Innlent

Hrottar gengu í skrokk á manni af tilefnislausu

Skemmtanalíf í Reykjavík. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Skemmtanalíf í Reykjavík. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint. Mynd Hari
Tveir menn réðust að karlmanni úti á götu í miðborg Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan eitt í nótt og gengu illa í skrokk á honum samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Maðurinn var meðal annars tekinn hálstaki, sleginn í andlit þannig hann féll í jörðina þar sem árásarmennirnir spörkuðu ítrekað í hendur og andlit mannsins.

Maðurinn var með talsverða áverka í andliti og var því fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Fossvogi þar sem gert var að sárum hans.

Svo virðist sem árásin hafi verið með öllu tilefnislaus. Árásarmennirnir voru á vettvangi þegar lögreglu bar að. Þeir voru handteknir en látnir lausir eftir skýrslugjöf. Fórnarlambið hyggst kæra mennina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×