Fleiri fréttir

Telja að piltarnir séu eldri en þeir segjast vera

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að rökstuddur grunur leiki á að þeir aðilar sem dæmdir voru til 30 daga fangelsisrefsingar þann 30. apríl síðastliðinn og sögðust vera 15 og 16 ára séu eldri en þeir fullyrða.

Frikki aftur á meðal þeirra bestu í Kaupmannahöfn

Íslenski veitingastaðurinn Laundromat Cafe á Gl. Kongevej í Kaupmannahöfn hefur verið tilnefndur til verðlaunanna "Best Brunch in Town" sem vefsíðan Alt om Kobenhavn heldur úti. Vefsíðan er í eigu dagblaðsins Berlinske Tidende.

Breivik stundi af gleði í miðjum hildarleiknum

Réttarhöld í máli norska fjöldamorðingjans Anders Behring Breiviks hófust að nýju í Osló í dag. Fyrir réttinn komu nokkrir þeirra sem komust lífs af í hildarleiknum í Útey síðasta sumar.

Ráðist á bílalest SÞ

Sprengjuárás var í dag gerð á bílalest á vegum Sameinuðu þjóðanna í Sýrlandi í dag. Aðeins fáeinum sekúndum áður en sprengjan sprakk ók yfirmaður sendinefndar Sameinuðu þjóðanna eftir veginum. Hann slapp þó ómeiddur en að minnsta kosti þrír sýrlenskir hermenn eru sagðir hafa særst. Sendinefndin er í landinu til að fylgja eftir vopnahléi sem samið var um í síðasta mánuði en afar illa hefur gengið að framfylgja því. Árásin átti sér stað í borginni Deraa.

Annar nuddari kærir Travolta

Vandræði stórleikarans John Travolta aukast enn því annar karlmaður hefur nú stigið fram og ásakað hann um kynferðislega áreitni. Í gær komu fram ásakanir sama eðlis frá nuddara á hóteli í Atlanta sem staðhæfir að Travolta hafi áreitt sig í janúar á síðasta ári.

Lynch á Skype í Gamla bíói

"Þessi samkoma er fyrir alla þá sem hafa áhuga á innhverfri íhugun eða hafa lært hana,“ segir Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi, um dagskrá um innhverfa íhugun í Gamla bíói. "Þessi samkoma er fyrir alla þá sem hafa áhuga á innhverfri íhugun eða hafa lært hana,“ segir Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi, um dagskrá um innhverfa íhugun í Gamla bíói í kvöld þar sem David Lynch ávarpar viðstadda í gegnum samskiptaforitið Skype.

Strandaði vestan við Hornafjörð

Hraðfiskibátur sem strandaði í sandfjöru norðaustur af Hrollaugseyjum, eða vestan við Hornafjörð, snemma í morgun er með skemmda skrúfu en er ekki skemmdur að öðru leyti samkvæmt upplýsingum frá lóðsinum. Skipverjann, sem var einn á skipinu, sakaði ekki. Eftir að báturinn náðist á flot sigldi hann fyrir eigin vélarafli áleiðis til Hornafjaðrar í samfloti við björgunarskipið Ingibjörgu og eru þau væntanleg til Hafnar klukkan eitt.

Geimferðaráætlun CCP í beinni útsendingu

Nú á hádegi voru fyrstu skref tekin í Skyward Sphere, geimferðaráætlun CCP í raunheimum. Hylki með nöfnum yfir 350 þúsund EVE Online spilara var sent í loftið með viðhöfn frá Reykjavíkurhöfn - í beinni útsendingu á netinu, í samvinnu við Símann. Áætlanir gera ráð fyrir að hylkið muni ná allt 100 þúsund feta hæð. Um borð eru þrjár myndavélar og ýmis mælitæki sem munu senda allt sem fram fer til höfuðstöðva CCP. Landhelgisgæsla Íslands mun, við hefðbundið eftirlit klukkan hálfþrjú, fylgjast með þegar farið kemur aftur niður til jarðar.

Samherji leggur þremur skipum vegna strandveiðibáta

Samherji hefur lagt þremur fiskiskipum og kaupir þess í stað afla á fiskmarkaði frá strandveiðibátum. Framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja segir ólympískar veiðar strandveiðibáta hvergi hafa gefist vel og verð muni lækka til lengri tíma litið.

"Harkalegur dómur“ yfir alsírskum drengjum

Ekki hefur tekist að staðreyna með öruggum hætti réttan aldur tveggja alsírskra drengja sem dæmdir voru í óskilorðsbundið fangelsi fyrir fölsuð vegabréf. Dómur yfir þeim er býsna harkalegur að mati dósents við lagadeild Háskóla Íslands.

Spáð snjókomu um helgina - frost fer niður í 7 gráður

Þó sumarið sé formlega hafið hér á landi, þá náttúruöflin láta sér fátt um finnast en spáð er snjókomu og slyddu á norðausturlandi. Þannig er spáð slyddu á Húsavík og snjókomu á Raufarhöfn næsta sunnudag samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands. Þá verður einnig slydda á Blönduósi og Stykkishólmi. Einnig verður snjókoma á Vestfjörðum.

Buster kom upp um konu sem ræktaði kannabis

Lögreglumaður í almennu umferðareftirliti hafði skömmu fyrir miðnætti í gær afskipti af ungri konu sem ók bifreið sinni austur Suðurlandsveg í Ölfusi. Við fyrstu samskipti vaknaði grunur um að ökumaðurinn væri undir áhrifum fíkniefnum.

Íslandsþáttur Mörthu Stewart sýndur í dag

Dorrit Mousieff verður í sjónvarpsþætti Mörthu Stewart sem sýndur verður í Bandaríkjunum í dag. Í þættinum verður ítarlega fjallað um Ísland, meðal annars ferðaþjónustu, hönnun, hollustu, íslenska hestinn og mat. Þættirnir, sem eru afar vinsælir í Bandaríkjunum, eru einnig sýndir í yfir 50 löndum.

Sautján fórust í eldsvoða á Filippseyjum

Sautján fórust í gær á Filippseyjum þegar fataverslun brann til grunna. Verslunin var á þremur hæðum en hinir látnu, sem flestar voru konur sem störfuðu í versluninni, bjuggu á efstu hæð hússins og áttu sér ekki undankomu auðið. Aðeins þrír starfsmenn komust lífs af úr brunanum en algengt er á Filippseyjum að starfsmenn verslana búi einnig í þeim.

Átak til að fækka dauðsföllum á lestarteinum

Hátt í fimmtíu manns fórust í Bretlandi á síðasta ári við að stytta sér leið yfir lestarteina. Aukning er á þessum slysum og því hefur verið blásið til herferðar þar sem breski meistarinn í 400 metra grindahlaupi , Dai Greene, er í forgrunni.

Skortur á vinnuafli í Eyjum

Skortur er á vinnuafli í Vestmannaeyjum og þar er atvinnuleysi langt undir landsmeðaltali. Að sögn viðmælanda Fréttastofu skortir einkum fólk til þjónustu- og verslunarstarfa því unga fólkið stílar upp á uppgripavinnu í fiskvinnslunni, ekki síst þegar makrílveiðarnar hefjast.

Miklu fleiri börn leita hælis í ár en árin á undan

Mun fleiri börn hafa leitað hælis á Íslandi í ár en árin á undan, segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndastofu. Á árunum 2007 - 2011 komu alls 7 börn til landsins. Það sem af er árinu 2012 hafa komið fimm börn. "Það virðist vera stórfelld aukning á þessu ári í fjölda barna sem leita hælis hér - á árabilinu 2007 - 2011 voru þetta samtals sjö einstaklingar yngri en 18 ára sem leita hælis. en á þessu ári eru þau orðin fimm nú þegar,“ segir Bragi. Að vísu hafi orðið veruleg fjölgun fullorðinna sem leiti hælis hér líka.

Flytur á Hrafnistu ef hún fær svítu

„Geðshræringin var svo mikil að sjá allt þetta fólk að ég brast bara í grát,“ segir Þórdís Hreggviðsdóttir sem í gær hlaut viðurkenningu fyrir störf sín á Hrafnistu síðustu 45 árin.

Freista þess að mynda stjórn með gömlu flokkunum

Leiðtogi kosningabandalags vinstrimanna á Grikklandi hefur heitið því að reyna að mynda ríkisstjórn sem hafi það fremst í stefnuskrá sinni að rifta öllum samningum um fjárhagsaðstoð frá ESB og AGS. Samningarnir hafa þýtt mikinn niðurskurð í landinu og kjósendur svöruðu þeim um síðustu helgi með því að refsa ráðandi öflum harkalega.

Metverð fyrir nútímalistaverk

Málverkið "Appelsínugulur, rauður, gulur" eftir Mark Rothko er nú orðið dýrasta nútímalistaverk sögunnar, það er þegar litið er til verka sem máluð eru eftir seinna stríð.. Verkið seldist á uppboði í New York í gær á 86,9 milljónir dollara eða um tíu milljarða íslenskra króna.

Sprengjumaðurinn vann fyrir CIA

Svo virðist vera, sem hryðjuverkamaðurinn sem handtekinn var á dögunum grunaður um að ætla að sprengja flugvél í loft upp með sprengiefni sem átti að fela í nærbuxum hans, hafi verið gagnnjósnari á vegum Sádí Araba og CIA.

Kirkjan á inni tvo milljarða

Mistök voru gerð í fjárúthlutunum til þjóðkirkjunnar. Engar verðbætur voru greiddar með sóknargjöldum eftir hrun. Innanríkisráðherra sagði á fundi að ríkið muni leiðrétta mistökin. Söfnuðir stefna í gjaldþrot.

Vegna fréttar sem birtist í Kvöldfréttum Stöðvar 2 í fyrradag og á Vísi er fjallaði um verðsamanburð Byko, Húsasmiðjunnar og Bauhaus er rétt að koma eftirfarandi á framfæri.

Eigum kolefnin í trjánum okkar

Félag skógareigenda á Suðurlandi segir að í frumvarpi um loftslagsmál sé gert ráð fyrir að kolefnisbinding í skógum verði eign ríkisins. „Skógareigendur telja að þar sé vegið nærri eignarréttinum og ekki gefið að það standist stjórnarskrá.“ segir í ályktun félagsins sem einnig hefur athugasemdir við lagafrumvarp um mat á umhverfisáhrifum. „Sá kostnaðarauki sem frumvarpið hefur í för með sér getur hæglega valdið því að aðeins sterkefnaðir aðilar hafi tök á að hefja nytjaskógrækt.“- gar

Ákærðir fyrir óhlýðni við hafnarstjóra

Sýslumaðurinn á Akureyri hefur ákært tvo menn fyrir að óhlýðnast ítrekað fyrirmælum hafnarstjórans á Oddeyrarbryggju á Akureyri og starfrækja þar í óleyfi rútuþjónustu fyrir farþega skemmtiferðaskips dag einn í ágúst 2010. Annar mannanna er Björn Mikaelsson, sem um árabil gegndi stöðu yfirlögregluþjóns á Sauðárkróki.

Tíu stiga frost á Þingvöllum í nótt

Enn var næturfrost víðast hvar á landinu og ekki er spáð nema tveggja til átta stiga hita í dag. Tíu stiga frost mældist á Þingvöllum í nótt, en liðlega þriggja stiga hiti var í Vestmannaeyjabæ. Spáð er hægri breytilegri átt í dag með skúrum sunnanlands og á Vestfjörðum.

Aldrei fleiri Erasmus-nemar

Meira en 230 þúsund manns nýttu sér Eramus, háskólaáætlun Evrópusambandsins, á síðasta skólaári, fleiri en nokkru sinni fyrr.

Ætlar að kynna hagvaxtarleið

Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakklands, hefur boðað leiðtoga Evrópusambandsríkjanna á óformlegan fund með sér þann 23. maí, þar sem hann ætlar að kynna þeim hugmyndir sínar um það hvernig koma eigi hagvexti í gang í Evrópu.

Áhrif netsins á lýðræði skoðuð

Vaxandi áhrif netsins á lýðræðið er eitt umfjöllunarefna í opnum fyrirlestri Hauks Arnþórssonar, stjórnsýslufræðings og sérfræðings í rafrænni stjórnsýslu, í Lögbergi Háskóla Íslands í hádeginu í dag.

Segist hætt við hungurverkfall

Júlía Timosjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, er hætt í hungurverkfalli. Í dag verður hún flutt úr fangelsi á sjúkrahús, þar sem hlúð verður að henni.

Styrkja skólabókasöfn til bókakaupa

Fjörutíu skólabókasöfn fá í dag afhenta styrki til bókakaupa úr Skólabókasjóði, en styrkur þessi er hluti af verkefninu Ávísun á lestur sem Félag íslenskra bókaútgefenda stendur fyrir.

Netanjahú styrkir óvænt stöðu sína

Forsætisráðherra Ísraels hætti í gær við að flýta þingkosningum eftir að samkomulag tókst við Kadimaflokkinn um að mynda breiða ríkisstjórn. Þar með missa hinir litlu öfgaflokkar strangtrúargyðinga tangarhald sitt á stjórninni.

Lofar að afturkalla niðurskurð

„Þetta er söguleg stund fyrir vinstri menn og hreyfingu almennings og mikil ábyrgð lögð á mínar herðar,“ segir Alexis Tsipras, leiðtogi SYRIZA, bandalags róttækra vinstri flokka í Grikklandi.

Árétting vegna verðsamanburðar

Vegna fréttar sem birtist í Kvöldfréttum Stöðvar 2 í fyrradag og á Vísi er fjallaði um verðsamanburð Byko, Húsasmiðjunnar og Bauhaus er rétt að koma eftirfarandi á framfæri.

Úr sól í snjó á nokkrum klukkutímum

Mörgum íbúum á höfuðborgarsvæðinu brá heldur betur í brún þegar að þeir litu út um gluggann í kvöld og sáu snjó falla til jarðar. Það verður að teljast fremur óvenjulegt svona miðað við sólina og bláa himininn síðustu daga.

Leituðu að ungum stúlkum í Kópavogi

Tvær ungar stúlkur, fimm og sex ára fóru heldur langt frá heimili sínu í Kópavoginum í dag, eftir fjörugan leik í garðinum. Eftir þó nokkra leit með aðstoð nágranna, vina og vandamanna auk lögreglu fundust stúlkurnar heilar á húfi. Höfðu þær brugðið sér á skólalóð þó nokkuð frá. Lögreglan segir að þetta sé ágæt áminnig fyrir forráðamenn að kenna börnum sínum eða minna á mikilvægi þess að láta vita hvar þau ætla vera og eftir atvikum hvert þau ætla að fara.

Tólf ára strákur telur sig hafa fæðst í röngum líkama

"Ég er kannski ekkert öðruvísi því við erum öll eins,“ segir Michael Magnús De Leon, tólf ára strákur sem telur sig hafa fæðst í röngum líkama. Móðir hans sem fyrst vakti athygli á börnum í kynáttunarvanda hér á landi hefur nú skrifað barnabók í samvinnu við son sinn um hvað það er að vera öðruvísi, í þeim tilgangi að draga úr fordómum og auka fræðslu.

Með kannabisræktun í kjallaranum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í vesturbæ Reykjavíkur í dag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 115 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Geymslurými í kjallara hússins hafði verið innréttað og útbúið til ræktunarinnar. Karl á fertugsaldri, íbúi í húsinu, var yfirheyrður á vettvangi og játaði hann aðild sína að málinu.

Ungbarnaeftirlitið til fyrirmyndar

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra felldi tár yfir bágri stöðu mæðra og kvenna í Gíneu-Bissá og þykir lán að hafa fengið að ganga með tvíburastráka sína hér á landi. Það er engin furða þar sem íslensk börn og mæður þeirra hafa það einna best samkvæmt ársskýrslu Barnaheilla.

Tveir framhaldsskólar með enga íþróttakennara

Engir íþróttakennarar eru starfandi við tvo framhaldsskóla á landinu en skólarnir senda nemendurna þess í stað líkamsræktarstöðvar. Prófessor í íþrótta- og heilsufræði segir þetta skelfilega þróun.

Sjá næstu 50 fréttir