Innlent

„Kemur boltanum rækilega af stað“

Anna Dröfn Ágústsdóttir skrifar
Ása Helga uppgötvaði Svaninn þegar hún nam bókmenntafræði við Háskóla Íslands.
Ása Helga uppgötvaði Svaninn þegar hún nam bókmenntafræði við Háskóla Íslands. fréttablaðið/Valli
„Vilyrðið frá Kvikmyndasjóði breytir öllu,“ segir Ása Helga Hjörleifsdóttir kvikmyndagerðarkona, sem hefur fengið vilyrði fyrir 80 milljóna króna styrk úr Kvikmyndasjóði Íslands fyrir árið 2016 en ekki hefur verið tilkynnt um fleiri styrki úr sjóðnum fyrir það ár. Styrkinn fær Ása Helga fyrir Svaninn, kvikmynd byggða á samnefndri skáldsögu Guðbergs Bergssonar. Styrkinn segir Ása munu auðvelda þeim að leita alþjóðlegra styrkja en meðframleiðendur myndarinnar koma frá Þýskalandi og Frakklandi.

Ása var í hópi tíu leikstjóra sem valdir voru til að kynna handrit á Kvikmyndahátíðinni í Berlín en mikill heiður er að vera boðin þátttaka. Þrjú handrit voru sérstaklega verðlaunuð og var handrit Ásu eitt af þeim.

Gengið var endanlega frá kvikmyndaréttinum á Svani Guðbergs Bergssonar í september í fyrra en fleiri sýndu réttinum áhuga.

Ása Helga uppgötvaði Svaninn þegar hún las hann í bókmenntafræði við Háskóla Íslands. „Ég heillaðist alveg af honum. Hann hafði rosaleg áhrif á mig. Ég fór strax að hugsa mjög myndrænt um bókina.“

Móðir Ásu Helgu, Birna Bjarnadóttir, er doktor í bókmenntafræði og sérfræðingur í bókmenntum Guðbergs Bergssonar. Ása segir starf móður sinnar ekki hafa ýtt undir áhuga sinn á Guðbergi heldur mögulega frekar haft öfug áhrif. „Ég hafði engan áhuga á bókum Guðbergs þegar ég var yngri. Ég fékk meira að segja Svaninn í fermingargjöf og skilaði honum,“ segir Ása hlæjandi. Þær mæðgur segir hún vera miklar vinkonur og að hún hafi ítrekað leitað til móður sinnar við gerð handritsins. „Mamma er minn helsti ráðgjafi.“

Svanurinn er fyrsta mynd Ásu í fullri lengd en hún vakti mikla athygli fyrir stuttmyndina Ástarsaga, sem var lokaverkefni hennar frá kvikmyndagerðardeild Columbia-háskóla í New York. Ása bjó þar þangað til síðasta haust þegar hún flutti aftur til Íslands. Ekki liggur fyrir hvenær tökur muni hefjast en Ása er byrjuð að hugsa um tökustaði og er mjög hrifin af hugmyndinni um að taka upp í Svarfaðardal, en hún á ættir að rekja þangað. Hún getur ekkert sagt um leikaraval en aðalpersónan í bókinni Svaninum er níu ára stúlka. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×