Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Foreldrar sex barna sem brunnu inni ákærð fyrir morð Foreldrar sex barna sem létust í húsbruna í Derby á Englandi á dögunum verða í dag ákærðir fyrir morð. Að lokinni rannsókn á málinu ákvað lögreglan að nægileg sönnunargögn lægju til grundvallar því að ákæra í málinu. 31.5.2012 08:41
Banaslys á Ólafsfjarðarvegi Banaslys varð á Ólafsfjarðarvegi, í grennd við Hörgárbrú á tólfta tímanum í gærkvöldi, þegar bíll, sem karlmaður á þrítugsaldri ók, fór út af veginum og valt nokkrar veltur. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, kastaðist út úr honum í veltunum. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri, þar sem hann var úrskurðaður látinn. Tildrög slyssins eru ókunn, en lögreglan á Akureyri og Rannsóknanefnd umferðaslysa rannsaka málið. 31.5.2012 06:20
Sumargötur vakna úr vetrardvala á morgun Á morgun vakna sumargötur úr vetrardvala þegar Pósthússtræti í miðborg Reykjavíkur verður lokað fyrir bílaumferð. 31.5.2012 14:38
Þriðjungur ók of hratt í Rofabæ Brot 20 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, við Árbæjarskóla. 31.5.2012 14:19
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer vel af stað Um 500 manns hafa greitt utankjörfundaratkvæði á öllu landinu vegna forsetakosninganna, sem fara fram þann 30. júní næstkomandi. Þar af eru tæplega 240 búnir að kjósa í Reykjavík. 31.5.2012 13:53
Haldið sofandi eftir fall við Hamragarða Ástand bresku konunnar sem féll ofan í gil við Hamragarða á mánudag er óbreytt. 31.5.2012 13:35
Kanadískur klámmyndaleikari eftirlýstur fyrir hrottalegt morð Lögreglan í Kanada leitar nú manns sem talinn er hafa sent tvo pakka til höfuðstöðva íhaldsflokksins þar í landi sem eru í borginni Ottawa en í pökkunum voru hlutar af mannslíki. 31.5.2012 12:10
Háskólanemar vilja hjólaleigustöðvar víðsvegar um borgina Reykjavíkurborg er tilbúin að veita nokkrum háskólanemum leyfi til að koma sjö hjólaleigustöðvum fyrir víðsvegar um borgina. 31.5.2012 12:05
Íslenskir unglingar reykja minnst allra unglinga í Evrópu Samkvæmt glænýjum niðurstöðum evrópsku vímuefnarannsóknarinnar European School Survey Project on Alcohol and Drugs (ESPAD) sem kynntar voru í Stokkhólmi í dag hefur dregið mikið úr tóbaksreykingum íslenskra unglinga á síðustu sextán árum, ólíkt því sem gerist að meðaltali í Evrópu. 31.5.2012 11:45
Guðgeir fyrir dómi: "Ég er skaðvaldur“ "Ég er ekki viss hvort ég ætlaði að drepa neinn,“ sagði Guðgeir Guðmundsson fyrir dómara Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun þegar hann var inntur eftir afstöðu til sakarefna gegn sér. Guðgeir er ákærður fyrir að stinga Skúla Eggert Sigurz, framkvæmdastjóra Lagastoða, fimm sinnum með veiðihníf, þar af voru fjórar stungur lífshættulegar. 31.5.2012 09:28
Setja al-Assad afarkosti Stærsti uppreisnarhópurinn í Sýrlandi hefur sett forseta landsins afarkosti. Hópurinn sem kallar sig Hinn frjálsa her Sýrlands, hefur gefið Bashar al-Assad forseta tvo sólarhringa til þess að framfylgja vopnahléi því sem fylkingarnar sættus á fyrir tilstilli Kofi Annans erindreka Sameinuðu þjóðanna á dögunum. 31.5.2012 08:45
Laxagöngur hafnar Lax er víða farinn að ganga í helstu árnar, að því er fram kemur á vef Stangveiðifélags Reykjavíkur, en veiðar hefjast í Norðurá á þriðjudagsmorgun. Nú þegar hefur sést til laxa í Elliðaánum, Laxá í kjós, Flókadalsá í Borgarfirði og neðarlega í Hvítá í Borgarfirði hefur sést heil torfa, sem líklega mun dreyfa sér í borgfirsku árnar. Sérfræðingar Veiðimálastofnunar spá góðri veiði í sumar, þótt líklega verði þetta ekki met ár. 31.5.2012 08:43
Hús Winehouse á sölu Hús söngkonunnar Amy Winehouse er nú komið á sölu en þar eyddi hún síðustu árum ævi sinnar og þar lét hún einnig lífið fyrir rétt tæpu ári síðan. Fjölskylda hennar hefur nú ákveðið að selja eignina sem er í Camden í London og er verðmiðinn 2,7 milljónir punda, eða um 550 milljónir íslenskra króna. 31.5.2012 08:19
Hlaupahjólaþjófur handtekinn Nátthrafn, sem var á röltinu í austurborginni um eitt leytið í nótt ákvað á hraða för sinni. Í því skyni stal hann hlaupahjóli úr kjallaratröppum en var svo óheppinn að til hans sást og kastaði hann frá sér hlaupahjólinu á flóttanum. 31.5.2012 08:10
Vélhjól og reiðhjól skullu saman Hjólreiðamaður slasaðist, en þó ekki alvarlega, þegar hann lenti í árekstri við bifhjól við Víkurvegsbrúnna á Vesturlandsvegi í gærkvöldi. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar, en ökumann bifhjólsins sakaði ekki. Ekki er ljóst hvað fór úrskeiðis hjá hjólamönnunum með þessum afleiðingum. 31.5.2012 08:04
Milljarðatugir fólgnir í þara Þörungaiðnaður á Íslandi felur í sér gríðarlega möguleika. Um mannaflsfrekan milljarðaiðnað er að ræða ef rétt verður haldið á málum. Hins vegar vantar sárlega fjármagn til að halda áfram rannsóknum á auðlind sem liggur óhreyfð í fjörum landsins. 31.5.2012 07:00
Flestir varkárir í ummælum um Evrópusambandið Enginn forsetaframbjóðendanna vildi lýsa yfir eindregnum stuðningi við aðild Íslands við Evrópusambandið á fundi Stjórnarskrárfélagsins í kvöld. Flestir vilja sjá samninginn fullkláraðan áður en þeir tjá sig. 30.5.2012 22:47
Útdráttur úr ávörpum forsetaefnanna Forsetaframbjóðendur komu saman í Iðnó í kvöld og ræddu stöðu forsetans og hlutverk miðað við hið nýja stjórnarskrárfrumvarp Stjórnlagaráðs. Hver frambjóðandi var með stutta framsöguræðu í þrjár til fjórar mínútur og svo var opnað fyrir spurningar úr sal. 30.5.2012 22:43
Jónas nýr formaður Lögmannafélagsins Jónas Þór Guðmundsson, hæstaréttarlögmaður, var í kvöld kosinn nýr formaður Lögmannafélags Íslands. Auk Jónasar gaf Eva Bryndís Helgadóttir, hæstaréttarlögmaður, kost á sér. Jónas varð hlutskarpari og tekur því við af fráfarandi formanna Brynjari Níelssyni. 30.5.2012 21:48
Ólafur ók sjálfur á fundinn Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ók sjálfur á fund Stjórnarskrárfélagsins í Iðnó í kvöld. Hann nýtti sér því hvorki bíl, né bílstjóra forsetaembættisins. Hann sagði að með þessu væri hann að greina störf sín sem forseta Íslands frá störfum sínum sem frambjóðanda. 30.5.2012 23:13
Bono afhendir Suu Kyi heiðursverðlaun Rokkarinn Bono úr hljómsveitinni U2 mun afhenda Aung San Suu Kyi æðstu heiðursverðlaun Amnesti International. Afhendingin mun fara fram í Dublin á Írlandi þann 18. júní næstkomandi, daginn eftir að Suu Kyi tekur við friðarverðlaunum Nobels. 30.5.2012 22:11
Forsetafrú gefur út bók um grænmeti og garðyrkju Michelle Obama, forsetafrú í Bandaríkjunum, gaf í gær út bók um garðyrkju. Bókin heitir á frummálinu American Grown: The Story of the White House Kitchen Garden and Gardens Across America. 30.5.2012 21:17
Assange fær tækifæri til að hnekkja framsalsúrskurði Deilan um framsal Julian Assange, stofnanda Wikileaks, virðist stefna í aðra umferð fyrir Hæstarétti Bretlands eftir að lögmenn hans fengu fjórtán daga frest til að leggja fram nýjar röksemdir í málinu. 30.5.2012 20:29
Breta langar í hitaveitur og sæstreng Íslensk og bresk stjórnvöld undirrituðu nú síðdegis yfirlýsingu um víðtækt samstarf á sviði orkumála, þar á meðal um lagningu sæstrengs á milli landanna, um jarðhitaleit í Bretlandi og um olíuiðnað. Orkumálaráðherra Bretlands, Charles Hendry, hóf Íslandsheimsóknina nú síðdegis í Hellisheiðarvirkjun þar sem Oddný Harðardóttir iðnaðarráðherra tók á móti honum ásamt Bjarna Bjarnasyni, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. 30.5.2012 19:30
Forsetaefnin í Iðnó í kvöld - bein útsending á Vísi Fundur um stöðu forsetans og nýju stjórnarskrána fer fram í Iðnó í kvöld. Þar munu öll forsetaefnin sjö halda ræður um hlutverk og stöðu forseta verði nýja stjórnarskrárfrumvarpið samþykkt. 30.5.2012 19:29
Bjarni gæti stutt tillögu um afturköllun aðildarumsóknar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, útilokar ekki að hann styðji þingsályktunartillögu þess efnis að draga aftur aðildarumsókn Íslands að ESB. Hann hefði þó frekar viljað að þingmenn sem vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður sneru bökum saman og ákvæðu sameiginlegar aðgerðir í málinu. 30.5.2012 18:50
Vélhjólaslys á Vesturlandsvegi Vélhjólaslys varð á Vesturlandsvegi, nærri Höfðabakka, fyrir fáeinum míníutum. Vísir hefur ekki fengið nánari upplýsingar um málið. Sjúkraliðið er á vettvangi. 30.5.2012 18:35
Jón Gnarr tók á móti Tiersen Tónlistarmaðurinn Yann Tiersen er kominn til landsins ásamt hljómsveit sinni. Jón Gnarr, borgarstjóri, tók á móti þeim í Höfða í síðdegissólinni í dag en þaðan héldu þeir í Hörpu og tóku út Norðurljósasalinn fyrir tónleikana á morgun. Uppselt er á tónleika Tiersen, sem verða á morgun. Þar verður spilað órafmögnuð efnisskrá sem tileinkuð er nýjustu plötu hans, Skyline. 30.5.2012 20:39
Lítið bólar á gjaldeyrismálum og ráðherra hefur áhyggjur Efnahags- og viðskiptaráðherra segir það áhyggjuefni hve fá mál hafi komið til dómstóla frá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans. Tvö og hálft ár er liðið síðan kynnt var stór rannsókn á hendur mönnum sem grunaðir eru um gjaldeyrisbrot en ekkert bólar á niðurstöðu. 30.5.2012 18:49
40% taka ekki afstöðu Fjörutíu prósent þjóðarinnar vilja ekki taka afstöðu til þeirra stjórnmálaflokka sem hyggjast bjóða fram til alþingiskosninga. Sjálfstæðisflokkurinn hefur yfirburðarfylgi meðal þeirra sem taka afstöðu. 30.5.2012 18:36
Kraftmesti "rib“ bátur Íslands sigldi á sker Kraftmesti "rib"bátur landsins lenti á skeri á ferð sinni frá Reykjavík til Akureyrar í morgun. Óhappið varð rétt norðan Sauðárkróks. Við byltuna brotnuðu bæði hældrif bátsins. Tjónið er að sögn mikið og viðgerð gæti tekið 2-3 vikur. Bátur þessi er engin smásmíð, en hann er 12 metrar á lengd, vegur ein 5,5 tonn og búinn 700 hestafla vél. Hann er nefndur eftir Jóni Páli kraftajötni, enda kraftmesti bátur landsins. 30.5.2012 17:48
Ofbeldismennirnir kröfðust hundruð þúsunda af fórnarlömbunum Upphæðirnar sem Annþór Kristján Karlsson, Börkur Birgisson og félagar þeirra kröfðust af mönnunum sem þeir höfðu í hótunum við og lömdu námu hundruðum þúsunda króna. Þetta kemur fram í ákæru yfir mönnunum sem Vísir hefur undir höndum. 30.5.2012 16:47
21 stigs hiti á Þingvöllum í dag Þessi næstsíðasti dagur mánaðarins reyndist enn einn maídagurinn þar sem hitastig fer yfir 20 gráðurnar á landinu. Mestu hlýindin hafa mælst á Þingvöllum, 20,7 gráður, og í Húsafell, 20,2 gráðu, samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu. Á Hjarðarlandi í Biskupstungum mældi sjálfvirk stöð 19,5 gráðu. Hlýindin ná inn á hálendið. Í Veiðivatnahrauni hafa mælst 16,8 gráður í dag, í Vatnsfellsvirkjun 15,4 gráður og á Hveravöllum á Kili 15,3 gráður. 30.5.2012 15:45
Guðgeir er sakhæfur Guðgeir Guðmundsson, sem ákærður hefur verið fyrir að hafa stungið Skúla Sigurz, margsinnis á lögmannsstofunni Lagastoð er sakhæfur, samkvæmt niðurstöðum geðrannsóknar. Það var fréttavefurinn DV sem greindi frá þessu fyrr í dag en heimildir Vísis herma hið sama. Samkvæmt heimildum Vísis var það Sigurður Páll Pálsson, yfirlæknir á réttargeðdeildinni á Kleppi sem vann matið. Það verður svo dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur að taka endanlega niðurstöðu um málkð. 30.5.2012 15:11
Gert að afhenda nöfn allra kvenna sem fengu PIP brjóstapúða Hæstiréttur Íslands hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, um að lögfræðingurin Saga Ýrr Jónsdóttir, héraðsdómslögmaður hjá Vox lögmannsstofu, skuli afhenda skattrannsóknarstjóra yfirlit yfir nöfn og kennitölur allra þeirra kvenna sem hafa leitað til hennar eftir lögfræðiaðstoð vegna brjóstastækkunar hjá lýtalækninum Jens Kjartanssyni. Allar konurnar fengu grædda í sig svokallaða PIP-brjóstapúða hjá Jens, sem síðar reyndust gallaðir. 30.5.2012 14:47
Hrottafengnar árásir Annþórs og Barkar Árásir Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar á sjö manns voru skipulagðar og sérstaklega ófyrirleitnar að því er fram kemur í ákærunni á hendur þeim. Málið verður þingfest á föstudag, að því er fréttavefur RÚV greinir frá. Alls eru tíu manns ákærðir 30.5.2012 14:42
Steingrímur starfandi forsætisráðherra Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra atvinnumála, er nú starfandi forsætisráðherra eftir að Jóhanna Sigurðardóttir fór til Þýskalands í gærdag. 30.5.2012 14:36
Leið hvergi verr en á Íslandi Söngkonan Leoncie prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Nýs lífs, sem kemur út á morgun. Nýtt líf heimsótti söngkonuna í bænum Leigh on Sea, í austurhluta London, þar sem hún hefur verið búsett undanfarin ár. 30.5.2012 14:30
Býst við að fjórðungur lögmanna muni kjósa nýjan formann Töluverð spenna ríkir á meðal lögmanna því nýr formaður Lögmannafélags Íslands verður kosin á aðalfundi í kvöld. Í framboði eru tveir félagar, þau Jónas Þór Guðmundsson, sem er núverandi formaður, og Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður á Mandat lögmannsstofu. Brynjar Níelsson, formaður félagsins, hefur setið í tvö ár en ætlar ekki að gefa kost á sér áfram. 30.5.2012 14:10
ÁTVR bannað að selja sígarettur sem eru ekki sjálfslökkvandi Innanríkisráðuneytið hefur staðfest þau fyrirmæli Neytendastofu að ÁTVR beri að taka af markaði sígarettur sem ekki uppfylla öryggiskröfur þar sem þær eru ekki sjálfslökkvandi. 30.5.2012 14:04
Páll Óskar biður Gretu Salóme afsökunar á harðri gagnrýni Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson hefur beðið Gretu Salóme Stefánsdóttur, söngvara og höfund Eurovision framlags Íslands í Azerbajdzan, afsökunar á að hafa gagnrýnt hana í viðtali við DV um helgina. 30.5.2012 13:29
Játuðu tug innbrota í Grafarvogi Þrír karlmenn hafa játað tug innbrota í heimahús í Grafarvogi í Reykjavík á nokkurra vikna tímabili. Mennirnir voru handteknir eftir að íbúi lét lögreglu vita um grunsamlegar mannaferðir. Tveir af mönnunum sátu í gæsluvarðhaldi um tíma vegna málsins. Þeir stálu meðal annars myndavélum, fartölvum, símum, sjónvörpum, skartgripum og peningum frá íbúum í Grafarvogi. Mennirnir eru á þrítugsaldri og hafa allir komið við sögu lögreglu áður. 30.5.2012 13:06
Unnu saman 15 tíma á dag fyrir Milestone samhliða vinnu hjá saksóknara Lögreglumennirnir tveir sem sérstakur saksóknari kærði til ríkissaksóknara fyrir þagnarskyldubrot unnu í sjö vikur að meðaltali 15 klukkustundir á dag fyrir þrotabú Milestone síðastliðið haust á meðan þeir voru í fullu starfi fyrir sérstakan saksóknara. 30.5.2012 12:21
Göngustígurinn í Dyrhólaey færður vegna slyss Göngustígurinn við Dyrhólaey, þaðan sem hollensku hjónin hrundu fyrir helgi, hefur verið færður allt að áttatíu metra frá bjargbrúninni. Teymi skriðufallasérfræðinga frá Veðurstofunni er væntanlegt austur í dag til rannsaka bergið. 30.5.2012 12:18
Umferðaróhapp á Miklubraut Umferðaróhapp varð á Miklubraut, skammt frá gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar, í morgun. Myndatökumaður Stöðvar 2 og Vísis, sem keyrði frammá vettvang óhappsins, fékk þær upplýsingar að ruslabíllinn sem sést á meðfylgjandi mynd hafi verið að skipta um akgrein með þeim afleiðingum að ökumaður fólksbílsins missti stjórn á honum og lenti öfugur á grindverkinu. Vísir hefur ekki náð tali af lögreglumönnum til að spyrja þá hvort einhver hafi slasast í umferðaróhappinu. 30.5.2012 11:45