Innlent

Landslagssamningur fullgiltur

Samningur stuðlar að verndun og samstarfi.
Samningur stuðlar að verndun og samstarfi. fréttablaðið/vilhelm
Ísland hefur ákveðið að undirrita Landslagssamning Evrópu og verður það formlega gert síðar í júnímánuði.

Markmið Landslagssamnings Evrópu er að stuðla að verndun, stýringu og skipulagi landslags ásamt því að koma á fót evrópsku samstarfi um landslag. Fullgilding samningsins er meðal markmiða samstarfsyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 2009.

Gert er ráð fyrir að sendiherra Íslands í París undirriti samninginn þann 28. júní næstkomandi fyrir hönd Íslands. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×