Fangelsið á beinu brautina 6. júní 2012 03:00 Á Hólmsheiði Svona er umhorfs þar sem nýtt fangelsi á að rísa, skammt austan Rauðavatns í nágrenni borgarinnar. Til að komast að fangelsinu er ekið út af Suðurlandsvegi eins og halda eigi á Nesjavelli og er þá afleggjarinn að lóðinni skammt undan.Fréttablaðið/Pjetur
Þrjár tillögur af átján hlutu verðlaun í hönnunarsamkeppni innanríkisráðuneytisins um nýtt fangelsi á Hólmsheiði í Reykjavík. Fyrstu verðlaun, fimm milljónir króna, hlaut tillaga Arkís arkitekta. Að sögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, sérfræðings í innanríkisráðuneytinu og formanns dómnefndar, taka nú við samningar um endanlega hönnun fangelsisins. „Vonandi verður hægt að ljúka því og hefja framkvæmdir í upphafi næsta árs,“ segir hún, en stefnt er að því að taka fangelsið í notkun fyrir mitt ár 2015. Í öðru sæti í samkeppninni var tillaga frá Arkitektur.is, sem fékk fjórar milljónir í verðlaun, og í því þriðja var tillaga Teiknistofunnar Traðar, sem fékk eina milljón króna í verðlaun. Steinunn segir verkefnið ekki hafa verið einfalt því fangelsið eigi bæði að vera kvennafangelsi og gæsluvarðhalds- og öryggisfangelsi með 56 fangarýmum. Flókið geti verið að tryggja nauðsynlegan aðskilnað fanga og fangadeilda og sveigjanleika í rekstri. „Þessi hræðilegi atburður sem nýverið varð á Litla Hrauni sýnir hins vegar vel þörfina á því að reisa fangelsi af þessu tagi þar sem hægt er að skilja að hættulega fanga,“ segir hún og vísar til þess að andlát fanga á Litla-Hrauni er talið til komið vegna áverka sem samfangar hans veittu honum. Tveir eru í gæsluvarðhaldi vegna þess máls. Í niðurstöðu dómnefndar um vinningstillöguna er hún sögð svara einstaklega vel áherslum í samkeppnislýsingu. „Einkum eru gæsluvarðhaldsþættinum gerð frábær skil, sem og aðalvarðstofu og miðlægum rýmum,“ segir þar. Aðalvarðstofan er miðlægur sívalningur umlukinn dagsbirtu sem fellur niður um ofanljós, segir þar jafnframt, og inngarðar sagðir mynda hjarta hverrar fangadeildar. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði við kynningu á niðurstöðum dómnefndar í gær að um merk tímamót væri að ræða, enda hefði í rúma hálfa öld verið stefnt að því að reisa nýtt fangelsi í Reykjavík. „Síðan hefur þetta gengið afar skrykkjótt þar til nú að við erum klárlega komin á beinu brautina og sjáum fyrir að fangelsið verði risið og komið í notkun áður en árið 2015 verður runnið á enda,“ sagði hann. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira