Fleiri fréttir

Nýr vegarslóði að Flóaáveitu

Áttatíu og fimm ár eru liðin frá því að Flóaáveitan bætti grassprettu til muna og gerði efnalitla bændur í Flóahreppi ríka. Í tilefni tímamótanna hefur verið ákveðið að opna vegslóða að þessu þekkta mannvirki sem er eitt af tveimur í heiminum sem sagt er að sjáist frá tunglinu.

Sala ÁTVR á áfengi eykst

Sala áfengis það sem af er árinu hefur aukist miðað við sama tímabil í fyrra. Aukningin nemur 1,5% í lítrum talið. Sé rýnt í tölur ákveðinna víntegunda kemur í ljós að sala á rauðvíni hefur aukist um 3% og hvítvíni um 5%. Aftur á móti er samdráttur í sölu brennivíns og vodka.

Tónleikum Buiku frestað vegna veikinda

Vegna bronkítis og barkabólgu spænsk/afrísku söngkonunnar Buiku verður tónleikum hennar frestað. Tónleikarnir áttu að vera næsta sunnudag. Nú er unnið að því að finna nýja dagsetningu sem tilkynn verður um á næstu dögum. Allir seldir miðar gilda auðvitað á hina nýju tónleika, sömu sæti.

Tilnefningar til Grímunnar 2012 kynntar

Tilnefningar til Grímunnar 2012 voru kynntar í Tjarnarbíó í dag. Alls voru 89 verk tilnefnd af leikhúsum og sviðslistahópum til Grímuverðlauna í ár.

Munir úr einvígi aldarinnar til sýnis

Stærsta einkasafn muna úr einvígi þeirra Bobby Fischers og Boris Spasskí verður sýnt um helgina á sýningu Landssambands íslenskra frímerkjasafnara.

Grimmur flækingshundur beit barn

Hundur sem talinn er vera flækingshundur beit barn og glefsaði í konu í Reykjanesbæ í vikunni. Hundurinn var sagður ógnandi og lýstu þeir sem sáu hann á þann hátt að hann væri eins og "stór rotta“ og að hann væri grimmur. Lögregla var kölluð til en þá var dýrið horfið á braut.

Faldi kókaín innvortis - í gæsluvarðhald

Karlmaður um fimmtugt situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla um 370 grömmum af kókaíni til landsins. Í tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn, sem er erlendur, hafi verið stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna til landsins frá London.

Sumarið er komið - 24,4 gráður á Suðurlandi

Það má með sanni segja að júnímánuður byrji vel því heiðskýrt er að mestu um allt land og hitatölur sjást sem einhverjum gæti einungis dreymt um að sjá erlendis. Mestu hlýindin hafa mælst á Þingvöllum, 21,8 gráður, og á Eyrabakka 24,4 gráður, samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands.

Pillay fordæmir fjöldamorð í Sýrlandi

Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu Þjóðanna, sagði í dag að fjöldamorðin í bænum Houla í Sýrlandi á laugardaginn síðastliðinn gætu talist sem glæpur gegn mannkyni.

Hjóluðu 740 þúsund kílómetra á þrettán dögum

11.380 þátttakendur frá 666 vinnustöðum hjóluðu 741.450 kílómetra á þeim 13 dögum sem verkefnið Hjólað í vinnuna stóð yfir. Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að við það hafi sparast um 133 tonn af útblæstri koltvísýrings og 55.597 lítrar af eldsneyti sem gera um 14 milljónir króna sé miðað við 80kg einstakling sem ekur á fólksbíl.

Vill banna gosdrykki í yfirstærð

Borgarstjórinn í New York vill banna gosdrykki í stórum ílátum til þess að sporna gegn offituvandamálinu í borginni. Gangi hugmyndir Michaels Bloomberg eftir yrði hámarksstærð á gosdrykkjaílátum hálfur lítri en þetta yrði í fyrsta sinn sem slíkum aðferðum yrði beitt í Bandaríkjunum.

Flugdólgi vísað út úr flugvél - endaði í fangaklefa

Flugstjóri flugvélar, sem var á leið til Lundúna frá Keflavíkurflugvelli í vikunni, neitaði að fljúga með erlendan karlmann á fertugsaldri vegna ölvunarástands hans. Honum var vísað út úr flugvélinni og tóku lögreglumenn á móti honum í flugstöðinni. Honum var tilkynnt að hann þyrfti að gera hlé á ferðalagi sínu og gista á flughóteli.

Kona og börn læstust inni á klósetti í 45 mínútur

Kona, ásamt þremur börnum sínum, læstist inni á klósetti í Sundmiðstöðinni í Reykjanesbæ í fjörutíu og fimm mínútur í vikunni. Óttast var að súrefnislaust gæti orðið á salerninu og því var ákveðið að kalla á lögreglu. Þegar hún kom á staðinn hafði starfsmaður í sundlauginni náð að brjóta upp hurðina og hleypa konunni og börnunum út.

Braust inn á verkstæði og gerði þarfir sínar í fötu

Fullorðinn karlmaður lenti í vandræðum fyrr í vikunni þegar hann brá sér á klósettið hjá opinberri stofnun hér í borg. Vera hans á klósettinu dróst eitthvað á langinn og þegar hann kom út var búið að slökkva ljósin í afgreiðslunni og læsa útidyrahurðinni. Starfsfólkið var farið heim og var hann því fastur inni.

Bræðiskast þingmanns vekur athygli

Mikið hefur verið rætt um skammarræðu bandaríska repúblikanans Mike Bost síðustu daga. Bost, sem er fulltrúi í löggjafarþingi Illinois, úthúðaði forseta þingsins fyrir að gefa minnihlutaþingmönnum aðeins 15 mínútur til að kynna sér frumvarp um eftirlaun kennara í ríkinu.

Ástþór ánægður að óvissunni sé eytt - vill lögregluna í málið

"Ég hef ekki hugmynd um hvað býr þarna að baki,“ segir Ástþór Magnússon, fyrrum forsetaframbjóðandi. Innanríkisráðuneytið telur, að í ljósi þess að ekki liggi fyrir lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á undirskriftarlistum til stuðnings Ástþóri, séu ekki uppfyllt ákvæði laga um framboð og kjör forseta. Hann verður því ekki með í kosningunum í lok þessa mánaðar.

Ástþór verður ekki í framboði til forseta

Framboð Ástþórs Magnússonar er ekki metið gilt og því verður hann ekki í framboði til embættis forseta Íslands þann 30. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu sem var að berast. Ráðuneytið telur, að í ljósi þess að ekki liggi fyrir lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á undirskriftarlistum til stuðnings Ástþóri, séu ekki uppfyllt ákvæði laga um framboð og kjör forseta. "Því verður framboð Ástþórs Magnússonar Wium ekki metið gilt."

Mannréttindaráð fundar í kjölfar fjöldamorða

Enn berast fregnir af fjöldamorðum í Sýrlandi. Andspyrnumenn þar í landi hafa birt myndband sem sýnir lík þrettán verkamanna en talið er að vígasveit hafi skotið þá til bana í útjaðri Qusair þorpsins í vesturhluta Sýrlands. Er þetta þriðja fjöldamorðið á einni viku í landinu.

Annþór og Börkur fengu ekki að mæta í héraðsdóm

Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson mættu ekki í Héraðsdóm Reykjaness í morgun er þingfesting í máli gegn þeim fór fram. Að sögn verjenda þeirra fengu þeir ekki leyfi til þess þar sem þeir sitja í einangrun út af öðru máli.

Danir reikna með metuppskeru af jarðarberjum

Danir reikna með metuppskeru af jarðarberjum í sumar en það skýrist einkum af hagstæðum ræktunarskilyrðum snemma í vor þar sem engin næturfrost trufluðu ræktunina.

Töluverðum verðmætum stolið úr sendibíl

Þjófur braust inn í sendibíl miðsvæðis í Kópavogi laust fyrir klukkan tíu í gærkvöldi og stal talsverðum verðmætum úr honum. Þjófurinn komst undan með þýfið, en vitni gat gefið lögreglu góða lýsingu á honum og er hans nú leitað.

Selja "íslenskar“ lopapeysur sem eru prjónaðar í Kína

Töluvert magn af lopapeysum sem seldar eru í verslunum er prjónað eða framleitt erlendis. Peysurnar eru oft merktar sem íslensk hönnun eða vara en ekki tilgreint hvar þær eru gerðar. Enginn greinarmunur er gerður á þessum peysum og þeim sem prjónaðar eru hérlendis.

John Edwards sýknaður

Dómstóll í Bandaríkjunum hefur sýknað öldungadeildarþingmanninn John Edwards af ákæru um að hafa misnotað fé úr kosningasjóði sínum árið 2008 þegar hann var varaforsetaefni Demókrataflokksins í forsetakosningunum það ár.

Togarar sigla í land fyrir Sjómannadaginn

Togarar, sem hafa verið á karfaveiðum á Reykjaneshrygg að undanförnu, hættu veiðum í gærkvöldi og i nótt og sigldu áleilðis til lands, til að áhafnirnar verði komnar í land fyrir Sjómannadaginn um helgina.

Framsýn alfarið á móti raforkusölu um sæstreng

Stéttarfélagið Framsýn hafnar alfarið hugmyndum Landsvirkjunar og stjórnvalda um að flytja út raforku með sæstreng frá Íslandi til Evrópu, eð því er segir í ályktun aðalfundar Framsýnar, sem haldinn var í gærkvöldi.

Alvarleg líkamsárás í Hafnarfirði

Nokkrir menn réðust saman á einn karlmann fyrir utan veitingastað í Hafnarfirði laust fyrir klukkan tvö í nótt, og létu högg og spörk dynja á honum. Hann hlaut meðal annars áverka á höfði og hálsi.

Vilja gjörbreyta samfélaginu

Húmanistaflokkurinn kynnti stefnumál sín á blaðamannafundi í gær, en flokkurinn hyggst bjóða fram í öllum kjördæmum landsins til næstu Alþingiskosninga. Eitt helsta stefnumál flokksins eru lýðræðisumbætur. Þá vilja Húmanistar að fjármálakerfið verði undir stjórn ríkisins ásamt því að ríkið ákvarði magn peninga í umferð.

Hæstu styrkirnir til rjúpnarannsókna

Umhverfisráðuneytið hefur úthlutað 28,4 milljónum króna úr Veiðikortasjóði í styrki til ýmissa rannsóknarverkefna. Hæsti einstaki styrkurinn fer til rannsókna á rjúpum. Í kjölfar auglýsingar um umsóknir um styrki úr Veiðikortasjóði til rannsókna á stofnum villtra fugla og villtra spendýra bárust umhverfisráðuneytinu tólf umsóknir frá 15 aðilum að upphæð ríflega 50 milljónir króna.

Tíu manns fyrir dóm í dag vegna ofbeldis

Ákæra á hendur Annþóri Kristjáni Karlssyni, Berki Birgissyni og átta öðrum mönnum fyrir þrjár hrottafengnar líkamsárásir verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Ákæran er afrakstur lögreglurannsóknar sem komst í fréttir þegar ráðist var í viðamikla rassíu víða á höfuðborgarsvæðinu um miðjan mars. Árásirnar þrjár voru mjög alvarlegar, eins og lesa má um hér fyrir neðan. Annþór er ákærður fyrir að standa að þremur þeirra og Börkur að tveimur.

Tvöfölduð framleiðsla rúmast innan ramma

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að hægt sé að tvöfalda raforkuframleiðslu fyrirtækisins án þess að ganga gegn stefnu stjórnvalda um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Rammaáætlun þar um, auk orkustefnu stjórnvalda, gangi ekki gegn slíkri aukningu. „Það felst ekki endanleg ákvörðun í Rammaáætlun svo erfitt er að segja til um hvernig það fer. Við munum að sjálfsögðu miða okkar áætlanir við Rammaáætlunina. Við höfum sagt að við teljum að hægt sé að tvöfalda orkuframleiðslu á Íslandi á tækni- og umhverfislega fullnægjandi hátt. Ég held að það sé innan marka Rammaáætlunar, ef horft er til biðflokksins þar auk kosta sem ekki eru í Rammaáætlun,“ segir Hörður.

Má bara selja tregbrennanlegar sígarettur

Innanríkisráðuneytið hefur staðfest að ÁTVR megi ekki dreifa sígarettum sem ekki uppfylla nýjan öryggisstaðal Evrópska efnahagssvæðisins. Um er að ræða hertar reglur um hvernig sígarettupappír má brenna. Á vef ÁTVR segir að undanfarið hafi öll sígarettubréf verið að breytast í tregbrennanlega gerð samkvæmt alþjóðlegum stöðlum:

Fjölmiðlanefnd aðhefst ekki

Fjölmiðlanefnd hefur ekki heimild til að grípa til viðurlaga vegna þeirrar ákvörðunar Stöðvar 2 að bjóða aðeins Ólafi Ragnari Grímssyni og Þóru Arnórsdóttur að taka þátt í umræðuþætti á sunnudag. Nefndin hefur ekki heldur heimild til að gefa fjölmiðlaveitum fyrirmæli um hvernig umfjöllun þeirra í aðdraganda kosninga skuli háttað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni. Þingmenn Hreyfingarinnar höfðu sent fjölmiðlanefnd erindi vegna ákvörðunar Stöðvar 2. Þá höfðu frambjóðendur gert athugasemdir við fyrirkomulagið.

Vilja jafna réttindi útlendinga

samfélagsmál Ein löggjöf verður til um málefni útlendinga hér á landi ef tillögur starfshóps um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) verða að veruleika. Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra og formaður starfshópsins, kynnti tillögur hópsins og starf á fundi á miðvikudag. Starfshópurinn vill einnig að útlendingar sem koma hingað til lands fái aukna fræðslu um réttindi sín og skyldur. Hugmynd hefur komið upp um að útbúa dvd-disk sem fók verði að horfa á hjá Útlendingastofnun þegar það sækir hér um dvalarleyfi.

Segja Rússa stuðla að borgarastríði

„Þeir eru að segja mér að þeir vilji ekki sjá borgarastríð. Ég hef verið að segja þeim að stefna þeirra muni hjálpa til við að stuðla að borgarastríði,“ sagði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um afstöðu Rússa í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Sjá næstu 50 fréttir