Fleiri fréttir

Húsasmiðjan tekur áburð úr sölu

Matvælastofnun hefur gert athugasemdir við sölu fyrirtækisins á áburði sem gengur undir nafninu Garðablámi. Niðurstöður efnagreininga Matvælastofnunar leiddu í ljós að kadmíuminnihald væri yfir viðmiðunarmörkum sem í gildi eru á Íslandi. Húsasmiðjan flutti inn viðkomandi áburð í góðri trú enda sýndi innihaldslýsing þýska framleiðandans að efnainnihald áburðarins samræmdist íslenskum reglugerðum og byggðist innflutningsleyfið á þeim upplýsingum sem framleiðandinn upplýsti um. Húsasmiðjan hefur nú þegar brugðist við, í ljósi tilkynningar Matvælastofnunar, og tekið áburðinn tímabundið úr sölu í verslunum félagsins.

Sendiherrar ekki lengur velkomnir í Sýrlandi

Sendiherrar Bandaríkjanna og Bretlands eru ekki lengur velkomnir í Sýrlandi. Yfirvöld þar í landi tilkynntu í dag að diplómatarnir yrðu reknir á brott en fyrir rúmri viku var sendiherrum Sýrlands gert að yfirgefa sendiráð sín í nokkrum löndum í Evrópu og Asíu.

Óvíst hvenær þingstörfum lýkur

Ekki liggur fyrir hvenær þingstörfum lýkur og þingmenn fara í sumarfrí. Formenn flokkanna funduðu um málið í gær. Bjarni Benediktsson sagði enga niðurstöðu hafa fengist á fundinum. "Menn voru svona að ræða stöðuna. Það gerðist nú ekki mikið," sagði Bjarni. Hann vill ekki spá fyrir um hve lengi þingið mun dragast í viðbót. Upphaflega var stefnt að því að þinglok yrðu nú um mánaðarmótin eða í byrjun júní. Ljóst er að það mun dragast um sinn enda nokkur stór mál á dagskrá alþingis.

Allir fengu vinnu hjá Kópavogi

Öll ungmenni sem sóttu um sumarstarf hjá Kópavogsbæ fengu vinnu. Rúmlega 1.500 ungmenni munu því starfa við margvísleg störf hjá bænum í sumar. Flest starfa ungmennin við snyrtingu og fegrun bæjarins en einnig sem stjórnendur á leikjanámskeiðum, flokksstjórar í vinnuskóla, verkamenn við íþróttavelli eða við afleysingar í sundlaugum svo dæmi séu nefnd.

Árásin á Hlemmi átti sér aðdraganda

Persónulegar illdeilur urðu til þess að öryggisvörður á Hlemmi gekk í skrokk á útigangsmanni sem þar hafðist við. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó, segist hafa heyrt af því að árásin sem Grapevine birti á vefsíðu sinni hafi átt sér aðdraganda og mönnunum lent saman áður.

Kæra ógildingu framboðs Ástþórs

Fimm kjósendur hafa tekið sig saman og kært ákvörðun Innanríkisráðuneytisins að ógilda forsetaframboð Ástþórs Magnússonar. Kæran hefur borist til Hæstaréttar og Umboðsmanns Alþingis.

Árásin á Hlemmi einstakt mál

"Þetta er mjög leiðinlegt atvik, en einstakt mál geri ég ráð fyrir,“ segir Heiða Kristín Helgadóttir, varaformaður velferðaráðs Reykjavíkurborgar. Vísir sagði í gær frá myndbandi sem Grapevine birti af öryggisverði á Hlemmi sem gekk í skrokk á útigangsmanni sem hafðist við á Hlemmi. Mikið hefur verið gert á Hlemmi til þess að reyna að koma í veg fyrir að fólk dvelji þar langtímum saman við óæskilega iðju, en sú spurning vaknar hvort nóg sé gert fyrir utangarðsfólk. Heiða Kristín telur að mikil vinna sé unnin.

Fangelsið að Sogni opnað

Nýtt fangelsi að Sogni í Ölfusi var formlega tekið í notkun þann 1. júní síðastliðinn. Fangelsið er skilgreint sem "opið" fangelsi og verður það rekið sem útibú frá öryggisfangelsinu á Litla-Hrauni. Gert er ráð fyrir að vista þar allt að 20 fanga.

Klámmyndaleikarinn handtekinn í Berlín

Kanadíski klámmyndaleikarinn sem var eftirlýstur af Interpol var handtekinn í Berlín þar sem hann sat á netkaffi og las fréttaumfjöllun um sjálfan sig. Klámmyndaleikarinn Luka Rocco Magnotta er grunaður um að hafa drepið fyrrum ástmann sinn, skorið af honum limi og sent í pósti til stjórnmálamanna.

Íslendingum mun fjölga gríðarlega

Íslendingar verða að minnsta kosti orðnir 393 þúsund talsins árið 2061 samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofunnar. Ítrasta spá, eða svokölluð háspá, gerir reyndar ráð fyrir því að mannfjöldinn verði orðinn 498 þúsund og miðspá gerir ráð fyrir að mannfjöldinn verði 436 þúsund.

Fiskverð snarhækkar á innlendum mörkuðum

Fiskverð snarhækkaði á fiskmörkuðum í gær og var um það bil 20 prósentum hærra en að meðaltali í síðasta mánuði, samkvæmt heimasíðum fiskmarkaðanna.

Rebekka Rut er fundin

Rebekka Rut Baldvinsdóttur, 15 ára gömul stúlka er fundin. Lögreglan lýsti eftir henni í gærdag en þá hafði hún ekki sést frá því að hún fór í skóla á föstudaginn var.

Kjarnorkuvopn verða um borð

Þýsk stjórnvöld hafa frá upphafi vitað að Ísraelar myndu setja kjarnorkuvopn í kafbáta sem framleiddir eru í Þýskalandi og að stærstum hluta greiddir af þýskum stjórnvöldum.

Vonsvikin með umboðsmann

Ástæða er til að endurskoða og endurskipuleggja starf umboðsmanns skuldara vegna þess hversu hægt fólki gengur að fá úrlausn sinna mála hjá embættinu. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi í gær.

Ferðamönnum komið til bjargar á Sólheimasandi

Björgunarsveit frá Vík í Mýrdal var kölluð út í gærkvöldi til að aðstoða ferðamenn sem höfðu fest bíl sinn í sandbleytu á Sólheimasandi. Þeim var þó engin hætta búin.

Til mannréttindadómstólsins

Mál Baldurs Guðlaugssonar fyrrverandi ráðuneytisstjóra hefur verið kært til Mannréttindadómstóls Evrópu. Þetta kom fram á RÚV í gær.

Obama áfram vinsælli en Romney

Í nýrri skoðanakönnun á vegum CNN kemur fram að Barack Obama bandaríkjaforseti er áfram vinsælli en Mitt Romney andstæðijngur hans í komandi forsetakosningum í haust.

Philip prins lagður inn á sjúkrahús

Philip prins eiginmaður Elísabetar Bretadrottingar var lagður inn á sjúkrahús í skyndi vegna sýkingar í þvagblöðru í gærdag og missti prinsinn því af hluta af hátíðarhöldunum vegna 60 ára krýningarafmælis eiginkonu sinnar.

Tólf ár fyrir árásaráform

Hugðust ráðast inn á skrifstofur Jótlandspóstsins í Kaupmannahöfn og drepa eins marga og þeir gætu. Virðast þó hafa ætlað að þyrma börnum og konum.

Merkingar geta verið villandi

„Ef það stendur íslenskar lopapeysur, merkt með íslensku fánamerki, þannig að það sé gefið í skyn að þetta sé alíslenskt, þá get ég nú tekið undir að þetta geti virkað villandi,“ segir Gísli Tryggvason talsmaður neytenda spurður út í vörumerkingar á lopapeysum.

Sektuðu fyrir nagladekkin

Ökumenn 30 bíla á höfuðborgarsvæðinu voru sektaðir um helgina fyrir að aka um á nagladekkjum. Notkun þeirra er óheimil á þessum árstíma.

Putin ræðir orku- og utanríksmál við Kínverja

Þriggja daga opinber heimsókn Vladimir Putin forseta Rússlands til Kína hefst í dag. Að sögn BBC er reiknað með að orku- og utanríkismál muni verða helsta umræðuefni Putin og kínverska ráðamanna í þessari heimsókn þar á meðal ástandið í Sýrlandi.

Laufskrúð og byggð dregur úr vindinum

Lækkun ársmeðalvindhraða í Reykjavík er 0,1 m/s á áratug frá 1950. Mögulega enn meiri lækkun síðustu ár, að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings.

Fimm ára fá inni í Flataskóla

Flataskóli í Garðabæ mun í haust bjóða foreldrum fimm ára barna upp á val um að senda barn sitt í grunnskóla einu ári fyrr en áður. Ólöf Sigurðardóttir skólastjóri Flataskóla segir ráðist í verkefnið á faglegum forsendum.

Kveðst saklaus af innherjasvikum

Friðfinnur Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi millistjórnandi hjá Glitni, neitaði því fyrir dómi í gær að hafa gerst sekur um tuttugu milljóna króna innherjasvik árið 2008.

Enginn sáttatónn og skip enn við bryggju

Sjávarútvegsráðherra segir aðgerðir LÍÚ ekki koma til með að hafa áhrif. Hann hafi aldrei hafnað því að ræða við útvegsmenn. Framkvæmdastjóri LÍÚ neitar að um lögbrot sé að ræða og kallar eftir því að málið verði leyst í breiðri sátt.

Farsímamarkaður að ná jafnvægi

Tíu þúsund áskriftir bættust við íslenskan farsímamarkað á síðasta ári. Hlutdeild Símans fór í fyrsta sinn niður fyrir 40 prósent og Vodafone fór niður fyrir 30 prósent. Nova og Tal bæta við sig. Samkeppnin jafnari frá næstu áramótum.

Of feitum börnum fækkað um helming

Niðurstöður rannsóknar sem kynnt var á ráðstefnu Samtaka norrænna næringarfræðinga sýna að helmingi færri sex ára börn á Íslandi eru of feit nú en fyrir tíu árum. Minni prótínneysla ungbarna er stór áhrifavaldur segir sérfræðingur.

Vill setja lög um mótmæli

Vladimir Pútín Rússlandsforseti segist vilja innleiða lög um mótmæli að evrópskri fyrirmynd.

Dreifa ókeypis tölvuleik á íslensku

Íslenska tölvufyrirtækið Gamatic hefur í dag dreifingu á nýjum tölvuleik að nafni Samsærið. Um er að ræða ævintýraleik sem snýst um að upplýsa glæp með því að leysa þrautir. Sérstaða leiksins er sú að hann hefur verið íslenskaður að fullu og verður dreift hér á landi án endurgjalds.

Bensín ætti að lækka meira

Enn er svigrúm fyrir frekari lækkanir á eldsneytisverði að mati FÍB þrátt fyrir að gengi krónunnar vinni á móti verðlækkunum á heimsmarkaði. Forstjóri N1 segir verðlækkanirnar þegar hafa skilað sér að fullu.

Aðgerðir LÍÚ ólögleg og ósvífin árás á Alþingi

„Þær aðgerðir sem Landssamband íslenskra útvegsmanna er að fara í núna, sem að mínu viti eru ólöglegar, eru ekkert annað en ósvífnar aðgerðir og eiga auðvitað ekki að líðast.“ Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á þingi í gær um þá ákvörðun útgerðarmanna að halda fiskiskipaflota landsins í höfn næstu daga til að mótmæla kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar.

„Skapar glundroða og óeiningu“

Fjölmenni var á fundi landverkafólks og sjómanna í Vestmannaeyjum í gær og var þar samþykkt harðorð ályktun gegn fiskveiðifrumvörpum stjórnvalda. Þau séu „klárlega aðför að kjörum sjómanna og landverkafólks“ að mati fundarins og „skapi glundroða og óeiningu meðal þjóðarinnar“. Skoraði fundurinn á stjórnvöld að sækja Eyjar heim til að heyra sjónarmið Eyjamanna.

Par í sjálfheldu á Helgafelli

Fjallabjörgunarmenn úr björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu eru nú á leið á Helgafell þar sem par er í sjálfheldu. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg hugðist parið ganga á fellið og fór óhefðbundna leið.

Sjá næstu 50 fréttir