Einar Örn: Borgaði 5.900 krónur fyrir sætið Boði Logason skrifar 5. júní 2012 19:17 Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins. „
Ég tel mig ekki hafa verið að brjóta siðreglurnar, mér var ekki boðið sem borgarfulltrúa," segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins og formaður menningar- og ferðmálanefndar Reykjavíkurborgar. Í Útvarpsfréttum Ríkisútvarpsins var greint frá því að Einar Örn hafi þegið boðsferð WOW air í jómfrúarferð félagsins til Parísar á fimmtudag í síðustu viku. Í siðareglum borgarfulltrúa segir að kjörnir fulltrúar þiggi ekki gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi frá viðskiptamönnum eða þeim sem leita eftir þjónustu Reykjavíkurborgar nema um sé að ræða óverulegar gjafir. Einar Örn segir í samtali við Vísi að Skúli Mogensen, stjórnarformaður WOW air, sé vinur sinn og hann hafi boðið sér og konu sinni í ferðina. „Og ég borgaði fyrir sætin mín sjálfur - 5.900 krónur fyrir sætið fram og til baka," segir Einar Örn. „Ég heiti Einar Örn Benediktsson og ég á mér annað líf en líf borgarfulltrúa. Ég skil alveg afhverju siðareglurnar voru settar - en í þessu samhengi er ekki verið að sækjast eftir þjónustu til Reykjavíkurborgar. Þessi ferð hefur ekkert með það sem WOW air er að gera," segir hann. Hann bendir á að ef Reykjavíkurborg þyrfti að láta gera útboð í flugferð þá færi það í ákveðið útboðsferli sem hann kæmi ekki nálægt. Auk Einars Arnar voru Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu og Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs, í ferðinni til Parísar. Ásamt fulltrúum fjölmiðla, ferðaskrifstofa og vina stjórnenda WOW air.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira