Fleiri fréttir

Baldur siglir ekki í dag

Ferð ferjunnar Baldurs fellur niður í dag vegna óveðurs samkvæmt upplýsingum frá Sæferðum. Til stóð að Baldur legði úr höfn klukkan þrjú í dag frá Stykkishólmi og svo klukkan sex frá Brjánslæk. Glórulaus bylur er nú á Stykkishólmi sem og víðar. Gert er ráð fyrir að siglt verði á morgun.

Snjóruðningstæki að störfum síðan þrjú í nótt

Snjóruðningstæki og bílar hafa verið að síðan þrjú í nótt. Reynt er að halda stofnbrautum og strætisvagnaleiðum opnum og að tryggja að fólk komist inn á bílastæði við grunnskóla og leikskóla.

Öllum ferðum Strætó aflýst

Vegna slæmrar færðar og veðurs má búast við miklum seinkunum á öllum leiðum höfuðborgarsvæðisins í dag samkvæmt upplýsingum sem finna má á heimasíðu Strætó.

Lögreglan hvetur fólk til að vera heima

Reikna má með að öll heimaþjónusta, heimahjúkrun og félagsleg heimaþjónusta í Reykjavík gæti orðið sein í dag vegna veðurs. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. Þar segir líka að haft verður samband við fólk ef fella verður niður þjónustu sökum ófærðar.

Vesturlandsvegur lokaður

Vesturlandsvegur hefur lokast á ný vegna ófærðar. Fólki er ráðlagt að aka ekki um Vesturlandsveginn.

Ferðafólk í vandræðum við Landmannalaugar

Fjölmennt björgunarsveitarlið var kallað út á Suðurlandi á áttunda tímanum og er lagt af stað á sérbúnum jeppum og snjóbílum í átt til Landmannalauga, en þar er ferðafólk í fimm jeppum í vandræðum.

Stórhríð og kolófært víða á landinu

Vonskuveður er á Suðurlandi og víðast hvar ekki ferðaveður. Ófært er bæði á Hellisheiði og í Þrengslum og er fólk eindregið beðið að hlíta tilmælum lögreglu um að reyna ekki að fara þar um.

Búið að opna Vesturlandsveg

Búið er að opna Vesturlandsveg að nýju en hann er lokaðist við Víkurveg vegna ófærðar, blindu og svo er árekstur við Víkurvegsbrú. Ástand á Víkurvegi einnig slæmt. Búið að kalla til björgunarsveit til aðstoðar, að því er segir í tilkynningu.

Mikið óveður: Hellisheiðin og Þrengslin eru lokuð

Veður fer nú mjög versnandi á Suður- og Suðvesturlandi og búið er að loka bæði Hellisheiði og Þrengslum og umferð gengur hægt um Reykjanesbraut þar sem skyggni er afleitt þótt brautin teljist fær.

Herinn kallaður út til að tryggja friðinn í Venesúela

Herinn hefur verið kallaður út í Venesúela í kjölfar andláts Hugo Chavez forseta landsins. Líkur eru taldar á óeirðum í kjölfar andlátsins og er hernum ætlað að tryggja friðinn þar til nýr forseti hefur verið kosinn.

Skutu á klúbbhús Bandidos

Byssumenn skutu fimmtán til tuttugu skotum að húsnæði Bandidos glæpasamtakanna í Hvidovre í Kaupmannahöfn í fyrrinótt. Engan sakaði en ekki er vitað hverjir voru þar að verki.

Hiti í kringum strætóstöðvar

Sett hefur verið fram áætlun um hitun umhverfis fimm af stærstu biðstöðvum Strætó í Reykjavík. Samkvæmt tillögu Ólafs Bjarnasonar samgöngustjóra borgarinnar verður byrjað á framkvæmdum við tvo staði á þessu ári; á Hringbraut við Félagsstofnun stúdenta og á Miklubraut við Kringluna.

Mugison býður sig fram á þing

„Er þetta ekki bara „pretty face“ á listanum?“ spyr Örn Elías Guðmundsson eða Mugison, sem tekur heiðurssæti á lista Bjartar framtíðar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. „Þetta er bara stuðningur við hópinn. Ef það gengur vel hefur maður efni á að leigja íbúð í bænum.“

Kvennabylting hjá bændum

Stjórn Bændasamtaka Íslands er í fyrsta skipti í sögu samtakanna skipuð konum í meirihluta. Þetta var ljóst eftir kosningar til stjórnar á Búnaðarþingi í gær.

Samkynhneigð hjón fá hæli

Samkynhneigð hjón frá Úganda hafa fengið hæli í Svíþjóð, en áður hafði öðrum manninum verið veitt hæli en hinum synjað um það.

Fleiri vilja að ríkið greiði listamannalaun

Rúmur helmingur landsmanna er andvígur því að ríkið greiði listamannalaun samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar MMR, en fækkað hefur í þeim hópi á síðustu árum.

Stefna um nýtingu landgæða

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2013-2024. Kveðið er á um slíka stefnu í skipulagslögum sem samþykkt voru á Alþingi haustið 2010.

Stefna um netöryggi Íslands verði tilbúin á næsta ári

Ekki liggur fyrir heildstæð stefna um netöryggi á Íslandi en stefnt er að því að ljúka því starfi á næsta ári. Viðbragðssveit hefur hafið störf og segir hópstjóri að ekki steðji meiri ógn að Íslandi en öðrum löndum.

Landlæknir skoðar sjálfsvíg á geðdeild

Tveir sjúklingar á geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri hafa svipt sig lífi á deildinni síðustu tvö ár. Síðara málið í skoðun hjá Landlækni. Tollur sem við verðum að greiða, segir forstöðumaður. Allt of mikið álag á geðdeildinni, segir lögreglan.

Matarmarkaður verði á Lækjartorgi í sumar

Verkefnahópur á vegum Reykjavíkurborgar leggur til að fjölbreyttur matarmarkaður verði á Lækjartorgi í sumar og að utanaðkomandi ráðgjafi komi á sambandi við sölumenn. Hópurinn sér Hlemm sem markaðshöll þegar Strætó hefur flutt.

Krefur Akranes um 64 milljónir í bætur

Mistök bæjaryfirvalda við auglýsingu skipulags varð til þess að gera þurfti nýtt deiliskipulag. Verktaki sem hugðist reisa hótel á Akranesi krefur bæinn bóta.

Var sagt að fara heim og bíða rólegur

Sigurður Valdimar Steinþórsson, íbúi á Húsavík, hefur glímt við alvarlegt þunglyndi í tvö ár. Hann gagnrýnir geðheilbrigðiskerfið á Norðurlandi harðlega og segir ekkert gert fyrir fólk í vanda.

Votta Chavez virðingu sína

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Ban Ki-moon, ritari Sameinuðu þjóðanna, hafa vottað fjölskyldu Hugo Chavez og öðrum í Venesúela virðingu sína.

Gæti orðið glórulaus bylur undir Eyjafjöllum

Undir Eyjafjöllum og í Mýrdal er spáð hríðarveðri seint í kvöld og áfram í fyrramálið. A 15-20 m/s og síðar 20-25 m/s og því gætir orðið glórulaus bylur á þeim slóðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni í kvöld.

Traust á Alþingi og bankakerfi minnst

Almenningur á Íslandi ber mest trausts til Landhelgisgæslunnar en nær níu af hverjum tíu svarendum ber mikið traust til hennar. Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Capacent.

Hugo Chavez látinn

Forseti Venesúela, Hugo Chavez, er látinn eftir tveggja ára baráttu við krabbamein. Varaforseti Venesúela greindi frá þessu í sjónvarpsávarpi í kvöld. Þar með er fjórtán ára veru Chavez í forsetastól Suður-Ameríkulandsins á enda.

Ofbeldisatvikum fækkað um helming

"Í heild er ljóst að flutningurinn hefur leitt til bættrar aðstöðu fyrir sjúklinga, starfsfólk og aðstandendur,“ segir í svari velferðarráðherra við fyrirspurn um flutning réttargeðdeildar frá Sogni að Kleppi.

Fiskur út um allt

Á annan tug fiskikara féllu af flutningabíl við Sægarða í austurhluta Reykjavíkur síðdegis í dag. Körin féllu af flutningabíl Ragnars og Ásgeirs í Snæfellsbæ. Engin slys urðu á fólki.

Bólusetning við HPV nær ekki til samkynhneigðra karla

Tuttugu Íslendingar greinast árlega með krabbamein í munni sem myndast hefur af völdum HPV-sýkingar og eru karlar þar í meirihluta. Hægt er að bólusetja drengi gegn veirunni og hófu Ástralar að gera það þeim að kostnaðarlausu í ár.

Ekkert bólar á símtalinu fræga

Fjárlaganefnd Alþingis hefur enn ekki fengið afrit af símtali Davíðs Oddssonar, þáverandi Seðlabankastjóra og Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, um risa lánveitingu til Kaupþings árið 2008. Formaður nefndarinnar er ósáttur við þá töf sem orðið hefur í málinu.

Kemur til greina að fresta öllum breytingum nema einni

Til greina kemur að fresta öllum breytingum á stjórnarskránni nema einni fram á næsta kjörtímabil. Þetta var meðal þess sem var rætt á fundi formanna stjórnmálaflokkanna á Alþingi í dag. Engin niðurstaða liggur þó fyrir en áfram verður fundað um málið á næstu dögum.

Slæm hugmynd að breyta lífeyriskerfinu

"Ég held að það sé ekki góð hugmynd,“ segir forseti ASÍ um hugmyndir um að lífeyrir ætti að fara í gegnum almannatryggingakerfið í stað núverandi kerfis.

Júlíus einn á sjó

Slæmt veður á Vestfjarðamiðum undanfarna daga hefur gert það að verkum að nánast öll skip á svæðinu liggja við bryggju.

Sjá næstu 50 fréttir