Jarðeldarnir stigmagnast og líkur aukast á gosi í jökli Kristján Már Unnarsson skrifar 5. september 2014 19:15
Jarðeldarnir norðan Dyngjujökuls hafa nú stigmagnast með opnun nýrrar gossprungu í morgun. Líkur á að sprungan opnist undir jöklinum með hættu á hlaupi í Jökulsá á Fjöllum hafa enn aukist, segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur. Eldvirknin var í dag enn langmest sunnan við miðbik sprungunnar sem opnaðist um síðustu helgi, einnig gýs áfram á báðum endum sprungunnar, bæði nyrst og syðst. En þegar myndavélinni er beint sunnar sjáum við sporð Dyngjujökuls birtast fjær en síðan kemur í ljós nýjasta viðbótin í þessari mögnuðu atburðarás; ný gossprunga sem opnaðist snemma í morgun. Hún er áætluð um 400 metra löng og því talsvert minni en hin sprungan, sem er um 1.500 metra löng. Hún er hins vegar mun nær jöklinum, aðeins um einn til einn og hálfan kílómetra frá jökulsporðinum. Það er því að rætast sem vísindamenn höfðu spáð, að líklegast væri að gossprungan myndi teygja sig nær jöklinum. Í forföllum flugvélar Landhelgisgæslunnar, sem sinnir verkefni á Grænlandi, var flugvél ISAVIA, sem Mýflug hefur á leigu, fengin til að hlaupa í skarðið og flaug með vísindamenn í dag yfir svæðið. „Þetta er nú miklu minna gos sem er á þessum stað,” sagði Magnús Tumi Guðmundsson eftir lendingu um nýju sprunguna. „En þetta gerist á sama tíma og það er fullur kraftur í gömlu gossprungunni. Þetta er náttúrlega viss stigmögnun.” Myndir í frétt Stöðvar 2 í kvöld, sem Þórhallur Jónsson hjá Pedró-myndum tók, sýna vel þann mikla kraft sem enn er í jarðeldunum, nú á sjötta degi. Helsti tilgangur flugferðar vísindamanna í dag var hins vegar að skoða yfirborð Bárðarbungu og Dyngjujökuls og fannst ný sigdæld í Dyngjujökli. Sú er breið og grunn og um 10 kílómetra inni í jöklinum.Magnús Tumi Guðmundsson á Reykjavíkurflugvelli síðdegis.Stöð 2/Sigurjón Ólason.„Þetta er í fullum gangi. Líkurnar á því að þetta teygi sig alla leið inn undir Dyngjujökul hafa fremur aukist miðað við atburði dagsins. Svo við bara bíðum og sjáum hverju fram vindur,” segir Magnús Tumi. Ýmsir hafa gagnrýnt Almannavarnir fyrir að halda svæðinu lokuðu gagnvart almenningi og aðgangur fjölmiðlamanna- og visindamanna hefur einnig verið takmarkaður. „Ég held að það sé full ástæða til, og atburðir þeir sem við höfum séð í dag, undirstrika mikilvægi þess að það sé ekki fólk á svæðinu nema það virkilega þurfi þess. Vegna þess að ef sprungan fer af stað undir jöklinum þá fer hlaup yfir Flæðurnar og þá er sá illa staddur sem þar er,” segir Magnús Tumi.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira