Innlent

Var hugsanlega látin í nokkra daga í íbúð Hlífars

Konan fannst látin í þessu húsi en Hlífar hafði búið þar.
Konan fannst látin í þessu húsi en Hlífar hafði búið þar. Mynd/Anton
„Þetta er ömurlegt, ég ætlaði aldrei að drepa þessa mannskju," sagði Hlífar Vatnar Stefánsson í Héraðsdómi Reykjaness í morgun þar sem réttað er yfir honum fyrir að hafa myrt Þóru Eyjalín Gísladóttur í Hafnarfirði í febrúar á þessu ári.

Hlífar bar við minnisleysi og sagði fyrir rétti að hann mundi ekkert eftir morðinu sjálfur. Aðdragandum lýsti hann þannig að Þóra hefði dregið upp rauðan Ikea hníf í geðshræringum. Hann muni ekkert frekar.

Þegar atvikið átti sér stað höfðu þau verið í mikilli neyslu. Ekki er ljóst hvenær Hlífar myrti Þóru, en hann sagðist halda að hann hefði gert það á föstudeginum. Það var hinsvegar ekki fyrr á sunnudeginum sem hann leitaði til lögreglunnar í Hafnarfirði. Þá bað hann um læknisaðstoð.

Því næst fór lögreglan að heimili hans og fann þá Þóru látna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×