Kröfuhafar taka yfir Glitni fyrir lok ársins 22. júní 2012 05:30 Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar, segir útlínur nauðasamninga verða kynntar fyrir þeim tæpa þriðjungi kröfuhafa sem ekki eiga sæti í óformlega kröfuhafaráðinu á fundi í London í byrjun júlí. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Stefnt er að því að klára nauðasamning Glitnis á þessu ári. Óreglulegur kröfuhafafundur verður haldinn í London í byrjun júlí til að kynna skilmála hans. Íslandsbanki yrði þá í eigu kröfuhafa. Langstærsti hluti þeirra er erlendir aðilar. Skilanefnd Glitnis hefur boðað til óformlegs kröfuhafafundar í London mánudaginn annan júlí til að kynna skilmála væntanlegs nauðasamnings bankans. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, segir stefnt að því að klára nauðasamningsferlið fyrir árslok 2012. Við það munu 830 milljarða króna eignir þrotabúsins færast til félags í eigu kröfuhafa Glitnis, sem eru að langstærstu leyti erlendir aðilar. Á meðal þeirra eigna sem færast í hendur kröfuhafanna er 95 prósenta hlutur slitastjórnar Glitnis í Íslandsbanka, sem reistur var á rústum hins fallna banka haustið 2008. Glitnir greiddi forgangskröfuhöfum sínum 105,6 milljarða króna fyrr á þessu ári og gerði þar með upp við þá að fullu. Sú aðgerð liðkaði mjög fyrir gerð nauðasamnings. Aðspurð um tilefni Lundúnafundarins í júlí segir Steinunn til standa að kynna útlínur nauðasamnings fyrir þeim kröfuhöfum sem ekki eiga sæti í óformlegu kröfuhafaráði Glitnis. „Við höfum verið að vinna að svokölluðu term-sheeti, eða skilmálum nauðasamnings. Við erum að klára þá vinnu og útlínurnar á því hvernig nauðasamningsfrumvarpið mun líta út. Sú vinna verður kynnt á þessum kröfuhafafundi. Þetta hefur verið unnið með, og kynnt fyrir, óformlega kröfuhafaráðinu sem samanstendur af um 70 prósentum af kröfuhöfum Glitnis. Þeir sem þar sitja eru því vel meðvitaðir um hvernig þessir skilmálar líta út. Á fundinum ætlum við að kynna þetta fyrir þeim sem ekki eru í ráðinu. Það eru um 30 prósent kröfuhafa.“ Steinunn segir að ef ekkert óvænt komi upp á verði hægt að klára nauðasamningsgerðina á þessu ári. „Við erum að klára gerð skilmála samningsins. Í kjölfarið verður skjalagerðin og sjálft frumvarpið unnið á grunni þeirra. Við höfum verið að vinna með þá tímalínu að klára þetta í árslok 2012. Ef ekkert óvænt kemur upp þá teljum við okkur geta staðið við þá tímalínu.“ Slitastjórnin og óformlega kröfuhafaráðið komust að samkomulagi í maí um að skipa nefnd sem á að velja aðila til að sitja í nýrri stjórn sem mun taka við Glitni eftir að nauðasamningsferlinu lýkur. Sjö manns sitja í nefndinni, tveir frá slitastjórn og fimm erlendir aðilar sem hafa unnið mikið fyrir kröfuhafa Glitnis. Hlutverk nefndarinnar eru tvö, að velja nýja stjórn sem mun taka við Glitni og að móta stefnu hans til framtíðar. Steinunn segir vinnu við skipun stjórnarinnar vera í fullum gangi. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Sjá meira