Fleiri fréttir

Síðustu líkamspartarnir fundnir?

Tvær póstsendingar sem innihéldu líkamsparta fundust við kanadíska skóla í gær. Pakkarnir eru taldir tengjast máli klámmyndaleikarans sem grunaður er um að myrða elskhuga sinn og senda líkamsparta hans í pósti til stjórnmálaflokka.

Sektir á mótmælendur hækkaðar í Rússlandi

Rússar samþykktu í dag umdeild lög sem leggja háar sektir við mótmælum. Fréttamaður BBC segir lögin gefa yfirvöldum aukið rými til að túlka hvar mótmæli megi eiga sér stað og í hvaða formi þau megi birtast.

Veiðar dótturfyrirtækja vottaðar

Dótturfyrirtæki Samherja í Englandi (UK Fisheries Ltd) og í Þýskalandi (DFFU) hafa fengið vottun samkvæmt MSC-staðlinum um sjálfbærar og umhverfisvænar veiðar á þorski, ýsu og ufsa, að því er segir í fréttatilkynningu frá MSC.

Esjan gránaði í nótt

Esjan gránaði í nótt og veittu vegfarendur því athygli þegar þeir fóru framhjá í morgun að snjólínan liggur niðri í um 600 metra hæð, eða þar sem svokallaður Steinn er. Það er vinsæll áfangastaður þeirra sem ganga á Esjuna.

Tvöfalda má framleiðslu úr lífmassa

Eitt aðalumfjöllunarefni norræna samstarfsverkefnisins „CO2 Electrofuels“ er hvernig nýta má raforku á sem hagkvæmastan hátt til að tvöfalda magn eldsneytis sem framleiða má úr lífmassa. Þá snýr verkefnið að því að draga úr raforkunotkun þegar eldsneyti er framleitt úr kolsýru.

Nær 2.000 íbúðir í eigu ÍLS

Um 800 einstaklingar og fjölskyldur leigja hjá Íbúðalánasjóði. Leigjendum hefur fjölgað hratt. Leigutekjur sjóðsins á árinu eru áætlaðar um 1.050 milljónir. Sjóðurinn verður bráðlega með um 400 eignir á sölu.

Náði 2. sæti í svifflugskeppni

Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands og núverandi Íslandsmeistari í svifflugi, endaði í öðru sæti á opna norska meistaramótinu í svifflugi sem haldið var í Elverum í Noregi 27. maí til 2. júní.

Kæra ógildingu framboðsins

Fimm einstaklingar hafa kært ógildingu forsetaframboðs Ástþórs Magnússonar til stjórnsýslunnar, Hæstaréttar og Umboðsmanns Alþingis.

Stöðva sölu á humarhölum

Stöðvuð hefur verið sala á Blámar-humarhölum og varan kölluð af markaði, að því er fram kemur í tilkynningu Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

Líkamsárás í Kópavogi

Karlmaður réðst á konu í Kópavogi á tólfta tímanum í gærkvöldi og veitti henni talsverða áverka í andliti.

Lið Hemma rassskellti fangana á nýjum velli

Hemmi Gunn stýrði úrvalsliði fótboltamanna til sigurs gegn liði fanga í fyrsta leik á nýjum fótboltavelli við fangelsið á Litla-Hrauni. Nýi völlurinn var vígður við mikla athöfn á mánudag. Þetta var alveg stórkostlegur dagur, segir Hemmi.

Skip LÍÚ bundin við bryggju út vikuna

Útvegsmenn munu halda skipum við bryggju út vikuna. Boðað er til allsherjarsamstöðufundar útvegsmanna og starfsfólks í sjávarútvegi á morgun. Forstjóri Brims og sjávarútvegsráðherra skiptust á skoðunum á fundi í Reykjavík í gær.

Fangelsið á beinu brautina

Arkís arkitektar urðu hlutskarpastir í samkeppni um hönnun á nýju fangelsi á Hólmsheiði. Taka á nýtt fangelsi í notkun árið 2015. Hætt verður að nota Kópavogsfangelsi og Hegningarhúsið við Skólavörðustíg.

Hjálparstarfsfólki hleypt inn

Stjórn Bashar al-Assads Sýrlandsforseta hefur fallist á að hleypa hjálparstarfsfólki inn á þau fjögur svæði sem harðast hafa orðið úti í átökunum í landinu.

Tveir látnir eftir árás óþekktra köngulóa

Ný tegund stórra árásargjarnra köngulóa hefur valdið ofsahræðslu í þorpi í Assam, afskekktu héraði í Norðaustur-Indlandi. Íbúarnir kölluðu á hjálp eftir að fjöldi köngulóa „réðist inn“ í þorpið.

Elísabet drottning segist djúpt snortin

„Það hefur snert mig djúpt að sjá svo margar þúsundir fjölskyldna, nágranna og vina fagna saman í svo ánægjulegu andrúmslofti,“ sagði Elísabet Bretadrottning í stuttu ávarpi til bresku þjóðarinnar í gær, á lokadegi fjögurra daga hátíðarhalda í tilefni af sextíu ára krýningar-afmæli hennar.

Einn leiðtogi al-Kaída féll í árás

Pakistan, APBandaríkjamenn fullyrtu í gær að Abu Yahya al-Libi, næstæðsti yfirmaður al-Kaída, hafi fallið í árás bandarísks flygildis á lítið þorp í ættbálkahéraðinu Norður-Waziristan í Pakistan.

Íhugar málsókn vegna viðtals í Mannlífi

Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, íhugar að stefna rithöfundinum Einari Kárasyni og Jóhannesi Jónssyni, oft kenndan við Bónus, vegna viðtals sem Einar tók við Jóhannes í tímaritinu Mannlíf fyrir skömmu.

Rafbíll tekinn á 124 km hraða

"Ég gleymdi mér í góða veðrinu," segir Gísli Gíslason, forstjóri Northern Light Energy. Hann var í gær fyrstur allra til að vera tekinn fyrir of hraðan akstur á rafbíl á Íslandi. Gísli gerir ekki lítið úr alvarleika atviksins og hvetur aðra ökumenn til að fara varlega í umferðinni. Gísli ekur á sportlegum Tesla Roadster-rafbíl og segir hann lögreglumennina hafa verið hissa á því að bíll knúinn áfram af íslenskri orku skyldi ná þessum hraða. Þeir mældu hann á 124 km hraða á Reykjanesbrautinni.

Laxveiðin fer mjög vel af stað

Sautján laxar komu á land í Norðurá og Blöndu í morgun en laxveiðitímabilið hófst formlega í dag með opnun þessarra tveggja áa. Fyrsta lax dagsins var landað í Norðurá klukkan 7.22 eða þegar rétt um 22 mínútur voru liðnar af laxveiðisumrinu. Það var Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, sem landaði þá um 10 punda, grálúsugri hrygnu. Þegar laxalús er á fiski gefur það til kynna að hann sé nýgenginn úr sjó því lúsin lifir aðeins í saltvatni og drepst því fljótlega eftir að lax gengur upp í ár.

"Hvar voru allir þessir fréttamenn fyrir 40 árum?"

Rússneski söngvarinn, sem myndbandavefurinn Youtube gerði óvænt heimsfrægan á gamalsaldri sem Trololo, lést í Sánkti Pétursborg í gær, 77 ára að aldri. Hann hét í raun Edvard Kihl, hafði verið þekktur í gömlu Sovétríkjunum fyrir 40 árum, en flestum gleymdur þar til fyrir tveimur árum að einhver fann gamalt myndband af honum úr sovéska sjónvarpinu frá árinu 1976 og setti á Youtube.

Einar Örn: Borgaði 5.900 krónur fyrir sætið

"Ég tel mig ekki hafa verið að brjóta siðreglurnar, mér var ekki boðið sem borgarfulltrúa,“ segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins og formaður menningar- og ferðmálanefndar Reykjavíkurborgar.

Öryggisvörðurinn sér mikið eftir árásinni

Sláandi myndir náðust af því þegar öryggisvörður á Hlemmi gekk í skrokk á manni sem þar hafðist við. Starfsmanninum hefur verið vikið frá störfum og forstjóri Strætó segir koma til greina að endurskoða öryggismálin.

Vill samráðs við stéttina til að leysa vandann

Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu virðist á góðri leið með að ganga af heimilislækningum dauðum. Þetta segir formaður félags íslenskra heimilislækna sem krefst samráðs við stéttina svo hægt sé að leysa vandann.

Gerist næst árið 2247 - einstakt tækifæri að sjá Venus í kvöld

"Næst þegar þetta gerist þá verður árið 2247 - þannig þetta er einstakt tækifæri fyrir okkur Íslendinga,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Klukkan korter yfir tíu í kvöld mun plánetan Venus ganga á milli sólarinnar og jarðarinnar - og eru Íslendingar í bestu stöðu í heiminum til að sjá það gerist.

Síminn bjargaði hjónum í sjálfheldu

"Það var nú eiginlega bara heppni að ég við vorum með síma,“ segir Elísabet Ósk Vigfúsdóttir, sem var bjargað ásamt manni sínum úr sjálfheldu á Helgafelli í gær. Um 20 björgunarsveitarmenn tóku þátt í að bjarga þeim.

Helmingurinn fær sumarstarf hjá borginni

Rúmlega 50% þeirra ungmenna sem sóttu um sumarstarf hjá Reykjavíkurborg fá vinnu í ár. Þetta segir Hulda Gunnarsdóttir, sérfræðingur upplýsingamála hjá borginni. Áætlað er að ráða um 1400 starfsmenn í sumar-og afleysingastörf hjá borginni 2012. Rúmlega 4000 umsóknir hafa borist.

Ferðamaðurinn á leið til Reykjavíkur

Erlendi ferðamaðurinn sem sendi neyðarboð frá Skeiðarárjökli fyrr í dag er nú á leið með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Ekki er vitað um ástand mannsins en hann er ekki talinn vera mikið slasaður.

SÞ ætla ekki að aðhafast í máli íslenskra sjómanna gegn ríkinu

Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna sem hefur fjallað um mál Erlings Sveins Haraldssonar og Arnar Snævars Sveinssonar gegn íslenskum stjórnvöldum hefur ákveðið að loka málinu þar sem stjórnvöld hafi brugðist, "með ásættanlegum hætti að hluta til" við tilmælum nefndarinnar. Stjórnvöldum barst tilkynning um þetta í gær.

"Niðurstaðan kemur ekki á óvart"

Páll Magnússon, útvarpsstjóri, fagnar niðurstöðu álitsgerðar sem unnin var um hæfi RÚV til að fjalla um forsetakosningarnar í ár. "Niðurstaðan kemur ekki á óvart,“ segir Páll. "En við töldum rétt að útkljá þessi mál.“

Klámmyndaleikarinnar framseldur til Kanada

Klámmyndaleikarinnar Luka Rocco verður að öllum líkindum framseldur til Kanada á næstu vikum. Luka var handekinn á kaffihúsi í Berlín í gær eftir að hafa verið eftirlýstur af Interpol.

Tvo þarf til að rjúfa þing

Hvorki forseti né forsætisráðherra fara einir með þingrofsrétt. Þetta segir Ragnhildur Helgadóttir, prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík.

71 milljón úthlutað úr Pokasjóði

Úthlutað var úr Pokasjóði verslunarinnar við athöfn í Salnum í Kópavogi í dag. Tæplega 71 milljón króna var úthlutað til 82 verkefna á sviði umhverfismála, menningar, mannúðar, íþrótta og útivistar um allt land.

Fangelsið á Hólmsheiði - Arkís sigraði

Arkitektastofan Arkís sigraði í samkeppni um hönnun fangelsis á Hólmsheiði. Alls bárust átján tillögur og voru veitt verðlaun fyrir þær þrjár sem þóttu bera af.

Aðstoðarmönnum dómara falið ríkara hlutverk

Aðstoðarmönnum dómara verður, lögum samkvæmt, falið mun ríkara hlutverk í héraðsdómstólum samkvæmt nýju frumvarpi um dómstóla sem er í þinginu. Samkvæmt frumvarpinu munu aðstoðarmenn geta setið þingfestingar og fyrirtökur fyrir dómara og tekið á móti skjölum sem dómari tekur nú við. Þá munu aðstoðarmenn geta tekið ákvarðanir í málum þar sem sakborningur eða stefndi grípur ekki til varnar.

Sjá næstu 50 fréttir