Fleiri fréttir

Treyja Arons Pálmarsonar á uppboði

Aron Pálmason, handboltakappi, hefur gefið treyju til uppboðs fyrir minningarsjóð Sigrúnar Mjallar. Þann 22. desember verður einni milljón króna úthlutað úr sjóðnum.

Niðurstaðan í samræmi við væntingar embættis Sérstaks saksóknara

Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari segist ekki vera búinn að kynna sér niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í smáatriðum en dómsniðurstaðan hvað refsingu varðar sé í samræmi við það sem embættið átti von á og ekki svo langt frá því sem farið var fram á.

Brugðist við innbroti hjá Vodafone

Fyrirtæki með starfsemi sem telst til mikilvægra innviða samfélagsins réðust öll í sérstaka úttekt á netöryggismálum eftir innbrot á vef Vodafone nýverið.

ÁTVR þegar hafnað keimlíkum drykkjum

ÁTVR hefur heimild til að hafna því að selja áfenga drykki séu umbúðir þeirra keimlíkar öðrum. Hefur hafnað vörum og farið fram á breytingu á umbúðum. Lögin ýta undir að ÁTVR beiti geðþóttavaldi við val á vörum í sölu, segir innflytjandi.

Fríkirkjan í Hafnarfirði 100 ára

Sérstök hátíðarmessa verður haldin í Fríkirkjunni í Hafnarfirði næstkomandi sunnudag, í tilefni af hundrað ára afmæli fríkirkjunnar.

Bilun um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni

Alvarleg bilun varð í kælikerfi Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, ISS, snemma í morgun. Geimfararnir þrír sem eru um borð eru ekki í hættu samkvæmt upplýsingum frá NASA.

Stofna félag jákvæðra á Alþingi

Óttarr Proppé, þingmaður Besta Flokksins, og Þórunn Egilsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, hafa stofnað félag jákvæðra á Alþingi.

Námsmenn látnir borga brúsann

Hækka á skráningargjöldin í Háskóla Íslands en skólinn mun aðeins fá tæpar 40 milljónir af þeim 213 milljónum sem gjaldið gefur.

100 kílómetra langt Austurstræti

Frumkvöðlar í ferðaþjónustu á Austurlandi vilja bjóða ferðafólki nýja gönguleið yfir hálendið. Gengið verður úr Lóni yfir í Fljótsdal um 100 kílómetra leið á sjö dögum. Vonir standa til að dreifa megi álagi á svæði sem þegar eru vinsæl, þar sem Laugavegurinn er þekktastur.

Erlendur maður áreitir íslenskar stúlkur

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir laganemi var áreitt af bandarískum manni oft á dag í margar vikur á netinu. Hún segir fleiri íslenskar stúlkur hafa lent í honum.

Krefjast bóta frá Norðmönnum, Dönum og Svíum vegna þrælahalds

Nefnd á vegum eyríkja í Karabíska hafinu krefst þess að ríkin í Skandinavíu greiði þeim bætur fyrir aðkomu landsins að þrælahaldi fyrr á öldum. Samtökin hafa um nokkurra ára skeið unnið að því að fá bætur frá gömlu nýlenduherrunum Bretum, Frökkum og Hollendingum.

Handtekin í Leifsstöð

Erlenda parið, sem lögreglan lýsti eftir í gær vegna rannsóknar á þjófnaðarmáli, var handtekið í Leifsstöð í gærkvöldi, á leið úr landi.

Bensínþjófar í háskaakstri við Hamraborg

Háskaakstur bensínþjófa endaði með því að að bíl þeirra hvolfdi á Hafnarfjarðarvegi við Hamraborg laust fyrir klukkan ellefu í gærkvödi. Ökumaðurinn ók fyrst utan í annan bíl, en kastaðist af honum utan í brúarvegginn og valt þaðan á hvolf.

Óvenjumargir gistu fangageymslur

Lögregla stöðvaði bíl í austurborginni á tólfta tímanum í gærkvöldi þar sem tilkynnt hafði verið um undarlegt ökulag. Ökumaðurinn reyndist undir áhrifum fíkniefna og var hann vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar á öðru sakamáli, sem hann tengist.

Grunur um að vitnum í Stokkseyrarmálinu hafi verið hótað

Vitni hafa breytt framburði sínum fyrir dómi og kannast ekki við frásagnir sem þau gáfu við rannsókn Stokkseyrarmálsins hjá lögreglu. Ríkissaksóknari segir að úrræði vanti hjá lögreglu fyrir fólk sem óttast hefndaraðgerðir ofbeldismanna.

Átta fjölskyldur fá 1,5 milljónir fyrir jól

"Ég er sannfærður um að allir þeir sem hafa tekið þátt í söfnuninni eiga eftir að finna jafnvel eitthvað örlítið betra bragð af jólamatnum,“ segir Örvar Þór Guðmundsson, 36 ára fjölskyldufaðir í Hafnarfirði.

Máttu ekki semja við lægstbjóðanda

Fulltrúar meirihluta VG og Samfylkingar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar segja sorpeyðingagjald hækka um 6,8 prósent vegna úrskurðar sem meini bænum að semja við lægstbjóðanda um sorpþjónustu.

Skipulag jólasveinsins slær í gegn

Ragnheiður Stefánsdóttir segir jólasveininn sýna fyrirhyggjusemi í skógjöfum og gefa fjölskyldunni gæðastundir á morgnana í desember.

Kominn með vinnu og þak yfir höfuðið

Litháiski maðurinn sem búið hefur í bíl sínum við Esjurætur síðustu mánuði hefur eignast fjölda velunnara síðan í gærkvöldi, en einstaklingar, fyrirtæki og hjálparsamtök hafa boðist til að rétta honum hjálparhönd.

Bandarísku forsetahjónin skiptu um sæti

Bandaríska forsetafrúin Michelle Obama leit ekki út fyrir að vera ánægð með uppátæki eiginmanns síns, Barack Obama Bandaríkjaforseta, við minningarathöfn Nelson Mandela í gær.

Stekkjastaur er lagður af stað

Lögreglumenn í Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sáu til Stekkjastaurs í kvöld þar sem hann var að leggja af stað til byggða.

Frábært færi í Bláfjöllum

Opið var í dag í Bláfjöllum. Færið var gott og fjölmargir mættu. Ungir sem aldnir skemmtu sér á skíðum og snjóbrettum.

Sjá næstu 50 fréttir