Vilja jafna réttindi útlendinga 1. júní 2012 03:00 Ögmundur Jónasson
samfélagsmál Ein löggjöf verður til um málefni útlendinga hér á landi ef tillögur starfshóps um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) verða að veruleika. Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra og formaður starfshópsins, kynnti tillögur hópsins og starf á fundi á miðvikudag. Starfshópurinn vill einnig að útlendingar sem koma hingað til lands fái aukna fræðslu um réttindi sín og skyldur. Hugmynd hefur komið upp um að útbúa dvd-disk sem fók verði að horfa á hjá Útlendingastofnun þegar það sækir hér um dvalarleyfi. Þá vill hópurinn að reglum verði breytt svo að dvalarleyfi veiti almennt rétt til atvinnu hér á landi, nema annað sé tekið sérstaklega fram. Nefndin vill að réttindasöfnun útlendinga verði jöfnuð. Nú er það svo að fólk safnar ólíkum réttindum eftir því hvers konar dvalarleyfi það hefur hér á landi. Þannig getur fólk sem kemur hingað vegna skorts á vinnuafli fengið dvalarleyfi í ár og framlengt það í ár til viðbótar en getur aldrei unnið sér inn rétt til búsetuleyfis. „Þannig að við lítum á það fólk sem vinnuafl en við lítum á hitt fólkið sem fólk sem við viljum fá,“ sagði Halla og átti þar við fólk sem kemur hingað sem sérfræðingar. Þá vill nefndin að allir sem það á við geti sótt um aðstandendadvalarleyfi til að sameina fjölskyldur. Þannig er það ekki nú. - þeb
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira