Innlent

Annir hjá björgunarmönnum vegna göngumanna í basli

Göngumaður féll og meiddist á hné fyrir oafn Kjarnaskóg við Akureyri í gærkvöldi. Hann gat gefið neyðarlínunni upp GPS staðsetningu, þannig að björgunarmenn voru fljótir að finna hann og bera til byggða. Hann var þrátt fyrir það orðinn nokkuð kaldur.

Þá örmagnaðist göngumaður á Laugaveginum í gær og sóttu björgunarsveitarmenn úr Rangárvallasýslu hann og komu honum undir læknishendur.

Björgunarmenn frá Hvolsvelli drógu svo bíl ferðamanna upp úr Kirkjufellsósi í grennd við Landmannalaugar og flutti svo blautt og hrakið göngufólk niður að Skógum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×