SÞ ætla ekki að aðhafast í máli íslenskra sjómanna gegn ríkinu JHH skrifar 5. júní 2012 16:59
Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna sem hefur fjallað um mál Erlings Sveins Haraldssonar og Arnar Snævars Sveinssonar gegn íslenskum stjórnvöldum hefur ákveðið að loka málinu þar sem stjórnvöld hafi brugðist, „með ásættanlegum hætti að hluta til" við tilmælum nefndarinnar. Stjórnvöldum barst tilkynning um þetta í gær. Hinn 15. september 2003 fóru Erlingur Sveinn Haraldsson og Örn Snævar Sveinsson þess á leit við Mannréttindanefnd SÞ að hún kannaði á grundvelli viðbótarbókunar við Alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi hvort íslensk stjórnvöld hefðu gerst brotleg við 26. gr. samningsins. Greinin kveður á um að allir skulu jafnir fyrir lögum og eiga rétt á sömu lagavernd án nokkurrar mismununar. Kváðust þeir vera lagalega skyldir til að greiða fé til forréttindahóps samborgara sinna til að geta stundað þá atvinnu sem þeir kysu, þ.e. fengju ekki úthlutuðum kvóta til fiskveiða heldur þyrftu að leigja eða kaupa hann á markaði. Í samræmi við meginreglur atvinnufrelsis og jafnréttis vildu þeir fá tækifæri til að stunda þá atvinnu að eigin vali án þess að þurfa að yfirstíga hömlur sem fælust í forréttindum fyrir aðra. Nefndin fjallaði um málið í október 2007 og taldi meirihluti hennar meginálitaefnið vera hvort kærendur skyldu lögum samkvæmt skyldaðir til að greiða samborgurum sínum fé til að afla sér fiskveiðiheimilda sem væru nauðsynlegar til að eiga kost á að veiða í atvinnuskyni kvótasettar fisktegundir í eigu íslensku þjóðarinnar. Lagði nefndin þá skyldu á herðar íslenska ríkinu að greiða málskotsaðilum fullnægjandi bætur og endurskoða fiskveiðistjórnarkerfið. Hinn 6. júní 2008 gerðu íslensk stjórnvöld grein fyrir afstöðu sinni til málsins. Í bréfi þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Einars K. Guðfinnssonar til nefndarinnar kom m.a. fram að íslensk stjórnvöld teldu sig ekki vera í stöðu til að greiða bætur til mannana né heldur að breyta fiskveiðistjórnunarkefinu umsvifalaust, en boðað var að tilmæli nefndarinnar yrðu höfð til hliðsjónar við heildstæða endurskoðun fiskveiðikerfisins. Í febrúar 2009 áréttaði sjávarútvegsráðherra Steingrímur J. Sigfússon fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að ákveðið hefði verið að styrkja mannréttindaþátt stjórnarskrárinnar og festa í sessi að auðlindir sjávar séu sameign þjóðarinnar en tók að öðru leyti undir fyrri afstöðu.
Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira