Innlent

Kosningamiðstöð Herdísar opnar á laugardaginn

Herdís Þorgeirsdóttir
Herdís Þorgeirsdóttir
Stuðningsmenn Herdísar Þorgeirsdóttur munu formlega opna kosningamiðstöð að Laugavegi 87 næstkomandi laugardag, klukkan 13:00.

Opnunarhátíð stendur yfir alla helgina en sérstök dagskrá verður á laugardags eftirmiðdegi. Þar mun Herdís ávarpa stuðningsmenn sína.

Að lokinni opnunarhelgi verður kosningamiðstöðin opin fram að forsetakosningum 30. júní, frá klukkan 14:00 til 18:00 á virkum dögum og um helgar klukkan 13:00 til 16:00.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Herdísar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×