Fleiri fréttir

Dómari segir Börk hafa verið ógnandi

"Hann var mjög ógnandi,“ sagði Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjaness um Börk Birgisson. Aðalmeðferð fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag yfir Berki, sem sakaður er um að hafa brotið gegn valdstjórninni þegar hann hrækti á Söndru í vor. Þá var verið að úrskurða að Börkur skyldi sitja af sér eldri dóm eftir að hann hafði, á reynslulausn, verið sakaður um fjölda ofbeldisbrota.

Börkur viðurkennir að hafa hrækt á dómara

Börkur Birgisson viðurkennir að hafa hrækt á skikkju dómara í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum. Réttað er yfir Berki í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna þessa brots, sem flokkast undir brot gegn valdstjórninni. Dómarar í Reykjanesi lýstu sig vanhæfa til að dæma í málum hans eftir brotið og því var málið flutt til Reykjavíkur. Fréttavefur Morgunblaðsins segir að átök hafi orðið í réttinum í morgun þegar maður undir áhrifum reyndi að koma einhverskonar hlut að Berki þegar hann var í dómnum í fylgd fangavarða. Börkur er sakaður um fjölmörg ofbeldisbrot. Þar á meðal eru hann og Annþór Kristján Karlsson sakaðir um að hafa orðið samfanga sínum á Litla Hrauni að bana.

Frænka Þóru: Þegar Hlífar verður reiður brýtur hann hluti

"Ég veit að þegar Hlífar verður reiður þá brýtur hann hluti," sagði frænka Þóru Eyjalín Gísladóttur, sem Hlífar Vatnar myrti í byrjun febrúar, þegar hún lýsti persónu Hlífars og sambandi hans við Þóru Eyjalín fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Var hugsanlega látin í nokkra daga í íbúð Hlífars

"Þetta er ömurlegt, ég ætlaði aldrei að drepa þessa mannskju," sagði Hlífar Vatnar Stefánsson í Héraðsdómi Reykjaness í morgun þar sem réttað er yfir honum fyrir að hafa myrt Þóru Eyjalín Gísladóttur í Hafnarfirði í febrúar á þessu ári.

Hálendishópar taka til starfa

Fyrstu hópar sjálfboðaliða Slysavarnafélagsins Landsbjargar halda í dag á hálendið á svokallaða Hálendisvakt, en hún snýst um að aðstoða innlenda sem erlenda ferðamenn. Þetta er sjöunda sumarið sem Hálendisvaktin er starfrækt og telja björgunarsveitamenn að aldrei sé eins mikil þörf á henni og nú. Ferðamönnum hafi fjölgað um 20% það sem af er ári og það stefni í metsumar í ferðaþjónustu. Síðasta sumar bárust Hálendisvaktinni meira en 1200 beiðnir um aðstoð.

Lokadagur réttarhaldanna yfir Breivik

Lokadagur réttarhaldanna yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fer fram í dag með því að verjendur flytja mál sitt og Breivik sjálfur gefur lokayfirlýsingu. Verjendur Anders Behring Breivik færa í málflutningi sínum rök fyrir því að hann sé heill á geði og eigi því að vera dæmdur í fangelsi. Í gær færðu sækjendur hins vegar rök fyrir því að hann eigi að vera dæmdur vanheill og eigi þar með að vistast á réttargeðdeild. Breivik hefur sjálfur viðurkennt að hafa orðið 77 manns að bana og sært meira en 240 þann 22. júlí í fyrra.

Egill krefst skýringa

Egill Einarsson, einnig kallaður Gillzenegger, ætlar að krefjast skýringa á því hvers vegna nauðgunarkæra gegn honum fór jafn langt og raun bar vitni. Þetta segir hann í yfirlýsingu sem hann sendi fréttastofu í nótt.

Vilja ekki lána sýni úr Davíð

Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður krafðist þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að fá aðgang að lífsýni Davíðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi. Auk þess vill hann fá aðgang að lífsýnum móður sinnar og ömmu

Segja sorglegt að Jóhanna hafi brotið jafnréttislög

Það er sorglegur vitnisburður að Jóhanna Sigurðardóttir, fyrsta konan sem gegnir stöðu forsætisráðherra, hafi gerst brotleg við jafnréttislög landsins, segir í ályktun jafnréttisnefndar Framsóknarflokksins.

Fimm ökumenn teknir úr umferð

Fimm ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinui í nótt, tveir fyrir ölvunarakstur og þrír fyrir fíkniefnaakstur.

Mikill bardagi við vinsælt hótel í Kabul

Hópur Talibana vopnaður hríðskotabyssum og eldflaugum réðist inn á vinsælt hótel í Kabúl höfuðborg Afghanistan þar sem brúðkaupsveisla var í gangi.

Meira finnst af ís á Mars

Fundist hefur meira af ís á Mars. Ísinn fannst í eldgígnum Shackleton við suðurpól plánetunnar en það var eitt af könnunarförum bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA sem fann ísinn.

Hver þremillinn! Ruslahaugur verður til í Árbæjarhverfi

Mikið af rusli hefur safnast fyrir í miðju íbúðahverfi í Árbænum. Bílhlöss af steypurusli, mótatimbur, fiskikar, þvottavél, bíldekk og bílþak eru í haugnum. Starfsmenn Reykjavíkurborgar voru mættir í Árbæinn í gær til að sinna hreinsunarstörfum, eftir að Fréttablaðið hringdi í borgina til að grennslast fyrir um rusl sem þar hefur safnast fyrir. Þeim varð þó lítið ágengt enda ljóst að verkefnið er stórt.

Ný stefna í íþróttamálum

Borgarstjórn hefur samþykkt nýja stefnu í íþróttamálum fram til ársins 2020. Stefnan var unnin undir forystu Íþróttabandalags Reykjavíkur og Íþrótta– og tómstundaráðs Reykjavíkur.

Landslagssamningur fullgiltur

Ísland hefur ákveðið að undirrita Landslagssamning Evrópu og verður það formlega gert síðar í júnímánuði.

Kröfuhafar taka yfir Glitni fyrir lok ársins

Stefnt er að því að klára nauðasamning Glitnis á þessu ári. Óreglulegur kröfuhafafundur verður haldinn í London í byrjun júlí til að kynna skilmála hans. Íslandsbanki yrði þá í eigu kröfuhafa. Langstærsti hluti þeirra er erlendir aðilar.

Kom með mörð og var kærður

Tollstjórinn á Seyðisfirði hafði 5. júní afskipti af manni sem hafði marðardýr meðferðis í bíl sínum þegar hann kom til landsins með ferjunni Norrænu.

Krossviður Jónasar rifinn af veggjunum

Endurbætur á innviðum Menntaskólans í Reykjavík halda áfram í sumar. Leitast er við að endurheimta upprunalegan frágang hússins. Til þess er fjarlægður krossviður af veggjum sem á sér rætur í endurbótum Jónasar frá Hriflu um 1930.

Hanna Birna nýtur mests trausts

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, nýtur mests stuðnings í embætti borgarstjóra að því er fram kemur í nýrri könnun sem Capacent Gallup vann fyrir borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins.

Alþingi fundar óvenju lengi

Forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, hefur staðið í ströngu síðustu vikur. Lengi vel gekk hvorki né rak að semja um þinglok og ásakanir um málþóf voru háværar. Ásta Ragnheiður segir að Alþingi sé eina þjóðþingið á Norðurlöndunum þar sem hægt sé að tala endalaust í málum.

Gengur með fimmbura

Kona á þrítugsaldri, á Íslandi, gengur með fimmbura. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt gerist, að því er fram kemur í Fréttatímanum sem kemur út á morgun. Áður hefur kona á Íslandi þó eignast fjórbura. Konan og barnsfaðir hennar standa nú frammi fyrir þeirri erfiðu ákvörðun hvort þau eigi að fara að læknisráði og fækka fóstrunum niður í tvö eða taka áhættuna á erfiðri meðgöngu. Konan, sem ekki vill láta nafns síns getið, er gengið um þrjá mánuði á leið.

Ólafur og Þóra tapa fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir tapa bæði fylgi í nýrri könnun Gallup sem gerð var fyrir RÚV. Þá bæta Ari Trausti Guðmundsson og Herdís Þorgeirsdóttir við sig fylgi.

Sigurjón fékk Blóðdropann

Sigurjón Pálsson hlaut Blóðdropann í ár fyrir bókina Klæki sem dómnefnd félagsins valdi sem bestu glæpasögu ársins 2011. Þetta er fyrsta bók Sigurjóns og var gefin út á kostnað höfundar. Blóðdropinn, sem eru glæpasagnaverðlaun Hins íslenska glæpafélags, var afhentur í dag í Grófarhúsinu.

"Ekkert nýtt að forsetakosningar verði persónulegar"

Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hún ræddi þar við þáttastjórnendur um forsetakosningarnar og var spurð áleitinna spurninga um hvort að aukin harka hafi færst í kosningabaráttuna.

Bítill vill að Norðurheimskautið sé látið í friði

Grænfriðungar eru að hefja herferð til að fá Norðurheimskautið friðlýst af Sameinuðu Þjóðunum. Stefnt er að því að safna milljón undirskriftum undir yfirlýsingu þar sem farið er fram á að olíurannsóknum og ósjálfbærum fiskveiðum verði hætt.

Hlaut minniháttar meiðsl við fallið

Maðurinn sem féll fimm metra við Öxarárfoss á Þingvöllum á þriðja tímanum í dag hlaut minniháttar meiðsl. Þyrla Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitamenn og fleiri aðilar voru kallaðir til aðstoðar manninum en þyrlan var afturkölluð.

Datt fimm metra niður við Öxarárfoss

Ferðamaður datt fimm metra niður í við Öxarárfoss á þriðja tímanum í dag. Björgunarsveitir og fleiri viðbragðsaðilar eru á leiðinni á staðinn til að koma viðkomandi til aðstoðar. Á þessari stundu er ekkert vitað um meiðsl hans.

Anna Kristín: Jóhanna sýndi engan sáttarvilja

Anna Kristín Ólafsdóttir, sem stefndi forsætisráðuneytinu fyrir brot á jafnréttislögum, segir það alrangt sem haldið er fram í yfirlýsingu frá forsætisráðuneytinu um að Jóhanna Sigurðardóttir hafi sýnt einhvern sáttavilja vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála um að lög hafi verið brotin við ráðningu í skrifstofustjóra ráðuneytisins. "Hvorki fyrr né síðar hefur hún haft samband við mig vegna málsins eða komið til mín skilaboðum um vilja hennar til sátta," segir Anna Kristín í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér eftir hádegi í dag.

Jarðskjálfti suðaustur af Kolbeinsey

Jarðskjálfti að stærð 3,7 með upptök um 30 kílómetrum suðaustur af Kolbeinsey varð laust eftir klukkan ellefu í dag. Fáir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Ekki er vitað til þess að fólk hafi fundið fyrir skjálftanum.

Vill að þeir sem græða á náttúrunni gefi meira

Þeir sem eru að græða peninga á íslenskri náttúru ættu að láta meira af hendi rakna til að hlúa að henni og halda henni við. Þetta segir Ólína Þorvarðardóttir, varaformaður umhverfisnefndar Alþingis.

Herdís segir ummæli röng

Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi segir að ummæli hennar í Vísi árið 1977 séu ekki rétt eftir henni höfð. Svar hennar við því hver hennar fyrstu viðbrögð yrðu ef hingað til lands flyttust 10 þúsund svertingjar má sjá hér fyrir ofan.

"Lögfræðingurinn í manni vill sjá málið hjá Hæstarétti"

Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, hafði ekki kynnt sér dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Önnu Kristínar Ólafsdóttur gegn forsætisráðuneytinu þegar Vísir hafði samband við hana í morgun. Fréttastofa náði tali af Ingibjörgu Elíasdóttur, lögfræðingi hjá Jafnréttisstofu.

Berjast fyrir ólétta konu í Sýrlandi

Amnesty international standa nú fyrir skyndiaðgerð til að fá ólétta konu sem fangelsuð var án haldbærrar ástæðu í Sýrlandi leysta úr haldi.

Lokamálflutningur að hefjast í máli Breivik

Réttarhöldunum yfir Anders Breivik fer nú senn að ljúka. Ríkissaksóknarar Svein Holden og Inga Bejer Engh munu í dag hefja loka málflutning í máli Anders Breivik og færa rök fyrir sekt hans.

Árásin var persónuleg

Það var persónulegur ágreiningur sem stigmagnaðist og náði svo að lokum hámarki sem var rótin að árás á konu í Hafnarfirði í desember á síðasta ári, en dómur féll í málinu í gær. Þá var Einar "Boom“ Marteinsson, fyrrverandi forseti Hells Angels á Íslandi sýknaður af málinu í en í dómsniðurstöðunni segir að ekkert bendi til þess að hann hafi komið að árásinni og að glæpurinn hafi ekki tengst skipulagðri glæpastarfsemi eins og lagt var upp með af hálfu ákæruvaldsins.

Blóðdropinn afhentur í dag

Blóðdropinn, glæpasagnverðlaun Hins íslenska glæpafélags, verður afhentur í dag. Verðlaunin hlýtur besta glæpasaga ársins 2011 að mati dómnefndar. Bókin verður jafnframt framlag Íslands til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna árið 2013. Afhendingin fer fram á Borgarbókasafninu í Grófarhúsinu en starfsmenn safnsins hafa unnið ötullega að undirbúningi, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Hinu íslenska glæpafélagi.

Sjá næstu 50 fréttir