinn.

Neytendur borga brúsann

Formaður Neytendasamtakanna segir að á endanum verði það neytendur sem borgi brúsann vegna samráðs olíufélaganna. Nauðsynlegt sé að láta reyna á bótarétt neytenda. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna segist hryggur yfir því að lesa skýrsluna, hvað brotaviljinn hafi verið einbeittur og hvað brotin hafa staðið lengi.

Eldisþorskur helmingur þorsks

Tilraunaeldi á þorski er nú í gangi á fimmtán stöðum víða um land. Á Tálknafirði sjá menn fyrir sér að eftir fimmtán ár verði eldisþorskur helmingur þess þorskafla sem þar verði unnið úr. Við erum á leið að eldiskvíum í Tálknafirði til að fylgjast með því þegar þorskur er fóðraður.

Vill afsláttinn burt

Pétur Blöndal alþingismaður gagnrýnir þá ákvörðun fjármálaráðherra að hreyfa ekki við sjómannaafslættinum meðan núverandi samningar sjómanna og útvegsmanna eru í gildi. Hann vill afnema afsláttinn strax.

Flytja ferskan fisk með flugi

Fiskverkendur á Vestfjörðum flytja nú fiskinn úr landi í stórauknum mæli ferskan með flugi frá Keflavík þótt það kosti akstur yfir fjölda fjallvega og ferjusiglingu yfir Breiðafjörð.

Vill halda afslættinum

"Þetta er kjarasamningsatriði og við það verður að standa," segir Guðmundur Halllvarðsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Vill afnema sjómannaafsláttinn

Ég hefði viljað sjá sjómannaafsláttinn felldan niður af þeirri einföldu ástæðu að ég er þeirrar skoðunar að allir eigi að greiða jafn hátt skatthlutfall, burt séð frá þeim störfum sem menn vinna" segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.

Mógúll mætir á umferðarþing

Max Mosley, forseti alþjóðasambands akstursfélaga, verður í hópi ræðumanna á Umferðarþingi sem haldið verður undir lok mánaðarins. Mosley hefur gengt starfinu í rúman áratug en var áður ökuþór í Formúlu 2 kappakstrinum og rak síðar eigið keppnislið í Formúlu 1.

Anna Pálína Árnadóttir látin

Anna Pálína Árnadóttir söngkona lést á heimili sínu að morgni laugardagsins 30. október, 41 árs að aldri. Anna Pálína háði æðrulausa baráttu við krabbamein í fimm ár. Hún flutti fyrirlestra um lífið með sjúkdómnum og fyrr á þessu ári kom út eftir hana bókin Ótuktin um sama efni.

Skattaafsláttur forsenda samninga

Sérstökum skattaafslætti sjómanna var komið á fyrir hálfri öld til að laða fleiri Íslendinga á sjóinn. Loforð fjármálaráðherra nú gengur gegn ársgömlu frumvarpi hans um niðurfellingu afsláttarins. </font /></b />

RÚV hirti bíl af hágrátandi börnum

Auður Hrafnsdóttir og Eggert Sigurbergsson eru í áfalli eftir að hafa ríkisútvarpið tók af þeim fjölskyldubílinn vegna skuldar á afnotagjöldum upp á 26 þúsund krónur. Börn þeirra hafi hágrátið þegar kranabíll og lögreglubíll fjarlægði bílinn þar sem hann stóð fyrir framan hús fjölskyldunnar þrátt fyrir að þau hafi verið búin að semja um greiðslu.

Börn handtekin í dópbæli í Vogunum

Lögreglan í Reykjavík lagði hald á meint þýfi og fíkniefni í húsleit í kjallaraíbúð á Langholtsvegi um helgina. Drengur fæddur árið 1987 er skráður fyrir íbúðinni. Foreldrar hans búa erlendis. Nágrannar segja stöðugan straum af ungum krökkum hafa aukist í verkfallinu. Lögreglan hefur haft afskipti að stelpum allt niður í þrettán ára í íbúðinni.

Eiginmaður svindlaði á ráðuneytinu

Olíufélögin beittu dómsmálaráðuneytið ólögmætu samráði segir Samkeppnisstofnun. Sólveig Pétursdóttir var dómsmálaráðherra á þeim tíma. Kristinn Björnsson, eiginmaður Sólveigar og fyrrum forstjóri Skeljungs, tók þátt í brotunum samkvæmt Samkeppnisstofnun. Sólveig segist ekki hafa grunað eiginmann sinn um græsku. Hún viti ekkert um "meint" samráð olíufélaganna.

Bílbeltin björguðu

Tveir bílar ultu, svo að segja á sömu mínútunni, í umdæmi lögreglunnar á Hvolfsvelli um sjö leytið í gær.

Óánægja kraumar í kennurum

"Það er mikill hiti í okkur og kraumandi óánægja," segir kennari í Rimaskóla, sem segist hiklaust ætla að segja upp starfi sínu í vor verði þessi miðlunartillaga samþykkt.

Engin laun til kennara

Þótt kennarar í grunnskólum, sem verið hafa í verkfalli, mæti til vinnu sinnar þessa viku fá þeir engin laun útborguð um þessi mánaðamót.

Alfreð vill enn Þórólf

Alfreð Þorsteinsson, oddviti Framsóknarmanna í borgarstjórn, segir fréttir um afskipti Þórólfs Árnasonar borgarstjóra af samráði olíufélaganna engu breyta í mati sínu á því að Þórólfur eigi að taka að sér að verða pólitískur leiðtogi R-listans í næstu sveitarstjórnarkosningum.

Óvíst hvernig bæta á skaðann

"Við vitum ekkert hvernig eða hvort á að bæta börnum upp þennan tíma sem fallið hefur úr," segir Hanna Hjartardóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands.

Annar samningur fyrir félagsdómi

Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir Sólbakssamningana sem liggja nú sem gögn fyrir félagsdómi vera allt aðra en þá sem styrr stóð um í september.

Íslendingur kosinn forseti

Andrés Jónsson, formaður ungra jafnaðarmanna, var í gær kosinn forseti Norðurlandaráðs æskunnar á þingi þess í Stokkhólmi eftir all snarpa kosningabaráttu. "Ég vildi upphaflega stuðla að því að fulltrúi frá Vestur-Norðurlöndum kæmist í stjórn, en svo fór að það var skorað á mig að gefa kost á mér til formennsku."

Ekki ákveðið að afnema afsláttinn

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra vísar á bug gagnrýni á ríkisstjórnina fyrir að lýsa yfir því að sjómannaafsláttur verði til ársins 2008 í tengslum við kjarasamninga sjómanna. Hann segir ekki hægt að bera þetta saman við afskiptaleysi ríkisins af kennaradeilunni.

Ísland í hlutverki áheyrnarfulltrú

Norðurlandaþjóðirnar í Evrópusambandinu og Eystrasaltsríkin funduðu sérstaklega í tengslum við Norðurlandaráðsþingið í Stokkhólmi. "Kysum að þetta væri ekki svona," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Ísland lýkur forystu í Norðurlandasamstarfi á þinginu sem hefst í dag.

Samningur í dag

Tímamótasamningur verður undirritaður hjá ríkissáttasemjara í dag þegar sjómenn og útvegsmenn skrifa undir nýjan kjarasamning. Þetta er í fyrsta skipti í tíu ár sem þessir aðilar komast að samkomulagi um kaup og kjör, án þess að grípa verði til lagasetningar stjórnvalda.

Náðust eftir stuld á skjávörpum

Tveir innbrotsþjófar, sem brutust inn í raftækjaverslun í austurborg Reykjavíkur í nótt, náðust á flótta eftir að bíll sem þeir óku hafnaði í húsagarði í Fossvogi. Til þeirra sást á innbrotsstað en þar tókst þeim að stela sjö skjávörpum áður en þeir flúðu af vettvangi. Lögreglan hélt í humátt á eftir flóttabílnum en eftirförinni lauk eftir skamma stund.

Sjö handteknir fyrir fíkniefnahald

Lögreglan í Reykjavík gerði áhlaup í gærkvöldi inn í hús við Langholtsveg sem grunur lék á að væri það sem kallað er fíkniefnagreni. Sá grunur reyndist á rökum reistur því í húsinu fundust bæði fíkniefni og nokkuð af hlutum sem taldir eru þýfi. Sjö manns voru handteknir í húsinu og verða þeir yfirheyrðir í dag.

Hlaup hafið í Skeiðará

Hlaup er hafið í Skeiðará. Búist er við að það nái hámarki á næstu tveimur sólarhringum og verði stærra en hlaupin sem komið hafa á undanförnum árum. Fyrstu merki um að hlaupið sáust á jarðskjálftamælum í gær sem sýndu óróa við Grímsvötn í Vatnajökli en þaðan kemur hlaupvatnið.

Tveir slösuðust í Eyjafirði

Tveir menn slösuðust þegar fólksbíll og malarflutningabíll rákust saman í Eyjafirði síðdegis í gær. Áreksturinn varð á Moldhaugahálsi við Dalvíkur-afleggjara norðan Akureyrar. Tveir sjúkrabílar vorus sendir á staðinn auk tækjabíls slökkviliðsins á Akureyri en beita þurfti klippum til að ná manni sem var fastur í flaki fólksbílsins.

Nýr framkvæmdastjóri

Almar Örn Hilmarsson, framkvæmdastjóri Tæknivals, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri flugfélagsins Iceland Express. Almar, sem er 31 árs lögfræðingur að mennt, tekur við af Sigurði I. Halldórssyni, fyrrum stjórnarformanni Iceland Express, sem gegnt hefur tímabundið starfi framkvæmdastjóra félagsins.

Slapp ómeiddur er kviknaði í

Ökumaður á leið frá Suðureyri slapp ómeiddur þegar eldur kviknaði í bíl hans við bæinn Botn í Súgandafirði um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Bílinn var að nálgast munn Vestfjarðaganga þegar eldurinn kom upp í vélarrými. Ökumaður var einn í bílnum og tókst honum að forða sér. Slökkvilið og lögregla kæfðu eldinn en bíllinn er hins vegar talinn ónýtur.

Sjá næstu 50 fréttir