Innlent

"Lögfræðingurinn í manni vill sjá málið hjá Hæstarétti"

BBI skrifar
Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, hafði ekki kynnt sér dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Önnu Kristínar Ólafsdóttur gegn forsætisráðuneytinu þegar Vísir hafði samband við hana í morgun. Kristín er á ferðalagi erlendis en fréttastofa náði í staðinn tali af Ingibjörgu Elíasdóttur, lögfræðingi hjá Jafnréttisstofu.

Það sem er merkilegt við niðurstöðu héraðsdóms er niðurstaðan um að úrskurðir jafnréttisnefndar verði bindandi ef stjórnvöld höfða ekki mál innan ákveðinna málshöfðunarfresta til að reyna að hnekkja þeim. Þetta segir Ingibjörg aðspurð út í málið.

Héraðsdómur komst í gær að þeirri niðurstöðu að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra hefði brotið gegn jafnréttislögum með því að ráða karl sem skrifstofustjóra í forsætisráðuneytið fram yfir jafnhæfa konu. Í niðurstöðu héraðsdóms var bindandi úrskurður kærunefndar jafnréttismála lagður til grundvallar.

Árið 2008 var sett inn í jafnréttislög nýmæli um að úrskurðir kærunefndar jafnréttismála væru bindandi. Hingað til hefur ekki verið skýrt hvað nákvæmlega það þýði. Með héraðsdómnum í gær var tekið á þessum vafa. „Nú vill bara lögfræðingurinn í manni að málið fari til Hæstaréttar svo við fáum endanlega niðurstöðu," segir Ingibjörg.


Tengdar fréttir

Héraðsdómur: Jóhanna braut jafnréttislög

Anna Kristín Ólafsdóttir, fékk í dag dæmdar 500 þúsund krónur, í miskabætur frá ríkinu. Hún var umsækjandi um stöðu skrifstofustjóra hjá forsætisráðuneytinu. Arnar Þór Másson var ráðinn í stöðuna. Anna Kristín kærði ráðninguna til kærunefndar jafnréttismála sem komst að þeirri niðurstöðu að Jóhanna Sigurðardóttir hafi brotið gegn ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna þegar hún skipaði Arnar í stöðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×