Þurfti að gefa upp kennitölu 31. október 2004 00:01
Það er andstætt lögum að krefjast kennitölu við venjuleg staðgreiðsluviðskipti, svo sem þegar fólk kaupir miða á tónleika. Eldri kona þurfti nýlega að gefa upp kennitölu til að fá að kaupa miða á tónleika í Salnum í Kópavogi. Persónuvernd hefur málið til umfjöllunar, en margar svipaðar kvartanir berast ár hvert. Nýlega lenti eldri kona í því þegar hún keypti miða á tónleika í Salnum í Kópavogi að hún var beðin að gefa upp kennitölu sína. Var hún ekki sátt við það, en var tjáð í miðasölunni að hún gæti annars ekki keypt miðann. Gerði hún það þá til að komast á tónleikana, en kvartaði til Persónuverndar. Yfirmaður miðasölu í Salnum segir að beðið sé um kennitölu svo hægt sé að halda vel utan um viðskiptamannahópinn. Nöfn þeirra séu prentuð á miðana, og margir heiti sama nafni. Auk þess sé beðið um símanúmer svo hægt sé að hafa samband við viðkomandi ef tónleikar falla niður. Hún neitaði því þó að kenntala sé skilyrði fyrir því að fá að kaupa miða. Það er skýrt í lögum um Persómuvernd að ekki sé heimilt að krefja fólk um kennitölu, nema það hafi málefnalegan tilgang og sé nauðsynlegt til að tryggja örugga persónugreiningu. Lögfræðingur hjá Persónuvernd segir að það að krefjast kennitölu við venjuleg staðgreiðsluviðskipti svo sem við kaup á miðum á tónleika í Salnum virðist andstætt lögunum. Fyrri úrskurðir Persónuverndar hafi einmitt fallið á þá leið, enda fær Persónuvernd reglulega til sín kvartanir frá fólki sem hefur þurft að gefa upp kennitölur sínar í venjulegum viðskiptum.
Fréttir Innlent Mest lesið Ekki hægt að draga ályktanir um hver varð manninum „líklegast“ að bana Innlent Gosmóðan gæti setið sem fastast fram á fimmtudag: „Menn verða að taka þetta alvarlega“ Innlent Lokuð inni með lokað fyrir glugga í þrjá daga Innlent Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Innlent Einfaldlega nýnastistar sem þýði meira ofbeldi og átök Innlent Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Innlent Hvalreki í Vogum Innlent Fundurinn vonbrigði: „Þetta leikrit er hafið“ Innlent Árekstur á Rangárvallarvegi Fréttir Hefur áhyggjur af málflutningi „taugaveiklaðrar“ stjórnarandstöðu Innlent Fleiri fréttir Ekki hægt að draga ályktanir um hver varð manninum „líklegast“ að bana Hvalreki í Vogum Gosmóðan gæti setið sem fastast fram á fimmtudag: „Menn verða að taka þetta alvarlega“ Hefur áhyggjur af málflutningi „taugaveiklaðrar“ stjórnarandstöðu Lokuð inni með lokað fyrir glugga í þrjá daga Fundurinn vonbrigði: „Þetta leikrit er hafið“ Búin að vera lokuð inni í þrjá daga vegna gosmóðunnar Vopnað rán og skartgripaþjófnaður í Reykjavík Einfaldlega nýnastistar sem þýði meira ofbeldi og átök Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Fordæma Hamas og segja áform um „mannúðarborg“ óviðunandi Stofna grunnskóla fyrir einhverf börn í Garðabæ Loftgæði versnandi á gosstöðvunum Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Sex spænskar orrustuþotur á leið til landsins Hafa tapað tvö hundruð milljónum króna vegna fjársvika Hafa sótt um bráðabirgðaleyfi Vill vita hvaða samningar eru í undirbúningi gagnvart ESB Verði fram á nótt að slökkva eld í trjákurlinu Geta greint frá svörum Þorgerðar ef hún gefur leyfi Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar „Það þarf ekki alveg að halda sig innandyra“ „Þetta eru markvissar aðgerðir til að brjóta niður menntastofnanir“ Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Mesta mengun frá upphafi eldsumbrota og deilt um utanríkismálin Tveggja katta enn saknað eftir eldsvoða á Tryggvagötu Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Sjá meira