Fleiri fréttir

Enn ráða dælur ekki við lekann

Unnið er að því um borð að setja upp skilrúm og koma í veg fyrir að sjórinn nái úr vélarrými skipsins. Kafarar vinna nú að því að meta stöðuna varðandi skemmdir á botni skipsins.

Líkur á gosi úr Bárðarbunguöskjunni meiri

„Við gefum okkur að við höfum lítinn tíma til þess að undirbúa okkur. Við ætlum að vinna þetta mjög hratt og fara yfir áætlanir okkar í dag,“ segir Víðir Reynisson hjá Almannavörnum.

Óttast hefndaraðgerðir al-Shabab

Sómalskur hershöfðingi sagði í sjónvarpsávarpi í gærkvöldi að stjórnvöl hefðu upplýsingar um að meðal annars myndu árásirnar beinast gegn skólum og sjúkrahúsum.

Óþarft að krefjast rafrænna skilríkja

Þúsundir og jafnvel tugþúsundir manna gætu þurft að verða sér út rafræn skilríki á örfáum vikum verði þetta skilyrði sett fyrir lækkun höfuðstóls húsnæðisskulda.

Vopnahlé í Úkraínu heldur

Þrátt fyrir það hefur einn leiðtogi aðskilnaðarsinna haldið því fram að stjórnarherinn hafi brotið gegn samkomulaginu, sem sýnir hve brothætt vopnahléið er.

Dælur hafa ekki undan

Talsverður sjór er í vél Akrafells sem misst hefur allt vélarafl og rafmagn.

Drápu leiðtoga Al Shabab

Bandarísk hernaðaryfirvöld staðfestu í gær að hryðjuverkaleiðtoginn Ahmed Abdi Godane hafi fallið í Sómalíu á mánudaginn þegar loftárás var gerð á bækistöðvar samtaka hans í Sómalíu.

Eldfjall stefnir byggð í hættu

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Havaí vegna þess að hraun úr eldfjallinu Kilaeuea nálgast bæ í nágrenninu. Nú eru einungis 1,6 kílómetrar frá hrauninu að þorpinu. Jarðvísindastofnunin á Havaí telur að hraunið muni ná að bænum Kaohe innan viku.

Fjórðungur hættir námi

Einungis 45 prósent þeirra sem hefja nám í framhaldsskóla á Íslandi ná að ljúka námi á fjórum árum. Miðað er við nemendur sem innrituðust í skóla haustið 2004 og hver staða þeirra er fjórum, sex og sjö árum síðar.

Námsskuldir fylgja fólki inn í ellina

„Íslenska námslánakerfið þarfnast heildstæðrar endurskoðunar. Nú er svo komið að námsskuldir fylgja fólki inn í ellina.“ Þetta segir Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM, Bandalags háskólamanna, um niðurstöður kjarakönnunar bandalagsins sem gerð var í vor. Svör úr könnuninni benda til að 22 prósent svarenda verði enn að greiða af námslánum þegar eftirlaunaaldri er náð. Konur eru lengur að greiða af námslánum en karlar en endurgreiðslur námslána eru tekjutengdar. Rúmlega helmingi svarenda með námslán finnst endurgreiðsla þeirra íþyngjandi eða verulega íþyngjandi.

„Kemur boltanum rækilega af stað“

„Vilyrðið frá Kvikmyndasjóði breytir öllu,“ segir Ása Helga Hjörleifsdóttir kvikmyndagerðarkona, sem hefur fengið vilyrði fyrir 80 milljóna króna styrk úr Kvikmyndasjóði Íslands fyrir árið 2016 en ekki hefur verið tilkynnt um fleiri styrki úr sjóðnum fyrir það ár. Styrkinn fær Ása Helga fyrir Svaninn, kvikmynd byggða á samnefndri skáldsögu Guðbergs Bergssonar. Styrkinn segir Ása munu auðvelda þeim að leita alþjóðlegra styrkja en meðframleiðendur myndarinnar koma frá Þýskalandi og Frakklandi.

Segir ritarann með lykilinn

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segist ekki vita hver noti sumarhús við Þingvallavatn sem upplýsingafulltrúi fyrirtækisins segir forstjórann hafa ráðstöfunarrétt yfir.

Reynir bíður eftir brottrekstrinum

„Þetta var hundleiðinlegur fundur. Hörkuátök og mikið af kaupsamningum voru gerðir á servíettur sem endaði með því að við töpuðum.“

Ný stjórn DV kjörin á aðalfundi

Mikið gekk á á fundinum og gengu hlutabréf í félaginu kaupum og sölum. Skrifað var undir kaupsamninga hlutabréfa á servíettur.

NATO sendir skýr skilaboð til Moskvu

Leiðtogar NATO samþykktu að stofna viðbragðssveit þúsunda hermanna sem brugðist geti viðátökum víðs vegar um heiminn á nokkrum dögum. Skýr skilaboð til Moskvu segja leiðtogarnir.

Einkaflugvél brotlenti við Jamaíka

Flugumferðarstjórar höfðu reynt að ná sambandi við stjórnendur vélarinnar um nokkurt skeið, án árangurs, áður en hún brotlenti.

Sóttu slasaða konu í Klambragil

Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út síðdegis eftir að erlend ferðakona slasaðist í Klambragili, sem er ofarlega í Reykjadal.

Reyni tíðrætt um jakkafötin

Kosning nýrrar stjórnar útgáfufélags DV er á dagskrá framhaldsaðalfundarins. Í kjölfarið tekur ný stjórn til starfa. Samkvæmt heimildum Vísis innan úr hluthafahópnum verður boðað til stjórnarfundar sem fyrst og verður þar rætt um ráðningu nýs ritstjóra.

Sjá næstu 50 fréttir