Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skálavörður fann villta göngumenn Par sem var í gönguferð á Rjúpnafelli í Þórsmörk villtist af leið og lenti í sjálfheldu í gærkvöldi. Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli og Bróðurhöndin undan Eyjafjöllum voru kallaðar út til leitar. 3.6.2012 09:56
Stúlka skölluð í andlitið Stúlka var flutt á slysadeild skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt en óprúttinn aðili virðist hafa skallað hana í andlitið á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur. 3.6.2012 09:53
Hjólar í kringum landið með parkinson-sjúkdóminn Skemmtiferð hringinn um landið á reiðhjóli hófst núna klukkan tíu frá Prentsmiðjunni Odda. Það er Snorri Már Snorrason, sem á veg og vanda að ferðinni en hann er 47 ára og glímir við parkinson-sjúkdóminn. Snorri hefur verið metinn 75 prósent öryrki en heldur starfsorku sinni með líkamsþjálfun og hreyfingu að því er segir á fréttavef Skessuhorns. Áheitasöfnunin hans er með heldur óvenjulegu sniði því hann vill ekki fá peninga frá fólki heldur vill hann fá fólk til þess að hreyfa sig. 3.6.2012 09:43
Andrómeda nálgast Vetrarbrautina Eftir fjóra milljarða ára verða stórtíðindi í himingeimnum þegar stjörnuþokan Andrómeda rekst á Vetrarbrautina okkar. Tveimur milljörðum ára síðar hafa þessar tvær stjörnuþokur sameinast. 3.6.2012 00:00
Talið að einhver hafi skotið í gegnum rúðu á gröfu Mölbrotnar rúður blöstu við verktaka þegar hann kom að gröfunni sinni í Breiðholtinu í morgun. Talið er að einhverskonar skotvopn hafi verið notað og er verktakanum brugðið. 2.6.2012 20:15
Flutti tónverk í bílakjallara Hörpunnar Tónlist flæddi um bílakjallara Hörpunnar í dag þegar flutt var tónverk sem byggir á rannsókn á því hvernig heyrnarlausir skynja tónlist. 2.6.2012 21:00
Gagnrýnir Almannavarnir fyrir andvaraleysi Almannavarnir huga ekki að hættunni sem steðjar að höfuðborgarsvæðinu þegar eldsumbrot verða næst á Reykjanessvæðinu og yfirvöld hafa leyft byggingar á stöðum sem ekki ætti að byggja á. Þetta segir Haraldur Sigurðsson, einn helsti eldfjallasérfræðingur heims 2.6.2012 19:45
Dagur afboðar komu sína á fund Útgerðarmannafélags Reykjavíkur Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur afboðað komu sína á fund sem Útgerðarmannafélag Reykjavíkur hafði óskað með honum sem varaformanni Samfylkingarinnar og formanni Borgarráðs. Dagur tilkynnir þetta á Facebook síðu sinni en þar útskýrir hann ástæðuna svona: 2.6.2012 19:16
Afstaða frambjóðenda til málskotsréttarins skiptir miklu máli Afstaða frambjóðenda til málskotsréttarins skiptir miklu máli í vali kjósenda á forseta. 2.6.2012 19:00
Býður stjórnmálamönnum á fund: "Komi þeir sem þora“ „Ég hvet hér með Steingrím J. Sigfússon til þess að mæta og ræða við okkur og sjómenn Brims á opnum fundi næsta þriðjudag," segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims, en hann ætlar að standa fyrir opnum fundi í Brimshúsi á miðbakkanum á Reykjavíkurhöfn klukkan tólf næsta þriðjudag. 2.6.2012 18:33
Maður og kona duttu á höfuðið í miðbænum Maður og kona duttu á höfuðið í miðborg Reykjavíkur í dag. Maðurinn datt um klukkan þrjú í dag og hlaut sár á höfði. Kalla þurfti á sjúkrabíl til þess að flytja manninn á spítala. 2.6.2012 17:37
Þóra segist ekki vilja kappræður á kostnað annarra frambjóðanda Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi hefur afþakkað boð um að mæta Ólafi Ragnari Grímssyni í kappræðum á Stöð 2 næstkomandi sunnudag. Ástæðan er sú að öðrum frambjóðendum til forsetambættisins var ekki boðið til kappræðnanna og segir Þóra að hún geti ekki fellt sig við það. 2.6.2012 11:45
Ölvaðir ökumenn klesstu á og ultu Fjórir ökumenn voru teknir í gærkvöldi og í nótt grunaðir um ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu. Einn þeirra var á ferð í austurbænum í Reykjavík þegar hann lenti í árekstri. 2.6.2012 09:39
Hrottar gengu í skrokk á manni af tilefnislausu Tveir menn réðust að karlmanni úti á götu í miðborg Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan eitt í nótt og gengu illa í skrokk á honum samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Maðurinn var meðal annars tekinn hálstaki, sleginn í andlit þannig hann féll í jörðina þar sem árásarmennirnir spörkuðu ítrekað í hendur og andlit mannsins. 2.6.2012 09:34
Steingrímur J. Sigfússon segist sleginn yfir útspili LÍÚ "Ég er ansi hugsi og sleginn yfir þessum síðasta útspili LÍÚ,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, um boðaða vinnustöðvun skipaflota aðildarfélaga LÍÚ, sem var tilkynnt um í dag. Steingrímur segist líta á útspilið sem einhverskonar yfirlýsingu um að LÍÚ telji sig hafa tapað rökræðunni. 2.6.2012 16:59
Segir aðgerð LÍÚ varðandi vinnustöðun hugsanlega ólöglega Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir á Facebook síðu sinni að félagsleg aðgerð LÍÚ, um að hvetja aðildarfélög sín til þess að hefja vinnustöðvun eftir helgi, sé hugsanlega ólögleg og að þeir sem verði fyrir fjárhagslegum skaða vegna þessa ættu að geta fengið skaðabætur höfði þeir mál. 2.6.2012 16:20
Björn Valur segir ákvörðun LÍÚ og aðildarfélaga ógeðfellda "Í fyrsta lagi finnst mér þetta afar ógeðfellt af þeirra hálfu, sérstakleg í ljósi þess að þeir eru að nýta sér lögbundin frídag og hátíðardag sjómanna í þeim tilgangi að beita sjómönnum fyrir sér í þessari deilu,“ segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna um ákvörðun LÍÚ og aðildarfélög sambandsins um að halda ekki til veiða á mánudaginn eftir sjómannadag. 2.6.2012 15:53
Skipin verða í höfn í viku - vilja breiða sátt um kvótafrumvörp "Við erum að tala um að nota næstu viku til þess að fara yfir stöðu málsins með starfsmönnum útgerðanna og fleiri aðilum sem málið varðar,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) en nær allur skipafloti Íslands mun ekki halda til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni við frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða og veiðigjöld og eru til meðferðar á Alþingi núna. 2.6.2012 14:29
Skipafloti íslands fer ekki til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni LÍÚ hefur beint því til félagsmanna sinna að halda ekki til veiða á mánudaginn, daginn eftir sjómannadaginn. Þannig hafa Landssamband íslenskra útvegsmanna og aðildarfélög þess, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar, Útvegsbændafélagið Heimaey, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsmannafélag Norðurlands, Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Snæfellsness, Útvegsmannafélag Suðurnesja, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Þorlákshafnar hafa gert eftirfarandi samþykkt að halda ekki til veiða eftir helgi. 2.6.2012 13:15
Vesalingarnir með flestar tilnefningar til Grímunnar Gríman tilkynnti tilnefningar til íslensku leiklistarverðlaunanna í gær. Það var stórsýningin Vesalingarnir sem hlaut flestar tilnefningar eða alls níu. 2.6.2012 12:45
Enn ekkert samkomulag Enn hefur ekki náðst samkomulag milli þingflokksformanna um framhald þingstarfa. Annarri umræðu um frumvarp um breytingar á veiðigjöldum lauk skömmu eftir miðnætti á Alþingi þegar þingfundi var frestað en þá voru ellefu þingmenn á mælendaskrá. 2.6.2012 12:06
Of snemmt að afskrifa Þóru - kosningabaráttan farin að snúast um ESB Prófessor í stjórnmálafræði segir of snemmt að afskrifa Þóru Arnórsdóttur þrátt fyrir að hún mælist nú með ríflega tuttugu prósentustiga minna fylgi en Ólafur Ragnar Grímsson. Hann segir að Ólafi hafi tekist að láta kosningabaráttuna snúast um afstöðu manni til Evrópusambandsins. 2.6.2012 12:04
Forseti fólksins eða flokkanna? Seint í janúar 1952 lést Sveinn Björnsson, forseti Íslands frá lýðveldisstofnun átta árum fyrr. Kosningar yrðu um sumarið og fljótt kom á daginn að þrír flokkanna á Alþingi vildu hlutast til um hver fengi embættið. 2.6.2012 11:00
Ingólfur Arnarson vígir ylströnd Ingólfur Arnarson landnámsmaður mun mæta með langspil á skinnskýlu og vígja Ylströnd Ingólfs á Ingólfstorgi í dag klukkan 13.30. 2.6.2012 10:20
Herdís opnar kosningaskrifstofu Stuðningsmenn Herdísar Þorgeirsdóttur forsetaframbjóðanda opna í dag kosningamiðstöð að Laugavegi 87. 2.6.2012 10:14
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra 60 ára Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra fagnar í ár 60 ára afmæli. Í tilkynningu frá félaginu segir að það hafi verið stofnað var af framsýnu fólki þann 2. mars 1952, hefur í 60 ár haft það meginmarkmið að stuðla að aukinni orku, starfshæfni og velferð fólks með fötlun, einkum barna. 2.6.2012 10:06
Mubarak dæmdur í lífstíðarfangelsi Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Egypskur dómstóll kvað upp dóm í máli hans nú snemma í morgun. 2.6.2012 09:58
Össur fordæmir voðaverk sýrlenskra stjórnvalda Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fordæmir harðlega voðaverk sýrlenskra stjórnvalda sem og vopnaðra sveita á þeirra ábyrgð en lítill vafi leikur á að þau hafi gerst sek um skipulögð og kerfisbundin mannréttindabrot undanfarnar vikur og mánuði að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. 2.6.2012 09:49
Olíuþjófar í Hafnarfirði Lögreglan fékk tilkynningu um menn sem væru að stela olíu úr vörubílum hjá fyrirtæki í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði skömmu fyrir miðnætti. 2.6.2012 09:46
Segir Selfossvirkjun óraunhæfa Framkvæmda- og veitustjórn Árborgar segir hugmyndir um virkjun við Efri Laugardælaeyju sýna að ekki hafi verið um raunhæfar áætlanir að ræða hvorki hvað varðar arðsemi né tæknilega útfærslu. Þetta sýni yfirferð Verkfræðistofu Suðurlands. 2.6.2012 06:30
Segja ríkisstarfsfólki mútað með punktum hjá Icelandair Iceland Express hefur kært útboð um rammasamning fyrir flug hins opinbera til Kærunefndar útboðsmála. Félagið fullyrðir að kjör helsta keppinautarins, Icelandair, séu langtum lakari en þau sem Iceland Express hafi boðið og að með þeim sé auk þess verið að bera fé á opinbera starfsmenn. Útboðið tók til flugs á Evrópska efnahagssvæðinu og var auglýst í mars í fyrra. Ríkiskaup tóku tilboðum frá Iceland Express og Icelandair, þrátt fyrir ólík kjör, og töldu þau bæði hagstæð. Iceland Express fékk ekki upplýsingar um tilboð Icelandair fyrr en eftir kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. 2.6.2012 06:15
Deyðið aspirnar segja sólarlausir nágrannar „Hér eru nágrannar að skipa manni að deyða sín eigin tré inni á manns eigin lóð,“ segir Gunnar Jónsson, eigandi íbúðarhússins í Leirutanga 29, sem nú er hótað málsókn vegna hárra aspa sem nágrannar til beggja handa segja skyggja á sólina og valda tjóni og óþrifnaði. Tvenn hjón sem búa hvor til sinnar handar við Leirutanga 29 krefjast þess með atbeina Húseigendafélagsins að fimmtíu til sextíu hávaxnar aspir á lóðinni hverfi þaðan. Sólar njóti ekki sem skyldi á Leirutanga 31 og þurft hafi að hækka framlóðina við Leirutanga 27 vegna róta frá öspunum. Þá séu íbúar beggja húsanna langþreyttir á óþrifnaði frá trjánum. 2.6.2012 06:00
Varar við óhóflegri bjartsýni í Búrma „Þessa dagana verð ég vör við það sem ég kalla glæfralega bjartsýni,“ sagði Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, í fyrstu ræðu sinni á alþjóðavettvangi sem hún hélt í Taílandi í gær. „Ég tel að smá skammtur af heilbrigðri tortryggni væri ekki úr vegi,“ bætti hún við. Hún hefur setið í stofufangelsi í Búrma megnið af síðustu tuttugu árum en var látin laus á síðasta ári eftir að mannaskipti urðu í æðstu stöðum herforingjastjórnar landsins. 2.6.2012 06:00
Pútín segir pólitíska lausn vel mögulega í Sýrlandi „Það eru ýmsir hagsmunir í húfi í átökunum og maður þarf að finna þau svæði þar sem þessir hagsmunir fara saman, og fá síðan alla aðila til að setjast að sama borði,“ sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti um ástandið í Sýrlandi, sem farið hefur hríðversnandi undanfarna daga og vikur. „Það þarf ákveðna fagmennsku til og þolinmæði,“ bætti Pútin við og lofaði að beita sér fyrir því að jákvæð niðurstaða fáist. 2.6.2012 05:45
Segir lögregluna þurfa að ná falsaranum „Maður er að melta þetta. Lögreglan þarf að ná í þennan mann og rannsaka hvað er þarna í gangi. Þetta tengist bara þessum eina einstaklingi,“ segir Ástþór Magnússon. Framboð Ástþórs til forseta Íslands var ekki metið gilt þar sem ekki liggur fyrir lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á undirskriftalistum til stuðnings Ástþóri. Innanríkisráðuneytið tilkynnti þetta í gær. 2.6.2012 05:30
Með fordóma gegn gyðingum Áttundi hver Norðmaður er með fordóma gegn gyðingum, samkvæmt niðurstöðum könnunar á vegum Senter for Studier av Holocaust og livssynsminoriteter. Á vef Kristilega Dagblaðsins í Danmörku segir að könnunin leiði jafnframt í ljós að fjórði hver Norðmaður telji að gyðingar líti svo á að þeir séu betri en aðrir. Nær 40 prósent bera meðferð Ísraela á Palestínumönnum saman við meðferð nasista á gyðingum. Talsmenn gyðinga segja niðurstöðurnar bera vott um vanþekkingu á gyðingdómi.-ibs 2.6.2012 04:45
Tíu taka við 90 prósentum Tíu af Evrópusambandsríkjunum 27 taka á móti 90 prósentum allra hælisleitenda í Evrópu. Cecilia Malmström, innanríkismálastjóri ESB, hvetur hin ríkin 17 til þess að axla meiri ábyrgð. Malmström vill umræður um hvernig ESB eigi að takast á við innflutning frá löndum þar sem efnahagsvandi ríkir. 2.6.2012 04:45
Ingólfur Arnarson vígir torgið Ingólfur Arnarson landnámsmaður mun mæta með langspil á skinnskýlu og vígja Ylströnd Ingólfs á Ingólfstorgi í dag klukkan 13.30. Þá mun Lúðrasveit landnámsmanna blása létta tóna við tilefnið. 2.6.2012 04:30
Vilja láta lýsa framboð ógilt Þúsundir manna komu saman í borgum Egyptalands í gær til að krefjast þess að forsetaframboð Ahmeds Shafiks, síðasta forsætisráðherra Mubarak-stjórnarinnar, verði ógilt. Shafik er annar tveggja frambjóðenda sem tilkynnt hefur verið að verði í kjöri í seinni umferð forsetakosninganna síðar í mánuðinum. Hinn er Mohammed Morsi, forsetaefni Bræðralags múslíma. Mótmælendurnir segja framboð Shafiks brjóta í bága við reglur um að enginn þeirra sem voru í stjórn Hosni Mubaraks megi bjóða sig fram til forseta.- gb 2.6.2012 04:30
Bendi á annan stað fyrir Sierra Fulltrúar í skipulagsráði Reykjavíkur hafa frestað ákvörðun um staðsetningu listaverksins Svörtu keilunnar sem menningarráð borgarinnar vill að verði til frambúðar á Austurvelli. Eins og komið hefur fram vill höfundur Svörtu keilunnar, Spánverjinn Santiago Sierra, gefa borginni verkið með því skilyrði að það verði á Austurvelli. Svörtu keilunni er ætlað að vera minnisvarði um borgaralega óhlýðni. Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, vill að verkið sé þegið og það haft á Austurvelli. Alþingi leggst gegn því og skipulagsráð vill að Hafþór stingi upp á öðrum staðsetningum. - gar 2.6.2012 04:00
Annþóri og Berki bannað að mæta fyrir dóm Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson fengu ekki að mæta við þingfestingu ákæru á hendur þeim í Héraðsdómi Reykjaness í gær þrátt fyrir óskir þar um. Annþór og Börkur sitja nú í einangrun á Litla-Hrauni grunaðir um að hafa orðið samfanga sínum að bana og verjendum þeirra var tilkynnt um það í gærmorgun að vegna rannsóknarhagsmuna fengju þeir ekki að mæta í dómssal á meðan. 2.6.2012 04:00
Fleiri þurfi vottorð til að vinna með börnum Yfirvöld í Danmörku ráðgera að auka eftirlit með fólki sem vinnur með börnum með því að fjölga þeim störfum sem krefjast svokallaðs barnavottorðs. Þeim svipar til sakavottorða og kanna bakgrunn starfsfólks á dagheimilum, bílstjórum sem aka börnum og svo framvegis. 2.6.2012 03:45
Finnska lögreglan fær aðstoð Afbrotum sem rekja má til Rúmena hefur fjölgað verulega í Finnlandi eftir að Rúmenía varð aðili að Evrópusambandinu árið 2007. Rúmensku afbrotamennirnir í Finnlandi eru í mörgum tilfellum grunaðir um vasaþjófnað, stuld úr verslunum og svindl við greiðslu vegna viðskipta. 2.6.2012 02:45
Varði átta milljónum í ódæðin NoregurFjöldamorðinginn Anders Behring Breivik eyddi alls um 390 þúsund norskum krónum, sem nemur rúmum 8,3 milljónum íslenskra króna, í skipulag og framkvæmd ódæðanna í fyrrasumar. Þetta kom fram við réttarhöldin í gær. 2.6.2012 02:30
Hægri grænir vilja stafinn G Flokkur hægri grænna, flokkur fólksins, hefur formlega sótt um listabókstafinn G. Flokkurinn, sem leiddur er af Guðmundi Franklín Jónssyni, skilaði inn meðmælendalistum til Innanríkisráðuneytisins í gær. 2.6.2012 02:30