Segir veiðireglu ESB mótsagnakennda og brjóta gegn EES-samningnum Þorbjörn Þórðarson skrifar 31. maí 2012 18:30 Með reglugerðinni fær framkvæmdastjórn ESB völd til að stöðva innflutning sjávarafurða frá ríkjum sem að mati sambandsins stunda ósjálfbærar veiðar.
Sérfræðingur í hafrétti segir að löndunarbann og bann gegn sölu sjávarafurða í drögum að reglum Evrópusambandsins feli í sér mun víðtækari bann en EES-samningurinn heimilar. Því sé um að ræða brot á samningnum, samþykki Evrópuþingið regluna. Reglugerð Evrópusambandsins um aðgerðir gegn ríkjum sem stunda ósjálfbærar veiðar kemur brátt til umfjöllunar í Evrópuþinginu, en hún var samþykkt enróma í sjávarútvegsnefnd ESB. Þessari reglugerð er í raun beint gegn Íslendingum, þar sem Ísland hefur ekki orðið við kröfum ESB og Noregs í makríldeilunni, en ESB telur Ísland stunda ósjálfbærar veiðar á makríl. Samkvæmt reglugerðinni verður aðildarríkjum ESB heimilað að setja löndunarbann á íslensk skip og viðskiptabann á sjávarafurðir, ekki bara á makríl, heldur allar sjávarafurðir. Færa má rök fyrir því að þetta brjóti gegn bókun 9 við EES-samninginn, en samkvæmt henni er framkvæmdastjórninni skylt að afnema allar takmarkanir af innflutningi sjávarafurða. Eina undantekningin er að samningsaðila er heimilt að hafna löndun á fiski af tegund sem sameiginlegir hagsmunir (e. common interest) ríkja um og alvarlegur ágreiningur ríkir um, eins og makríl. Svo virðist sem reglugerðin gangi því lengra, því hún heimilar bann á öllum afurðum. Bjarni Már Magnússon, lögfræðingur og sérfræðingur í hafrétti, telur þetta ekki standast EES-samninginn, enda komi skýrt fram í bókun 9 að aðeins megi setja á löndunarbann og þá á tegundir sem eru umdeildar. „Ég tel að þetta samrýmist ekki EES-samningnum. Samkvæmt bókun 9 þá má í raun og veru aðeins setja löndunarbann á gagnvart umdeildum fiskistofnum. Þetta kemur skýrt fram í bókuninni. Þar af leiðandi lítur þetta út fyrir að vera ekki í samræmi við bókun 9 og þar af leiðandi ekki í samræmi við EES-samninginn," segir Bjarni Már. Þetta yrði þá væntanlega óskuldbindandi, vegna EES-samningsins? „Það færi allavega í bága við hann. Þess vegna er mjög sérstakt að í reglugerðardrögunum kemur fram að reglugerðin eigi að vera í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Evrópusambandsins." Þannig að reglugerðin er mótsagnakennd? „Já, það má segja að hún sé mótsagnakennd," segir Bjarni. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira