100 kílómetra langt Austurstræti Svavar Hávarðsson skrifar 12. desember 2013 10:07 Göngufólk leggur af stað niður Illakamb. Skála- og tjaldstæði má sjá við Kollumúla. Mynd/gbó
Hugmynd ferðaþjónustufólks á Austurlandi um 100 kílómetra gönguleið á milli Lóns og Fljótsdals er komin á góðan rekspöl. Austurstræti, eins og leiðin er kölluð, er hugsuð sem valkostur við lengri gönguleiðir eins og Laugaveginn. Það mun taka útivistarfólk eina viku að ganga strætið enda á milli. Ekkert bendir til annars en að rík þörf sé á þessum valkosti því sífellt fleiri Íslendingar fara í lengri gönguferðir og stór hluti erlendra ferðamanna sækist eftir slíkum tengslum við náttúruna. Einnig er æskilegt að byggja upp slíka leið í ljósi umræðu um dreifingu ferðamanna um landið og álag á þá staði sem eru vinsælir.Snæfell. Hæsta fjall Íslands utan jökla, sem margir vilja kalla drottningu íslenskra fjalla.mynd/denniByggt á gömlum merg Gunnlaugur B. Ólafsson, sem ásamt Steingrími Karlssyni kynnti hugmyndina fyrir áhugasömum fyrir helgi, segir að byggt sé á eldri gönguleið frá Snæfelli í Lón með erfiðri dagleið yfir Eyjabakkajökul. Því eru 80% leiðarinnar þegar tilbúin, en margt þó breytt. Annars vegar er Lónmegin kominn skáli við Eskifell og 95 metra göngubrú við Einstigi sem opnar leið til byggðar. Hins vegar er Fljótsdalsmegin komin akfær brú yfir Jökulsá og byggt hefur verið upp stórglæsilegt gistihús við Laugarfell. Þá hefur Óbyggðasafn risið á bænum Egilsstöðum og gestastofa þjóðgarðs á Skriðuklaustri. Því byrjar leiðin og endar á tveimur sögulegum stöðum.Tröllakrókar. Mikilfenglegur staður, um 8 kílómetra móbergsbelti sem geymir fjölbreytilega skúlptúra.MYND/GBÓGunnlaugur segir að einn hlekk vanti inn í þessa keðju svo hún sé samfelld milli byggða, en um 27 kílómetrar eru í beinni loftlínu milli skála í Geldingafelli og gistihúss í Laugarfelli. „Eftir að hafa legið yfir kortum var stungið upp á því að setja nýtt skálasvæði á miðri leið við Eyjabakkafoss, sem Fljótsdalshreppur hefur síðan tekið tillit til við endurskoðun á aðalskipulagi. Með þessari útfærslu er komin aðgengileg leið um ævintýralegt þversnið af íslenskri náttúru. Ein lengsta og best útbúna gönguleiðin yfir hálendið,“ segir Gunnlaugur og bætir við að skálarnir á leiðinni séu meira og minna tómir yfir mesta ferðamannatímann. Þegar eru fimm skálar fyrir hendi.Gönguhópur á leið ofan í hið litskrúðuga líparít í Hvannagili.mynd/gbóHægur ferðamáti Hugsunin á bak við nýja gönguleið er ekki síst sú að svara kalli ferðaþjónustunnar um nýja viðkomustaði fyrir ferðamenn hér á landi. Þar er í forgrunni að dreifa álaginu af fjölgun ferðamanna. Fréttablaðið hefur sérstaklega fjallað um ástand gönguleiðarinnar á milli Landmannalauga og Þórsmerkur – Laugaveginn. Gunnlaugur segir að sífellt fleiri vilji taka sér tíma og njóta náttúrunnar í anda hins hæga ferðamáta [slow travel]. Eftirspurn eftir lengri gönguleiðum sé því vissulega fyrir hendi, og þær séu fáar hérlendis. Hann segir að eftir engu sé að bíða, í spilunum sé að ferðamannastraumur aukist verulega á Austurlandi og þegar það gerist megi menn ekki eiga grunnvinnuna eftir.Vestra-Horn
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira