Alþingi fundar óvenju lengi 22. júní 2012 04:00 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir telur að breyta þurfi starfsháttum og starfsumhverfi Alþingis til þess sem gerist á Norðurlöndunum. Setja þurfi ræðutíma takmörk og hækka laun þingmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, hefur staðið í ströngu síðustu vikur. Lengi vel gekk hvorki né rak að semja um þinglok og ásakanir um málþóf voru háværar. Ásta Ragnheiður segir að Alþingi sé eina þjóðþingið á Norðurlöndunum þar sem hægt sé að tala endalaust í málum. „Áður en þingsköpum var breytt árið 2007 var hægt að halda endalaust langar ræður. Í því fólust tafir stjórnarandstöðu í málum sem hún var andvíg. Á þeim tíma var það vilji forystu þingsins að reyna að breyta þessu, enda væri ekki gott yfirbragð á þinginu. Til að komast fyrir þetta var þingsköpum breytt í þá veru sem menn töldu að gefa myndi styttri og snarpari samskipti, með andsvörum og stuttum ræðum. Nú geta menn haldið 5 mínútna ræður oft, endalaust í rauninni, og farið í andsvör. Með þessu átti að koma upp snarpari skoðanaskiptum, en þau hafa reyndar breyst í eitthvað annað. Ég var óbreyttur þingmaður á þessum tíma og varaði við þessari breytingu. Í henni fælist tækifæri fyrir stjórnarandstöðu hverju sinni til að tala endalaust. Þingmaður þarf ekki að hafa nema tvo aðra með sér og þá er hægt að taka mál í gíslingu á vöktum. Menn trúðu því hins vegar ekki að það yrði gert. Þetta er eitt af því sem bíður þingskapanefndarinnar næsta vetur og ég held að okkur eigi að auðnast að breyta þessum lögum á næsta þingi, þannig að þær gætu tekið gildi fyrir næstu kosningar.“ Er mikilvægt að miða við kosningar þegar óljóst er hver verður í stjórn eða stjórnarandstöðu? „Það verður aldrei hægt að fá svona breytingu samþykkta nema í ljósi þess að ekki er vitað hver verður í hvaða hlutverki eftir kosningar. Þetta er því góður tímapunktur til breytinga.“ Langir þingfundirLíkt og áður segir bjóða þingsköp hér á landi upp á það að þingmenn geti talað endalaust. Ásta Ragnheiður segir að þingfundir standi lengur, það sýni tölurnar, og að fundum hafi fjölgað. Áður fyrr hafi starfsáætlun þingsins í meginatriðum haldist, en það hafi breyst síðustu ár, þótt húnhafi barist fyrir því að halda áætlun á hverju ári. „Við sjáum að þingfundir stóðu í 846 klukkustundir á nýyfirstöðnu þingi, 800 klukkustundir þingið þar áður og 886 klukkustundir þingið 2009 til 2010. Ef litið er aftur til 2003 til 2007 var lengst fundað á þinginu 2005 til 2006, eða 628 klukkustundir. Til samanburðar funda norskir þingmenn á milli 400 og 500 klukkustundir að meðaltali og danskir á milli 500 og 600 klukkustundir.“ En þýðir þetta þá að þingmenn hafi tekið mál í gíslingu, eins og þú varaðir við á sínum tíma? „Það er allavega þannig að það hefur reynst auðvelt að tala lengi í málum eins og áður, þegar einn þingmaður þurfti að flytja mjög langar ræður. Nú skipast menn á að halda margar stuttar ræður.“ Vann breytingin þá gegn markmiðum sínum? „Já, þetta hefur þróast öðruvísi en menn ætluðu og ég held að allir sjái að það þarf að breyta þessu. En það er ekkert óeðlilegt að þingmenn nýti þau tæki sem þeir hafa í lögunum, ef menn ætla sér það.“ Ásta Ragnheiður segir að þingskaparnefnd leiti fyrirmynda á Norðurlöndunum hvað varðar endurskoðun þingskapa sem von er á næsta vor. Alþingi eigi að standa þjóðþingum Norðurlanda jafnfætis hvað varðar kaup og kjör, aðbúnað, vinnubrögð og lengd starfstíma. Eftirlitshlutverk styrktÁsta Ragnheiður segir skýrslu, sem unnin var undir stjórn Bryndísar Hlöðversdóttur fyrir Alþingi, vera uppsprettu margra heilladrjúgra breytinga. Þar var sérstaklega horft til þess að efla eftirlitshlutverk Alþingis. „Sá þáttur þingsins er geysilega mikilvægur; eftirlitið með framkvæmdarvaldinu. Við höfum komið á ýmsum breytingum til að styrkja það. Til að mynda höfum við breytt nefndaskipan og sú vinna er enn í þróun. Áður var það þannig að nefndirnar skiptust eftir ráðuneytum og hver ráðherra „átti“ nánast eina nefnd, ef svo má segja. Samkvæmt ábendingum skýrslunnar eru nefndirnar nú þvert á ráðuneyti og geta því betur sinnt eftirlitshlutverkinu. Þá höfum við fjölgað óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra, þær voru áður einu sinni til tvisvar í mánuði, en eru nú tvisvar í viku. Sérstakar umræður, undirbúnar fyrirspurnir til ráðherra, möguleikar þingsins á að óska eftir skýrslum; allt þetta höfum við eflt og eftirlitshlutverkið með. Þá höfum við styrkt stöðu minnihlutans á ýmsan hátt.“ Frumvörp fyrr á ferðAlþingi kemur saman í haust, annan þriðjudag í september samkvæmt breyttum þingsköpum, en áður kom það saman 1. október. Ásta Ragnheiður segir að þetta breyti starfsháttum. Áður hafi mál hlaðist upp á septemberstubb sem nú sé aflagður og þá gengið erfiðlega að klára þau. Þá hefur sú breyting verið gerð að fjármálaráðherra þarf að leggja fram þingsályktunartillögu fyrir 1. apríl þar sem megindrættir fjárlaga næsta fjárlagaárs koma fram. Það gerist í fyrsta skipti á næsta þingi. „Fjárlagafrumvarpið verður síðan fyrsta frumvarpið í haust. Að öllum líkindum ætti að takast að ljúka þeirri vinnu í kringum 10. desember. Ég vona að með því að byrja svona snemma lendum við ekki í þeim vanda sem við höfum verið undanfarin þing, að fá megnið af þingmálum inn síðustu daga fyrir jól og svo síðasta dag fyrir lokadag vorsins. Það er hluti af þeim vanda sem við höfum glímt við undanfarið.“ Samevrópskt virðingarleysiVirðing Íslendinga fyrir Alþingi hefur farið þverrandi og samkvæmt könnunum bera nú undir tíu prósent aðspurðra traust til þingsins. Ásta Ragnheiður segir þetta vera samevrópskt vandamál. „Ég sótti fund þingforseta Evrópuríkja í apríl og þar var eitt aðalumræðuefnið minnkandi virðing og traust til þjóðþinga. Það er áhyggjuefni allra þingforseta í Evrópu hvað þetta hefur breyst, við verra efnahagsástand í heiminum. Evrópusambandið lætur árlega gera könnun á þessu í ríkjum sínum og umsóknarríkjum. Alþingi mælist um það bil í miðjunni miðað við þjóðþing annarra ríkja.“ En er þetta ekki áhyggjuefni? „Jú, auðvitað eigum við að hafa metnað til þess að almenningur beri almennt traust til löggjafarþingsins. Ég held að við getum gert ýmislegt til að bæta ástandið, en það er auðvitað undir því fólki sem er á löggjafarsamkundunni komið.“ Ásta Ragnheiður kom inn á þetta í ræðu sinni við þinglok á þriðjudag, en þar sagði hún: „Það er mikið umhugsunarefni hvernig þingstörfum hefur undið fram síðustu vikurnar. Mikilvægt er því að þingmenn hugleiði þessa stöðu og stöðu Alþingis almennt og komi til þings að nýju með þann ásetning að koma málum hér í betra horf.“
Mest lesið Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Innlent Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Innlent Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Erlent Féll í Jökulsárlón Innlent Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Stærsti skjálftinn 3,4 Fara í aðgerðir fáist ekki svör Handtekinn vegna stunguárásarinnar Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Sjá meira