Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Assange veitt hæli í Ekvador Julian Assange, stofnanda upplýsingaveitunnar WikiLeaks, hefur verið veitt hæli í Ekvador. Þetta tilkynnti Ricardo Patino, utanríkisráðherra Ekvador fyrir stuttu. 16.8.2012 13:08
Hreyfihömluð kona fær ekki að keppa um tíma í Reykjavíkurmaraþoni Arna Sigríður Albertsdóttir, ísfirsk kona sem lenti í skíðaslysi árið 2006 og hefur verið bundin við hjólastól síðan, fær ekki að keppa um tíma á Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fer um helgina. Hún hefur æft markvisst fyrir hlaupið og ætlaði sér heilt maraþon. Þegar á hólmin er komið fær hún ekki að keppa um tíma og er stillt upp aftast í rásröð með þeim fyrirmælum að hún megi ekki taka fram úr neinum. 16.8.2012 12:06
Farþegar þotunnar verða hér fram á morgun Farþegar þotunnar sem lenti hér óvænt í morgun vegna sprengjuhótunar munu þurfa að vera hér yfir nótt. Vélin var á leið frá New York til Rússlands. 16.8.2012 12:03
Sendu 770 þúsund pakka af vítamínbættu hnetusmjöri til Sómalíu Íslendingum tókst að minnka verulega skaðann af hrikalegri hungursneyð í Sómalíu á síðasta ári með því að styðja myndarlega við bakið á Rauða Krossinum. 16.8.2012 12:02
Stefnir í breytingar á Landeyjahöfn Breytingar eru fyrirhugaðar á Landeyjahöfn. Til stendur að gera um 20 metra langan viðlegukant innst í norðurenda hafnarinnar. Kanturinn er hugsaður fyrir dýpkunarskip. Þá er einnig gert ráð fyrir steyptum rampi norðan við ferjubryggju hafnarinnar. Hann er hugsaður svo hægt sé að aka smærri bátum beint út í höfnina. 16.8.2012 10:58
Annþór og Börkur ekki viðstaddir fyrirtökuna Þeir Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson verða ekki viðstaddir fyrirtöku sem fer fram núna klukkan ellefu í Heraðsdómi Reykjaness í líkamsárásarmáli sem höfðað hefur veirð gegn þeim. Þeir eru ákærðir fyrir ítrekuð líkamsárásarbrot á menn víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu, þar sem þeir réðust með bareflum á fólk. Alls eru tíu manns ákærðir fyrir aðild að árásunum. 16.8.2012 10:57
Íslandsdvöl Russells Crowe senn á enda Russell Crowe er ánægður með Íslandsdvöl sína enn sem komið er, en hún er senn á enda eins og hann segir sjálfur frá á Twitter síðu sinni "Vangaveltur mínar um Ísland; þetta er mjög sérstakur staður, dulrænn, krefjandi, meðvitaður, heiðarlegur og ánægjulegur #Ísland rokkar," segir hann á Twitter. 16.8.2012 10:35
Vill lokka listamenn til Ísafjarðar Forsvarsmaður Listakaupstaðar á Ísafirði segir að um þessar mundir sé laus aðstaða í Listakaupstað sem er vinnustofa á Ísafirði þar sem listamenn geta fengið aðstöðu og rými til að skapa list. Hún hvetur fólk til að sækja um og segir að fljótlega verði farið að auglýsa eftir listamönnum. 16.8.2012 09:46
Þýskir ferðamenn í vandræðum Fimm þýskir ferðamenn komust í hann krappann seint í gærkvöldi þegar tveir stórir fjallatrukkar þeirra festust í sandbleytu út í miðri þverárkvísl, sem rennur úr Hofsjökli, og kölluðu eftir hjálp. 16.8.2012 06:44
Of mikið kadmíum í áburði Bauhaus Við reglubundið eftirlit Matvælastofnunar með áburði kom í ljós að áburðartegundin Plænekalk + gödning, sem Bauhaus Ísland ehf. flytur inn, reyndist innihalda þrefalt meira kadmíum (Cd) en leyfilegt er hérlendis. 16.8.2012 11:35
Ákvörðun ráðamanna í Ekvador væntanleg Yfirvöld í Bretlandi munu koma í veg fyrir að Julian Assange, stofnandi upplýsingaveitunnar WikiLeaks, fari úr landi þó svo að stjórnvöld í Ekvador veiti honum hæli. Ráðamenn í Ekvador munu tilkynna um ákvörðun sína í dag. 16.8.2012 11:27
Skotárás á herflugvelli í Pakistan Íslamskir vígamenn réðust á einn stærsta herflugvöll Pakistans í nótt. Tveir hermenn og sex ódæðismenn létust í átökunum en skotbardaginn stóð yfir í nokkrar klukkustundir. 16.8.2012 10:25
Leitað í farþegaflugvél í Rússlandi vegna sprengjuhótunar Leitað var í flugvél í Rússlandi í morgun vegna sprengjuhótunarinnar sem barst Areoflot flugvélinni, sem lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun, vegna hótunar um að fimm ferðatöskur innihéldu sprengiefni og að þær myndu sprynga við lendingu í Moskvu. 16.8.2012 10:22
Viðbragðsaðilar af höfuðborgarsvæðinu afturkallaðir Viðbragðsaðilar sem kallaðir voru út frá höfuðborgarsvæðinu vegna vélarinnar sem lenti á Keflavíkurflugvelli hafa verið afturkallaðir. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fjölmiðlum barst frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. 16.8.2012 10:12
Tugir fórust í námuslysi Að minnsta kosti sextíu verkamenn fórust þegar gullnáma í Kongó hrundi. Mennirnir voru á rúmlega hundrað metra dýpi. Slysið átti sér stað í suðurhluta Kongó. 16.8.2012 10:03
Fönix - Fæðingardeild stjarnanna Vísindamenn við Tækniháskólann í Massachusetts hafa uppgötvað risavaxna þyrpingu vetrarbrauta þar sem hundruð nýrra stjarna vakna til lífsins á ári hverju. 16.8.2012 09:47
Stefnir í eitt albesta berjaárið „Þetta berjaár er eitt af þessum allra bestu sýnist mér,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og áhugamaður um ber. 16.8.2012 09:30
Bandaríkjamenn óðir í Kalashnikov Bandaríkjamenn eru nú á meðal stærstu viðskiptavina rússneskra vopnaframleiðenda. Izhevsk vopnaverksmiðjan í Rússland hefur séð betri tíma. 16.8.2012 08:45
Vilja opna safn um Gísla í vor Unnið er að því að opna safn um einbúann Gísla Gíslason á bænum þar sem hann bjó, það er að segja á Uppsölum í Arnarfirði. 16.8.2012 08:30
Skip Robert Falcon Scotts fundið við Grænland Hópur fræðimanna rannsakar nú skipsflak sem fannst undan suðvesturströnd Grænlands fyrir nokkru. Grunur leikur á að flakið sé hið fornfræga SS Terra Nova sem flutti breska landkönnuðinn Robert Scott að Suðurskautinu fyrir rúmri öld síðan. 16.8.2012 08:04
Meirihlutinn í Grindavík sprunginn Meirihluti bæjarstjórnar í Grindavíkur sprakk í gærkvöldi þegar Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn slitu samstarfinu. 16.8.2012 08:00
Endalok Ragnars seld til Ítalíu Ítalskur safnari hefur keypt verkið Endalokin eftir Ragnar Kjartansson myndlistarmann. Verkið samanstendur af 144 málverkum sem Ragnar málaði í samnefndum gjörningi á Feneyjatvíæringnum 2009. 16.8.2012 08:00
Tekinn á bifhjóli - margbraut lögin Ökumaður bifhjóls reyndist marg brotlegur við ýmsar lagagreinar og reglugerðir þegar hann var stöðvaður á höfuðborgarsvæðinu um miðnætti. 16.8.2012 07:45
Risapottur í bandarísku happdrætti Einn var með allar tölur réttar í bandaríska Powerball happdrættinu í gær. Það var til mikils að vinna enda var potturinn einn sá stærsti í sögu Norður-Ameríku. 16.8.2012 07:30
Vélin lent án vandkvæða eftir að hafa fengið sprengjuhótun Airbus farþegaþota frá rússneska flugfélaginu Aeroflot með 253 um borð, lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli um klukkan hálf sjö í morgun, eftir að tilkynnt var um sprengju í vélinni og flugstjórinn óskaði eftir tafarlausu lendingarleyfi á Keflavíkurflugvelli. 16.8.2012 07:08
Gátskildir á miðjum þjóðvegi Tveir gátskildir standa á miðjum vegi við innganginn í Þjóðgarðinn á Þingvöllum, þrátt fyrir að fulltrúi Vegagerðarinnar hafi lýst því yfir í síðasta mánuði að aðskotahlutir mættu ekki vera á óupplýstum vegi. 16.8.2012 07:00
Hóta að ráðast inn í sendiráð Ekvador Yfirvöld í Bretlandi hafa hótað að brjótast inn í sendiráðsbyggingu Ekvador í Lundúnum. Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, hefur búið í sendiráðinu frá því að hann bað um hæli í Ekvador fyrir nokkru. 16.8.2012 06:52
Dökkt súkkulaði gott við háþrýstingi Niðurstöður nýlegrar rannsóknar gefa til kynna að dökkt súkkulaði geti verið mikil heilsubót fyrir þá sem þjást af háþrýstingi. Það var hópur ástralska vísindamanna sem stóð fyrir rannsókninni. 16.8.2012 06:46
Þúsundir vilja fá atvinnuleyfi Hundruð þúsunda ólöglegra innflytjenda sækja um dvalarleyfi í Bandaríkjunum eftir að reglur voru rýmkaðar nú í vikunni. 16.8.2012 06:45
Lendir á Keflavíkurflugvelli eftir sprengjuhótun Rússnesk farþegaþota hefur verið stefnt til lendingar á Keflavíkurflugvelli vegna sprengjuhótunar. Rúmlega 250 manns eru um borð í vélinni. 16.8.2012 06:42
Ábyrgðin sögð liggja hjá Sýrlandsstjórn Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna sakar Sýrlandsstjórn um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni. Uppreisnarmenn hafa einnig gerst sekir um morð, pyntingar og kynferðisofbeldi, en þó í minna mæli en stjórnarliðar. 16.8.2012 06:15
Húsnæðisskortur en samt mörg tóm hús Eftir margra ára þrengingar er nú uppgangur á sunnanverðum Vestfjörðum. Það vantar húsnæði fyrir fjölskyldur á Bíldudal en á sama tíma standa sumarhús auð langtímum saman. Íbúar segja heldur ekki hlaupið að því að byggja. 16.8.2012 06:00
Brjóstkassi úr ull sigurvegari Brjóstkassinn á bænum Sléttu í Eyjafirði bar sigur úr býtum í samkeppni um best prýdda póstkassann í Eyjafjarðarsveit. Það var Margrét Benediktsdóttir sem prjónaði brjóstin úr ull og skreytti póstkassann. 16.8.2012 06:00
Mikil innspýting í brasilíska hagkerfið Dilma Rousseff, forseti Brasilíu, kynnti í gær áform um umfangsmiklar efnahagslegar örvunaraðgerðir í landinu. Hyggst ríkisstjórn hennar verja jafngildi tæplega 8.000 milljarða íslenskra króna í fjárfestingar í innviðum landsins, svo sem í gatna- og járnbrautarkerfi. 16.8.2012 05:00
Vaxandi harka í deilu um eyjar Enn á ný deila Japanar og Suður-Kóreumenn hart um yfirráð nokkurra lítilla eyja í hafinu á milli þeirra. Spenna milli ríkjanna hefur vaxið eftir að Lee Myung-bak, forsætisráðherra Suður-Kóreu, sigldi í síðustu viku til eyjanna, sem nefnast Takeshima á japönsku en Dokdo á kóresku. 16.8.2012 05:00
Fús til að veita Grikkjum frest Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, segist alveg til í að veita Grikkjum lengri frest til að ná fram ströngum sparnaði í ríkisútgjöldum. Frá þessu er skýrt í þýskum fjölmiðlum á Netinu. 16.8.2012 03:30
Óáhugaverður völlur í bænum Innbæjarsamtökin á Akureyri merktu leikvöllinn við Hafnarstræti sem „óáhugaverðan stað“ til að skopast að bæjaryfirvöldum. Samtökin notuðu skilti, sem venjulega auðkennir áhugaverða staði, og teiknuðu á það rauðan kross. Akureyri vikublað greinir frá málinu á vef sínum. 16.8.2012 03:00
Ströng lög um tóbak staðfest Hæstiréttur Ástralíu hefur staðfest að ströngustu lög heims um tóbakssölu standist stjórnarskrá landsins. 16.8.2012 02:30
Lögreglan leitar að öðrum bíl Leitin að hinni sextán ára gömlu Sigrid Giskegjerde Schjetne hefur enn engan árangur borið, en í gær voru tíu dagar síðan hún hvarf. Leitin að stúlkunni heldur þó áfram. 16.8.2012 00:00
Sækja Þjóðverja sem eru fastir í á Björgunarsveitamenn úr fimm björgunarsveitum frá Skagafirði og Húnavatnssýslu eru nú á leið á Kjöl til aðstoðar þýsku ferðafólki sem situr fast í tveimur bílum sínum í sandbleytu í á. Fólkið hugðist aka slóða frá Kjalvegi yfir í Ingólfsskála en lenti í ógöngum á leiðinni. Ekki er vitað um nákvæma staðsetningu hópsins og þurfa björgunarsveitir því að byrja á því að leita þess á svæðinu. 15.8.2012 23:54
Górillubræður himinlifandi að hittast á ný Það voru sannkölluð gleðistund í dýragarðinum í Wiltshire-sýslu í Bretlandi á dögunum þegar bræðurnir Kesho og Alf hittust í fyrsta skiptið í næstum því þrjú ár. Þeir knúsuðust eins og sönnum górillum sæmir. 15.8.2012 23:07
Latir knattspyrnugestir sektaðir - heilu bílaplönin auð Nóg var að gera hjá lögreglumönnum í Reykjavík á meðan leikur Íslands og Færeyja stóð yfir því um 50 bifreiðum var lagt ólöglega fyrir leikinn. Sekt fyrir brot af þessu tagi er fimm þúsund krónur. 15.8.2012 21:53
Samdi lag til stuðnings Pussy Riot Á föstudaginn mun dómari kveða upp dóm yfir stúlkunum í hljómsveitinni Pussy Riot en þær gætu átt yfir höfði sér sjö ára fangelsi verði þær fundnar sekar um að mótmæla í dómkirkjunni í Moskvu í febrúar á þessu ári. 15.8.2012 21:44
Svindlaði í Scrabble-móti - faldi auða skífu innanklæða Ungur þátttakandi í alþjóðlegru Scrabble-móti sem fer nú fram í Bandaríkjunum var vísað úr keppni eftir að dómarar urðu þess varir að hann faldi auða-skífu innanklæða. Á skífunum eru bókstafir og gefa þeir mismikið af stigum en í spilinu eru einnig nokkrar auðar skífur, sem gilda sem allir bókstafir. 15.8.2012 21:26
Vinstri Græn bera að hluta ábyrgð á töfum aðildarviðræðna Ekki verður gert hlé á viðræðum við Evrópusambandið þrátt fyrir ákall um slíkt frá ráðherrum Vinstri grænna. Vinstri græn bera að hluta ábyrgð á töfum á aðildarviðræðunum, enda neitaði Jón Bjarnason, þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að veita umboð til að semja um annað en tollvernd í landbúnaði. 15.8.2012 19:54