Segir aðgerð LÍÚ varðandi vinnustöðun hugsanlega ólöglega VG skrifar 2. júní 2012 16:20 Gylfi Arnbjörnsson.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir á Facebook síðu sinni að félagsleg aðgerð LÍÚ, um að hvetja aðildarfélög sín til þess að hefja vinnustöðvun eftir helgi, sé hugsanlega ólögleg og að þeir sem verði fyrir fjárhagslegum skaða vegna þessa ættu að geta fengið skaðabætur höfði þeir mál. Gylfi segir að skilji hann ákvörðun LÍÚ rétt þá sé sambandið að beita Alþingi félagslegri aðgerð til þess að þvinga fram breytingar á áformum um breytingar á lögum. „Þetta gerðu þeir líka fyrir ári í tengslum við sömu deilu við gerð kjarasamninga," bætti Gylfi við á Facebook-síðu sinni. Hann segir þetta algerlega bannað samkvæmt 17. grein laga um stéttarfélög og vinnudeilur. „Það væri í rauninni eðlilegt að LÍÚ óski eftir því við SA [Samtök atvinnulífsins] að lögunum verði breytt til að heimila þetta í stað þess að brjóta sífellt lögin. Þeir sem verða fyrir fjárhagslegum skaða af þessari vinnustöðvun geta farið í mál við LÍÚ og fengið hann bættan!" skrifar Gylfi ennfremur. Eins og fram hefur komið á Vísi í dag þá hyggjast aðildarfélög LÍÚ halda skipaflota sínum heima út vikuna í mótmælaskyni vegna fyrirhugaðra kvótafrumvarpa ríkisstjórnarinnar. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ vonaðist til þess að það myndi leiða til þess að allir aðilar myndu setjast niður við samningaborðið og leita að lausn sem sambandinu þykir viðunandi. Þingflokksformaður Vinstri grænna, Björn Valur Gíslason, sagði vinnustöðvunina ógeðfellda. Lögin sem Gylfi vitnar í hljóða svona orðréttÓheimilt er og að hefja vinnustöðvun:1. Ef ágreiningur er einungis um atriði, sem Félagsdómur á úrskurðarvald um, nema til fullnægingar úrskurðum dómsins.2. Ef tilgangur vinnustöðvunarinnar er að þvinga stjórnarvöldin til að framkvæma athafnir, sem þeim lögum samkvæmt ekki ber að framkvæma, eða framkvæma ekki athafnir, sem þeim lögum samkvæmt er skylt að framkvæma, enda sé ekki um að ræða athafnir, þar sem stjórnarvöldin eru aðili sem atvinnurekandi. Gildandi lög um opinbera starfsmenn haldist óbreytt þrátt fyrir þetta ákvæði.3. Til styrktar félagi, sem hafið hefur ólögmæta vinnustöðvun.
Tengdar fréttir Skipin verða í höfn í viku - vilja breiða sátt um kvótafrumvörp "Við erum að tala um að nota næstu viku til þess að fara yfir stöðu málsins með starfsmönnum útgerðanna og fleiri aðilum sem málið varðar,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) en nær allur skipafloti Íslands mun ekki halda til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni við frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða og veiðigjöld og eru til meðferðar á Alþingi núna. 2. júní 2012 14:29 Skipafloti íslands fer ekki til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni LÍÚ hefur beint því til félagsmanna sinna að halda ekki til veiða á mánudaginn, daginn eftir sjómannadaginn. Þannig hafa Landssamband íslenskra útvegsmanna og aðildarfélög þess, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar, Útvegsbændafélagið Heimaey, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsmannafélag Norðurlands, Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Snæfellsness, Útvegsmannafélag Suðurnesja, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Þorlákshafnar hafa gert eftirfarandi samþykkt að halda ekki til veiða eftir helgi. 2. júní 2012 13:15 Björn Valur segir ákvörðun LÍÚ og aðildarfélaga ógeðfellda "Í fyrsta lagi finnst mér þetta afar ógeðfellt af þeirra hálfu, sérstakleg í ljósi þess að þeir eru að nýta sér lögbundin frídag og hátíðardag sjómanna í þeim tilgangi að beita sjómönnum fyrir sér í þessari deilu,“ segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna um ákvörðun LÍÚ og aðildarfélög sambandsins um að halda ekki til veiða á mánudaginn eftir sjómannadag. 2. júní 2012 15:53 Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Sjá meira
Skipin verða í höfn í viku - vilja breiða sátt um kvótafrumvörp "Við erum að tala um að nota næstu viku til þess að fara yfir stöðu málsins með starfsmönnum útgerðanna og fleiri aðilum sem málið varðar,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) en nær allur skipafloti Íslands mun ekki halda til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni við frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða og veiðigjöld og eru til meðferðar á Alþingi núna. 2. júní 2012 14:29
Skipafloti íslands fer ekki til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni LÍÚ hefur beint því til félagsmanna sinna að halda ekki til veiða á mánudaginn, daginn eftir sjómannadaginn. Þannig hafa Landssamband íslenskra útvegsmanna og aðildarfélög þess, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar, Útvegsbændafélagið Heimaey, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsmannafélag Norðurlands, Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Snæfellsness, Útvegsmannafélag Suðurnesja, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Þorlákshafnar hafa gert eftirfarandi samþykkt að halda ekki til veiða eftir helgi. 2. júní 2012 13:15
Björn Valur segir ákvörðun LÍÚ og aðildarfélaga ógeðfellda "Í fyrsta lagi finnst mér þetta afar ógeðfellt af þeirra hálfu, sérstakleg í ljósi þess að þeir eru að nýta sér lögbundin frídag og hátíðardag sjómanna í þeim tilgangi að beita sjómönnum fyrir sér í þessari deilu,“ segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna um ákvörðun LÍÚ og aðildarfélög sambandsins um að halda ekki til veiða á mánudaginn eftir sjómannadag. 2. júní 2012 15:53