Innlent

Vill að þeir sem græða á náttúrunni gefi meira

BBI skrifar
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Þeir sem eru að græða peninga á íslenskri náttúru ættu að láta meira af hendi rakna til að hlúa að henni og halda henni við. Þetta segir Ólína Þorvarðardóttir, varaformaður umhverfisnefndar Alþingis.

Fram hefur komið að sjálfboðaliðar hyggjast eyða næstu helgi á Þingvöllum og hreinsa þar göngustíga og vinna í þjóðgarðinum. „Svona fréttir gleðja mann innilega," segir Ólína og fagnar því að fólk taki sig saman og verndi náttúruna, sérstaklega þegar hart er í ári hjá ríkissjóði og erfiðara en ella að greiða starfsfólki fyrir slík verk.

Henni finnst þó standa þeim nær sem skipuleggja hópferðir með ferðamönnum um þessar náttúruperlur í gróðaskyni að láta eitthvað af hendi rakna svo hægt sé að halda þeim við. Annars er hætta á að náttúran verði smátt og smátt troðin í svaðið.


Tengdar fréttir

Sjálfboðaliðar gera Þingvelli upp

Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd munu vinna að endurbótum á göngustígum í Þingvallaþjóðgarði um Jónsmessuhelgina næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×