Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sex unnu 22 milljónir í Víkingalottóinu Sex einstaklingar unnu fyrsta vinning í Víkingalottóinu í kvöld og hlutu tæpar 22 milljónir í vinning hver. Vinningsmiðarnir voru allir seldir erlendis, 2 í Danmörku og 4 í Noregi. 5.9.2012 18:05
Afinn fullur með barnabarnið í bílnum Roskinn karlmaður var á dögunum stöðvaður við umferðareftirlit í borginni. Hann reyndist vera drukkinn við stýrið og ekki nóg með það því ólögráða barnabarn hans var meðferðis í bílnum. Afinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð en barnaverndaryfirvöld upplýst um málið vegna barnsins. 5.9.2012 17:42
Öldungaráð stofnað í Reykjavík Samþykkt var að stofna sérstakt öldungaráð í Reykjavík á borgarstjórnarfundi í gær. Ráðið verður skipað eldri borgurum og á að funda reglulega um málefni þeirra og vera borgarstjórn til ráðgjafar. 5.9.2012 17:25
Rannsókn í Bökkunum lögð til hliðar - augljós ósannindi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt rannsókn á meintri árás í Bökkunum um helgina til hliðar þar sem augljóslega er um ósannindi að ræða. Í samtali við lögreglu kemur fram að maðurinn verður ekki kærður fyrir að gefa ranga skýrslu en málið þó litið alvarlegum augum. 5.9.2012 17:04
Örmagnaðist á Laugavegi Björgunarsveitamenn úr Rangárvallasýslu sóttu í dag mann á Laugaveginn, gönguleiðinni milli Þórsmerkur og Landmannalauga. Maðurinn var orðinn afar þreyttur og treysti sér ekki til að ganga lengra. Björgunarsveitir fóru á þremur bílum á svæðið þar sem mikið vatn er í ám og því óráðlegt að vera einbíla á ferð. 5.9.2012 16:41
Hætta á flóðbylgju við Kosta Ríka og Panama Ekki hafa borist fregnir af stórfelldu tjóni eða mannfalli eftir að öflugur jarðskjálfti skóg norðvesturströnd Kosta Ríku í dag. Skjálftinn var 7.6 stig að stærð en upptök hans voru í um 140 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni San Jose. Upptök jarðskjálftans voru á rúmlega fjörutíu kílómetra dýpi. 5.9.2012 16:41
Auðkýfingur vill lægri laun í Ástralíu Hin ástralska Gina Rinehart, ein ríkasta kona veraldar, hefur valdið miklu fjaðrafoki í heimalandi sínu. Hún sagði á dögunum að Ástralíu væri of dýrt land og að Ástralar væru almennt séð duglausir. Þá fór hún einnig fram á að laun yrðu lækkuð í landinu. 5.9.2012 16:21
Stal rafmagni og ræktaði kannabis Karlmaður var dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í dag, meðal annars fyrir kannabisræktun og að hafa stolið rafmagni úr næstu íbúð. Maðurinn ræktaði efnin í Hveragerði. Maðurinn var stöðvaður af lögreglunni á Selfossi í janúar síðastliðnum. Maðurinn var færður á lögreglustöð þar sem hann meðal annars neitaði að gefa blóðsýni, en hann var undir áhrifum kannabisefna. 5.9.2012 16:06
Dæmd fyrir að stela tíu milljónum frá KPMG Tæplega fimmtug kona var dæmd í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir fjárdrátt en hún dró sér tæplega tíu milljónir króna frá endurskoðendafyrirtækinu KPMG. Konan starfaði þar sem launafulltrúi en hún millifærði fé fyrirtækisins af bankareikningum þess í BYR Sparisjóði, sem konan hafði prókúru á í starfi sínu í þágu félagsins. Fjárdrátturinn stóð yfir frá árinu 2008 til 2010. 5.9.2012 15:59
Flóðbylgjuviðvörun gefin út eftir skjálfta við Kosta Ríku Jarðskjálfti af stærðinni 7,9 skók norðvesturströnd Kosta Ríku í dag. Skjálftinn varð um 50 mílur suður af Líberíu og var á 12,4 mílna dýpi. Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út. 5.9.2012 15:18
Gufusprenging í kjarnorkuveri í Frakklandi Gufusprenging átti sér stað í Fessenheim kjarnorkuverinu í Frakkland fyrir skömmu. Lögreglan þar í landi hefur staðfest að tveir starfsmenn hafi slasast í sprengingunni. 5.9.2012 15:15
Árásarmennirnir völdu Sigrid af handahófi Ekki er talið að nein tengsl hafi verið á milli hinnar sextán ára gömlu norsku Sigridar og mannanna tveggja sem grunaðir eru um að hafa orðið henni að bana. Stúlkunnar hafði verið leitað í mánuð áður en hún fannst látin í fyrrakvöld. Norska lögreglan sagði á blaðamannafundi í dag að unnið væri eftir fjölmörgum tilgátum. Sú helsta væri að mennirnir hefðu valið fórnarlamb sitt af handahófi. 5.9.2012 14:34
Smygluðu fíkniefnum í gegnum Bretland - loks gripnir á Íslandi Mál þriggja karlmanna sem ákærðir eru fyrir fíkniefnasmygl var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Einn mannanna er ákærður fyrir að skipuleggja smyglið en hinir tveir fyrir að smygla fíkniefnunum frá Porto í Portúgal til Lundúna og þaðan til Keflavíkurflugvallar þar sem þeir voru loksins stöðvaðir. 5.9.2012 14:26
Munnlegur málflutningur í Icesave eftir hálfan mánuð Munnlegur málflutningur í Icesave málinu fyrir EFTA dómstólnum fer fram á þriðjudaginn 18. september klukkan tíu að staðartíma. Málflutningurinn fer fram í Luxemborg. 5.9.2012 13:13
Krefjast frávísunar í máli fyrrverandi forstjóra FME Gunnar Andersen og starfsmaður Landsbankans, sem ákærðir eru fyrir brot á þagnaskyldu, krefjast frávísunar málsins. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa látið upplýsingar úr Landsbankanum í hendur Ársæls Valfells sem kom þeim síðan til fréttastjóra DV. Málið var þingfest í morgun þar sem ákærðu neituðu báðir sök. 5.9.2012 12:06
FBI sakað um að njósna um viðskiptavini Apple Alríkislögreglan í Bandaríkjunum þvertekur fyrir að hafa njósnað um viðskiptavini Apple. Tölvuþrjótar birtu í gær notendanöfn og persónuupplýsingar rúmlega milljón Apple-notenda. Hópurinn heldur því fram að upplýsingarnar hafi verið teknar af fartölvu sem útsendari FBI notaði til að fylgjast með viðskiptavinum fyrirtækisins. 5.9.2012 11:36
Gunnlaugur: Málið farið mjög illa í sum börn mín "Málið hefur farið mjög illa í konuna mína, móður hennar líka og sum börn mín, þetta hefur farið mjög illa í sum börn mín," sagði Gunnlaugur M. Sigmundsson, sem hefur ásamt konu sinni stefnt Teiti Atlasyni fyrir meiðyrði vegna umfjöllunar hans á bloggsíðu sinni á dv.is, þegar hann bar vitni í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 5.9.2012 09:00
Framandi spendýr ógna náttúru Evrópu Innreið spendýra á borð við villisvín, þvottabirni, bjór og snáldurmýs í Evrópu er mun umfangsmeiri en áður var talið. 5.9.2012 14:29
Ákærður fyrir að sigla drukkinn á trébát fyrrverandi þingmanns Skipstjóri hefur verið ákærður í Héraðsdómi Reykjaness fyrir brot á áfengis- og siglingalögum þegar hann sigldi skipinu Rán GK91 inni í Sandgerðishöfn í október á síðasta ári og að lokum á annan bát. 5.9.2012 14:04
Flugeldaverksmiðja sprakk í Indlandi Rúmlega þrjátíu létust þegar sprenging varð í flugeldaverksmiðju í suðurhluta Indlands í nótt. Hátt í tuttugu særðust, margir hverjir alvarlega. 5.9.2012 13:37
Sýrlensku börnin örmagna Börn sem flýja heimkynni sín í Sýrlandi eru örmagna þegar þau koma í flóttamannabúðir í nágrannaríkjum. Þetta segir barnaverndarfulltrúi UNICEF í Jórdaníu. Samtökin hafa blásið til neyðarsöfnunar fyrir þessi stríðshrjáðu börn. 5.9.2012 12:20
Meintir morðingjar neita sök Mennirnir tveir sem eru í haldi vegna hvarfs Sigridar Sjetne, norsku stúlkunnar sem fannst látin á mánudag eftir að hafa verið saknað í rúman mánuð, neita báðir sök og segjast báðir hafa fjarvistasannanir. 5.9.2012 12:00
Seyðfirðingar halda sig til hlés á meðan Stiller tekur upp Bæjarbúar á Seyðisfirði koma til með að leika hlutverk í kvikmynd Ben Stiller þegar tökur hefjast í bænum á morgun. Ef allt gengur upp mun þó enginn verða þeirra var þegar myndin verður sýnd. 5.9.2012 11:11
Fékk minnisblað um vafasama hætti Kögunar Jón Baldvin Hannibalsson sagðist hafa fengið sent minnisblað frá Varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins árið 1995, mánuði áður en hann hætti sem utanríkisráðherra, þar sem kom fram, í frekar hlutlausu máli, að fyrirtækið Kögun væri hugsanlega vafasamt. 5.9.2012 10:43
Launafulltrúi fundinn sekur um fjárdrátt Fyrrverandi launafulltrúi hjá endurskoðunarfyrirtækinu KPMG var í gær fundin sek um að hafa dregið sér 9,8 milljónir sem launafulltrúi hjá endurskoðunarfyrirtækinu KPMG á tímabilinu 16. júní 2008 þar til í september 2010. Konan tók féð af reikningi sem KPMG átti í BYR sparisjóði og lagði það inn á reikning í eigin nafni og í nafni föður síns. Héraðsdómur Reykjaness komst að þeirri niðurstöðu að konan skyldi sæta átta mánaða skilorðsbundnu fangelsi. 5.9.2012 10:40
Brot Gunnars Andersen varða árs fangelsi - málið þingfest Ákæra á hendur Gunnari Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, verður þingfest rétt fyrir hádegi í dag. Hann er, ásamt starfsmanni Landsbankans, ákærður fyrir brot á þagnarskyldu. Samkvæmt ákæru fékk Gunnar starfsmann Landsbankans til að afla gagna úr bókhaldi bankans um viðskipti Bogamannsins ehf. sem hann afhenti Ársæli Valfells, að beiðni meðákærða en um var að ræða skjal sem sýndi að Landsbanki Íslands hf. greiddi 32.7 milljónir króna inn á bankareikning Bogamannsins ehf. 13. júní 2003. 5.9.2012 10:08
Reyndi að stinga lögregluna af á fjórhjóli Snarpri eftirför lögreglumanna eftir manni á óskráðu fjórhjóli í Kópavogi laust fyrir miðnætti, lauk með því að ökumaður hjólsins ók utan í lögreglubílinn og stöðvaðist við það. 5.9.2012 07:15
Varðskip bjargaði tíu mönnum af skútu við Færeyjar Áhöfinni á færeyska varðskipinu Brimil tókst undir kvöld í gær að bjarga tíu manna áhöfn pólskrar skútu, sem rak stjórnlaust í stórsjó vestur af Færeyjum. 5.9.2012 06:45
Mikil umræða um "Bermúda þríhyrning" í Englandi Mikil umræða hefur skapast í Englandi um að þar sé til staðar svæði sem svipar til Bermúda þríhyrningsins svokallaða. 5.9.2012 06:30
Aðalmeðferð í máli Gunnlaugs gegn Teiti hafin Aðalmeðferð í meiðyrðamáli Gunnlaugs M. Sigmundssonar og eiginkonu hans, Sigríðar G. Sigurbjörnsdóttur gegn bloggaranum Teiti Atlasyni hófst nú klukkan níu í Héraðsdómi Reykjavíkur. 5.9.2012 09:00
Makrílvertíðin á lokasprettinum Makrílvertíðin er nú á lokasprettinum og aðeins um tíu þúsund tonn óveidd af 145 þúsund tonna kvóta í ár. 5.9.2012 07:19
Múslímskir harðlínumenn rústuðu bar í Túnis Hópur múslímska harðlínumanna, sem kallast Salafistar, réðist í fyrrinótt inn á hótel í bænum Sidi Bouzid í Túnis og lagði bar hótelsins í rúst. Ástæðan fyrir þessari árás var að áfengi var selt á barnum. 5.9.2012 07:12
Aðskilnaðarsinnar sigruðu í þingkosningum í Quebec Flokkur aðskilnaðarsinna var sigurvegari þingkosninganna í Quebec ríki í Kanada. 5.9.2012 07:00
Bjargað eftir fjóra tíma í miðri jökulá Fimm hestamönnum var bjargað af eyri í miðri Jökulsá í Lóni í fyrrakvöld við vondar aðstæður. Þeir höfðu fyrr um kvöldið horft á eftir félaga sínum niður ána eftir að hesti hans skrikaði fótur í grjótinu í ánni. Maðurinn fannst látinn undir miðnætti. 5.9.2012 07:00
Michelle Obama ræddi um bandaríska drauminn Michelle Obama forsetafrú Bandaríkjanna þótti standa sig vel í opnunarræðu sinni á flokksþingi Demókrataflokksins sem nú stendur yfir í Norður Karólínu. 5.9.2012 06:55
Innbrot í áhaldahúsið í Vogum Brotist var inn í áhaldahúsið í Vogum á Vatnsleysuströnd einhverntímann fyrr í vikunni, og þaðan stolið tveimur loftpressum. 5.9.2012 06:51
Ekkert sem bendir til árásar á barn Rannsókn lögreglu á meintri líkamsárás gegn sex ára dreng í Breiðholti á föstudag hefur engan árangur borið. Samkvæmt upplýsingum frá Gylfa Sigurðssyni, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni í Kópavogi, bendir allt til þess að atvikið hafi ekki átt sér stað. 5.9.2012 06:45
Tugir ættleiðinga í uppnámi „Þetta eru um þrjátíu fjölskyldur núna sem eru stopp og vita ekki neitt,“ segir Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar. 5.9.2012 06:00
Barinn opinn öllum nemendum Læknafélag Danmerkur vill að unglingum undir lögaldri verði meinað að kaupa áfengi á barnum á skólaböllum. Samkvæmt könnun danska blaðsins Politiken leyfa sjö af hverjum tíu menntastofnunum fyrir unglinga á framhaldsskólaaldri öllum nemendunum að kaupa áfengi á skólaskemmtunum. 5.9.2012 05:00
Axlarbrotinn heldur Gerðahverfi hreinu „Ef ég væri ekki að finna mér eitthvað svona þá lægi ég bara uppi í rúmi í þunglyndi,“ segir Sigtryggur Helgason, íbúi í Hlyngerði í Reykjavík, sem í sumar hefur haldið hverfinu sín hreinu og snyrtilegu. 5.9.2012 04:30
Fannst látin í skógarlundi Lögreglan í Noregi staðfesti í gær að lík, sem fannst á mánudagskvöld í bænum Kolbotn, væri af Sigrid Giskegjerde Schjetne, sextán ára stúlku sem leitað hefur verið að í mánuð. 5.9.2012 04:00
Reyna að skila af sér á þessu ári „Stefnan er að reyna að klára þetta á þessu ári,“ segir Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari og formaður rannsóknarnefndar sem Alþingi skipaði til að rannsaka fall sparisjóðakerfisins. Sigurður H. Stefánsson, formaður rannsóknarnefndar um starfsemi Íbúðalánasjóðs, gefur sama svar. 5.9.2012 03:30
Ræðast við fyrst í Noregi og síðar á Kúbu Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, tilkynnti í sjónvarpsávarpi í gær að formlegar friðarviðræður við FARC-skæruliðasamtökin væru að hefjast. 5.9.2012 03:00
Sjálfstæðiskonur sjá eftir Ragnheiði Elínu „Já auðvitað kom þetta mér í opna skjöldu þegar formaðurinn orðaði þetta við mig í síðustu viku,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lagði til á þingflokksfundi í gær að Illugi Gunnarsson tæki við af Ragnheiði sem formaður þingflokksins. 5.9.2012 02:30
Vandi flóttabarna frá Sýrlandi fer vaxandi UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, á Íslandi hefur í dag söfnun til styrktar neyðaraðgerðum til hjálpar sýrlenskum börnum í flóttamannabúðum í nágrannaríkjunum. 5.9.2012 02:00