Fleiri fréttir

Bandaríkjamenn sinna loftrýmisgæslu

Sveit frá bandaríska flughernum mun sinna loftrýmisgæslu NATO á Íslandi næsta mánuðinn. Það er stefna NATO að aðildarríki NATO sjái um loftrýmisgæslu á Íslandi til þess að tryggja loftrými aðildarríkjanna.

Markmiðum um sjálfbæra uppbyggingu stefnt í hættu

Þingsályktunartillaga um vernd og orkunýtingu landsvæða sem nú liggur fyrir Alþingi stefnir markmiðum um sjálfbæra uppbyggingu raforkuframleiðslunnar í hættu. Þetta er mat Orkustofnunar sem hefur sent Alþingi umsögn um tillöguna. Í umsögninni er bent á að við undirbúningsvinnu við áætlun um vernd og orkunýtingu sat orkumálastjóri í verkefnisstjórn um rammaáæltun um nýtingu vatnsafls og jarðavrma sem iðnaðarráðherra skipaði í samráði við umhverfisráðherra í ágúst 2007.

Ráðist á forsætisráðuneytið í Líbíu

Byssumenn hafa ráðist á höfuðstöðvar forsætisráðherrans í Líbíu en samkvæmt frétt BBC er talið að þarna séu á ferð fyrrverandi uppreisnarmenn sem krefjast borgunar fyrir að hafa tekið þátt í uppreisninni gegn Muammar Gaddaffi.

Íslenskur hagfræðingur tekur þátt í Ólympíuleikunum

"Ég veit ekki alveg hvað ég er að fara að gera, það er enn mikil leynd í kringum þetta,“ segir einn óvæntasti þátttakandi Íslendinga í Ólympíuleikunum, en hagfræðingurinn Þóra Helgadóttir mun þó ekki keppa fyrir hönd Íslands, hún mun dansa í lokaathöfninni á Ólympíuleiknum í ágúst næstkomandi.

Borgarafundur með sendiherra ESB í Iðnó

Evrópustofa efnir til borgarafundar í dag í Iðnó með sendiherra ESB á Íslandi, Timo Summa. Fundurinn hefst klukkan fimm og stendur í klukkustund. Í tilkynningu kemur fram að fundurinn sé liður í Evrópuviku sem Evrópustofa stendur fyrir í tilefni af Evrópudeginum 9. maí. Hann verður túlkaður í heild sinni, bæði inngangserindi sendiherrans sem og umræður í kjölfar þess. Boðið verður upp á kaffi og kleinur.

Jón Gnarr fékk forláta hatt að gjöf

Jón Gnarr fékk forláta hatt að gjöf þegar hann tók á móti borgarstjóranum í Denver í Höfða nú í hádeginu. Borgarstjórinn er staddur hér á landi í tilefni þess að á fimmtudaginn hefur Icelandair áætlunarflug á milli Denver og Keflavíkur. Borgarstjórinn fer ekki tómhentur heim því að hann fékk sjálfur lopapeysu að gjöf frá borgarstjóranum okkar.

Bílnum var stolið af Söndru

Það voru óprúttnir aðilar sem brutust inn til Söndru Ýr Dungal þegar hún var sofandi inni í svefnherbergi íbúðar sinnar á sunnudagsmorguninn. Það eina sem var tekið úr íbúðinni var handtaskan hennar. Í handtöskunni voru meðal annars bíllyklar. Þegar Sandra leit svo útum gluggann tók hún eftir því að bíllinn hennar var horfinn. Sandra biður því fólk um að hafa augun opin ef Volkswagen Fox 2008 með bílnúmerinu ZIF 14 verður á vegi þeirra. Það má hafa samband við lögregluna í síma 444 1000.

Santorum lýsir stuðningi við Romney

Rick Santorum, repúplikaninn sem atti kappi við Mitt Romney um að hljóta útnefningu flokksins í komandi forsetakosningum, hefur nú formlega lýst stuðningi við keppinaut sinn.

Google prófar sjálfstýrða bíla

Tölvurisinn Google hefur í fyrsta sinn fengið leyfi til þess að prófa sjálfstýrðan bíl í almennri umferð í Bandaríkjunum. Bíllinn, sem er af Toyota Prius gerð, notast við GPS og radartækni til þess fara á milli staða og án þess að bílstjóri komi nokkuð nærri.

Fréttakona Al-Jazeera rekin frá Kína

Arabíska fréttastöðin Al-Jazeera segist hafa neyðst til að loka útibúi sínu í Kína eftir að fréttakona á þeirra vegum var rekin úr landinu. Fréttakonunni Melissu Chan var vísað úr landi og blaðamannapassi hennar ógiltur en þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem Kínverjar grípa til svo harkalegra aðgerða gegn erlendum blaðamanni.

Ágreiningur í Árborg um Skólaskrifstofu Suðurlands

"Það er engin úlfúð í þessu máli,“ segir365, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg en hún leggst alfarið gegn hugmyndum sveitarfélagsins um að segja sig úr Skólaskrifstofu Suðurlands. Sjálfstæðisflokkurinn er með hreinan meirihluta í bænum en fjórir bæjarfulltrúar hið minnsta eru sammála ákvörðun fræðslunefndar Árborgar um að segja sveitarfélagið úr Skólaskrifstofum Suðurlands.

Katrín mætti með tvíburana á fund Barnaheilla

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Bjarni Bjarnason eiginmaður hennar mættu með tvíburana sína á fund Barnaheilla - Save the Children þegar skýrsla samtakanna um stöðu mæðra í heiminum 2012 var kynnt í morgun. Katrín er sem kunnugt er í barneignaleyfi. Hún varð önnur ráðherra til þess að eignast barn, en nafna hennar Katrín Júlíusdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, ól barn í júní í fyrra. Samkvæmt skýrslu barnaheilla er best að vera móðir á Norðurlöndunum. Norskar mæður hafa það best, en íslenskar mæður eru í öðru sæti.

Karlmaður sakar Travolta um kynferðislega áreitni

Stórleikarinn John Travolta er sakaður um kynferðislega áreitni. Nuddari sem ber Travolta sökunum hefur stefnt honum og krefst þess að fá greiddar tvær milljónir bandaríkjadala, eða um 250 milljónir króna, fyrir að hafa áreitt sig þegar Travolta var í nuddi á hóteli í Beverly Hills í janúar síðastliðnum. Samkvæmt málskjölum virðist nuddarinn vera karlmaður en hann hefur ekki verið nafngreindur, eftir því sem fram kemur á fréttavef Daily Telegraph. Travolta er sakaður um að hafa nuddað fótlegg hans, snert kynfæri hans og reynt að fá hann til kynmaka.

Íslenskar mæður hafa það gott

Ísland lendir í öðru sæti þegar kannað er hvar mæður hafa það best í heiminum. Samtökin Save the Children, eða Barnaheill eins og þau kallast hér á landi, hafa gefið út árlega skýrslu sína þar sem kannað er hvar best sé að vera í móðurhlutverkinu en þetta er í þrettánda sinn sem skýrslan er gerð.

Svissneskir höfrungar á heróíni

Rannsókn er nú lokið á dularfullum dauðdaga tveggja höfrunga sem drápust í laug sinni í dýragarði í Sviss fyrir nokkrum mánuðum. Dýrin drápust stuttu eftir að fjölmenn danstónlistarhátíð hafði farið fram í garðinum.

Sprengja í nærbuxum: Ætlaði að granda flugvél

Bandarískum leyniþjónustumönnum tókst nýverið að koma í veg fyrir að meðlimi hryðjuverkasamtakanna Al-Kaída í Yemen tækist að sprengja sig í loft upp um borð í flugvél á leið til Bandaríkjanna.

Hættir við boðaðar kosningar

Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur dregið til baka ákvörðun sína um að blása óvænt til kosninga en í gær samþykkti hann að mynda stjórn með helsta stjórnarandstöðuflokki landsins.

Ríkisstjórnin fundar fyrir austan

Ríkisstjórnarfundur verður haldinn á Egilsstöðum núna klukkan níu en um er að ræða verður fyrsta ríkisstjórnarfundinn sem haldinn er í þessum landshluta.

Líklegt að hætt verði við hvalveiðar

Útlit er fyrir að Hvalur hf. muni ekki veiða nein stórhveli í sumar, eins og til stóð. Kristján Loftsson forstjóri Hvals segir í viðtali við Morgunblaðið að ástæðan sé sú að ekki hafi náðst samkomulag við Sjómannafélag Íslands um kaup og kjör undirmanna, þar sem félagið krefjist þess að fyrirtækið greiði hásetum bætur fyrir skerðingu stjórnvalda á sjómannaafslætti á sköttum.

Ákærður fyrir hrottalegt morð

Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Hlífari Vatnari Stefánssyni, 23 ára Hafnfirðingi sem varð fyrrverandi unnustu sinni að bana í húsi að Skúlaskeiði í Hafnarfirði í byrjun febrúar.

Vinstrimenn reyna stjórnarmyndun í Grikklandi

Kosningabandalag vinstrimanna reynir nú að mynda ríkisstjórn á Grikklandi. Kosningabandalagið, sem kallast Syriza, hefur barist gegn niðurskurðaráformum stjórnarinnar í Grikklandi og uppskar eftir því í kosningunum sem fram fóru um helgina.

Metafli: Verðmætið er átján milljónir á mann

Togbáturinn Steinunn SF frá Hornafirði setti aflamet í flokki slíkra báta þegar hann landaði 723 tonnum úr tíu róðrum í síðasta mánuði. Samkvæmt vefsíðunni Aflafréttir.com var aflaverðmætið hátt í 200 milljónir króna, eða hátt í 18 milljónir króna á hvern skipverja í 11 manna áhöfn bátsins.

Innbrot í heimahús - yfirbuguðu ölvaðan ræningja

Brotist var inn í heimahús í vesturborginni í gærkvöldi og þaðan stolið 52 tommu sjónvarpstæki, leikjatölvu og sjónvarpsflakkara. Tilkynnt var um innbrotið á tólfta tímanum, en þjófurinn var á bak og burt með þýfið, og er hans leitað.

Áætla verklok í júlímánuði

Vinna er að hefjast við breytingar á Suðurlandsvegi milli Bláfjallavegar og Litlu-Kaffistofunnar, að því er fram kemur á vef Vegagerðar Íslands. „Unnið verður við frágang við Litlu-Kaffistofuna og einnig verður akbrautin í austur breikkuð og lagfærð,“ segir í frétt Vegagerðarinnar. Fram kemur að verkinu eigi að ljúka í júlí næstkomandi, samkvæmt áætlun. „Vegfarendur eru beðnir að aka varlega um framkvæmdasvæðið og virða merkingar um hámarkshraða.“- óká

Fimm strandveiðibátar dregnir í land

Fimm strandveiðibátar voru dregnir til hafna í gær, eftir vélabilanir um borð í þeim. Í öllum tilvikum tóku aðrir fiskibátar þá í tog og var ekkert björgunarskip Landsbjargar kallað út, enda veður gott og engin hætta á ferðum. Fjölmargir strandveiðibátar hafa streymt á miðin í nótt, enda gott sjóðveður umhverfis landið.

Bólusetning gegn svínaflensu ótengd fósturláti

Bólusetning þungaðra kvenna með lyfinu Pandemrix gegn svínainflúensu veldur ekki fósturláti, er niðurstaða danskrar rannsóknar. Rannsóknarniðurstöðurnar voru birtar í hinu virta tímariti British Medical Journal (BMJ) þann 2. maí. Þetta kemur fram í frétt á vef landlæknis.

Mistókst að mynda stjórn

„Við reyndum allt mögulegt,“ sagði Antonis Samaras, leiðtogi íhaldsflokksins Nýs lýðræðis í Grikklandi í gær, eftir að hann gaf frá sér stjórnarmyndunarviðræður í landinu.

Óvíst að saksókn efnahagsbrota eftir hrunið skili miklu

Miðað við reynslu Norðurlandaþjóða eftir bankahrun í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar ættu Íslendingar ekki að vænta þess að saksókn efnahagsbrota eftir bankahrunið hér 2008 skili miklum dómum. Þetta segir Paul Larsson, prófessor við Politihøgskolen í Ósló, en hann var meðal þeirra sem fluttu erindi á 50 ára afmælisráðstefnu Norræna sakfræðiráðsins á Hótel Selfossi í gær. Ráðstefna ráðsins, sem hér á landi er vistað hjá Lagastofnun Háskóla Íslands, hófst á sunnudag og lýkur í dag.

Eðlilegt að taka eitt skref í einu

Unnið var að því í gær að stofna íslenskt félag í eigu fjárfestingafélags kínverska athafnamannsins Huangs Nubo, segir Halldór Jóhannsson, umboðsmaður Huangs á Íslandi.

Sótti óvart um geitahald í Hafnarfirði

„Ég verð að leiðrétta þetta við bæinn,“ segir Jóhann Davíð Barðason sem sótti óvart um leyfi til að halda tvær geitur við hús í útjaðri Hafnarfjarðar.

Lyf ræktað í gulrótum er komið í sölu

Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur samþykkt markaðssetningu á fyrsta lyfinu sem búið er til í erfðabreyttum plöntum með sameindaræktun. Íslenska líftæknifyrirtækið ORF Líftækni notar sambærilega tækni við framleiðslu próteina í byggi.

Hvergerðingar bjarga forsætisráðuneytinu

„Við bara rigguðum upp hér dagskrá fyrir einn æðsta mann í heimi,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði sem sjálf var fjarri góðu gamni 21. apríl síðastliðinn þegar óvenjuleg ósk barst frá forsætisráðuneytinu.

Ekki leið til að stilla til friðar

Þingkosningar fóru fram í Sýrlandi í gær. Bashar Assad forseti segir kosningarnar mikilvægar til að koma á umbótum í landinu en uppreisnarmenn segja þær marklausan blekkingarleik sem ekki muni koma á friði í landinu.

Vitlaus þjóðsöngur spilaður - söng hann bara sjálf

Hvað áttu að gera þegar þú vinnur til gullverðlauna og vitlaus þjóðsöngur fer í loftið? Þú gætir hugsanlega tekið míkrafóninn og sungið hann bara sjálfur. Það gerði allavega einn keppandi á Ítalíu á dögunum.

Frakki á feykihraða

Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði franskan ferðamann á Snæfellsnesvegi í kvöld á 118 kílómetra hraða en þar er 90 kílómetra hámarkshraði. Samkvæmt sektarreikni Umferðarstofu á ökumaðurinn 50 þúsund króna sekt yfir höfði sér. Lögregla segir að þeir ökumenn sem hafi verið teknir á síðustu dögum hafi verið að mælast á meiri hraða en síðustu mánuði. Það er líklega vegna þess að betra veður er úti og þá eiga ökumenn það til að stíga fastar á bensíngjöfina, að sögn varðstjóra.

Sóley búin að prófa Boot Camp: "Takk samt fyrir boðið"

"Ég er búin að prófa Boot Camp, ég gerði það árið 2007. Þannig takk samt fyrir boðið, ég er í fínu formi þrátt fyrir að vera ekki hjá þeim," segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri Grænna í borgarstjórn. Arnaldur Birgir Konráðsson, annar eiganda Boot Camp, skoraði á Sóleyju að koma og prufa einn tíma hjá þeim í samtali við Vísi í dag.

Raunhæft að leggja einkabílnum

Borgarstjóri segir eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu gefa fólki raunhæfan kost á að leggja einkabílnum. Vonast er til að tilraunaverkefni sem skrifað var undir í dag komi til með að fjölga strætisvagnafarþegum verulega.

Níu sinnum þurft að innkalla vörur

Það sem af er ári hefur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur níu sinnum þurft að innkalla matvörur þar sem skortur er á merkingu um að vara innihaldi efni sem geta valdið ofnæmi eða óþoli. Dæmi er um að barn hafi fengið ofnæmisviðbrögð eftir að hafa borðað smáköku sem innihélt hnetur en ekkert stóð á umbúðunum.

"Við erum heimsmeistarar"

"Við erum heimsmeistarar og komum til með að halda hátíð líkt og er alltaf gert þegar heimsmeistarar koma heim. Þessu verður fagnað, ég lofa því," segir Kormákur Geirharðsson, annar eiganda Ölstofu Kormáks og Skjaldar. Bríó bjórinn, sem var þróaður sérstaklega af Borg Brugghúsi í samstarfi við þá félaga, bar sigur úr býtum í sínum flokki í World Beer Cup 2012, sem fram fór í Kaliforníu á dögunum.

Lítið um rottur í Reykjavík - eiginlega viðburður að sjá þær

"Það er nú óhætt að segja að rottur í Reykjavík séu ekki stórvandamál, það er eiginlega orðinn viðburður að fólk sjái þær,“ segir Guðmundur Björnsson, rekstrarstjóri meindýravarna Reykjavíkurborgar, en íbúi á Grettisgötunni náði magnaðri mynd af rottu í gluggakistu á Grettisgötunni og ketti sem fylgist með henni.

Sjá næstu 50 fréttir