Börnum hafi verið gert að sæta einangrun 6. september 2012 12:06 Halldór Þormar Halldórsson, umsjónarmaður sanngirnisbóta hjá Sýslumanninum á Siglufirði, segir að búið sé að senda sáttarboð til þeirra sem voru vistaðir á heimilinu til 71 en nú er kallað eftir að þeir sem voru vistaðir þar eftir þann tíma og urðu fyrir illri meðferð eða ofbeldi sem olli varanlegum skaða lýsi yfir kröfum um skaðabætur.
Kallað hefur verið eftir bótakröfum frá þeim sem voru vistaðir á Upptöku- eða unglingaheimili ríkisins á árunum 1971 til 1994, en talið er að börn hafi þar sætt illri meðferð og meðal annars verið gert að sæta einangrun þar til þau játuðu á sig refsiverða háttsemi. Upptökuheimili Ríkisins var stofnað árið 1945 og starfaði undir því nafni til 78, en þá var nafninu breytt í Unglingaheimili ríksins. Halldór Þormar Halldórsson, umsjónarmaður sanngirnisbóta hjá Sýslumanninum á Siglufirði, segir að búið sé að senda sáttarboð til þeirra sem voru vistaðir á heimilinu til 71 en nú er kallað eftir að þeir sem voru vistaðir þar eftir þann tíma og urðu fyrir illri meðferð eða ofbeldi sem olli varanlegum skaða lýsi yfir kröfum um skaðabætur. „Þetta eru líklega um 2200 einstaklingar em voru á heimilinu á þessu tímabili," segir Halldór Þormar. Halldór segir að byggt hafi verið á skýrslu Vistheimilanefndar sem fann ýmislegt að starfseminni á tímabilinu. „Þarna voru ungmenni, börn undir 15 ára aldri, geymd í einangrun - læst inni. Og oft á tíðum hafi það verið hluti af sakamálarannsókn. Oft á tíðum var mögulega beitt þessum úrræðum til að fá viðkomandi til þess að játa á sig einhverja refsiverða háttsemi eða jafnvel sem refsingu." Starfsemi heimilisins á tímabilinu fór fram á átta stöðum, að Kópavogsbraut 17 og Kópavogsbraut 9 í Kópavogi, í Sólheimum 7, Sólheimum 17 og Efstasundi 86 í Reykjavík, að Tindum á Kjalarnesi og á meðferðarheimilunum að Smáratúni í Fljótshlíð og Torfastöðum í Biskupstungu. „Þetta er í raun 9. heimilið sem við erum að gera innköllun á bótakröfum." Verði kröfu ekki lýst fyrir 20.desember fellur hún niður en henni má lýsa á eyðiblaði sem er að finna á vefnum sanngirnisbætur.is og hjá tengiliði vegna vistheimila. „Við erum búin að senda sáttaboð á um 500 manns."
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Sjá meira